30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)
179. mál, sjónvarp á sveitabæi
Jónas Árnason:
Herra forseti. Það er slæmt, að sá ráðh., sem þetta mál heyrir undir, skuli ekki vera hér viðstaddur, þegar það er til umr.
Ég ætlaði ekki að ræða málið á breiðum grundvelli, eins og hér hefur verið gert, heldur ætlaði ég að taka fyrir aðeins eitt atriði, sem snertir sjónvarp úti um landsbyggðina. Ég átti von á því, að hv. 4. þm. Vesturl. mundi vekja máls á þessu hér áðan. Þetta er mál, sem upp kom í okkar kjördæmi, en hann tjáði mér áðan, að hann hefði ekki talið það einhvern veginn eiga hér heima. Mér finnst hins vegar, að það eigi hér fyllilega heima, og tel, að ég mæli þá fyrir munn okkar beggja, þegar ég vek hér máls á þessu.
En það skeði vestur í Neshreppi utan Ennis rétt fyrir áramót, hygg ég, að sú endurvarpsstöð, sem þar hafði verið á Ingjaldshóli, var tekin niður og sett upp önnur endurvarpsstöð á svokölluðu Vallnaholti. Sú endurvarpsstöð á að þjóna Ólafsvík og Hellissandi. En við þetta gerbreyttust skilyrðin á Hellissandi, sem verið höfðu hin prýðilegustu áður, meðan notuð var endurvarpsstöðin á Ingjaldshóli, svo góð reyndar, að ég hef varla séð þau betri annars staðar á landinu, og þar mun reyndar eitthvað hafa hjálpað upp á Snæfellskökull, en jöklar geta verið ótrúlega góðir grannar fyrir sjónvarpsnotendur. En eins og ég segi, þau hafa stórversnað þarna, móttökuskilyrðin. En um leið og þessi nýja endurvarpsstöð er sett upp á Vallnaholti, verður að setja upp ný loftnet, þannig að gömlu loftnetin, sem notuð voru fyrir endurvarpsstöðina á Ingjaldshóli, koma að engu gagni lengur, og sjónvarpsnotendur á Hellissandi og þessu svæði voru skikkaðir til þess að kaupa sér ný loftnet. Hvert þessara loftneta kostar hvorki meira né minna en 1400 kr.) Ég læt í ljós undrun mína yfir, að það skuli vera hægt að krefjast þess af fólki, að það leggi í slíkan aukakostnað. Mér er spurn, hvort sjónvarpinu beri ekki sjálfu eða ríkissjóði að greiða þetta fyrir viðkomandi fólk.
En þetta hefur svo haft þær afleiðingar þar vestra, þar sem ýmsir eru töluvert uppreisnargjarnir, að þeir hafa sent sjónvarpinu tilkynningu þess efnis, að þeir neiti að greiða þennan aukakostnað, ef til komi að setja upp ný loftnet, sem er nú reyndar nauðsyn, eftir að nýja stöðin kom á Vallnaholti. Þeir krefjast þess að fá þann kostnað greiddan úr ríkissjóði eða frá viðkomandi ríkisstofnun, og þar að auki neita þeir að greiða afnotagjöld sjónvarps, á meðan þetta ástand varir, þ. e. a. s. á meðan nýja stöðin er í notkun, en krefjast þess um leið, að sú gamla verði tekin í notkun aftur og allt verði fært til síns gamla, góða horfs. Þessari kröfu fylgja undirskriftir allra eigenda sjónvarpstækja þar vestra. Og af því að hér er verið að tala um nauðsyn þess að bæta móttökuskilyrði sjónvarps úti um hinar dreifðu byggðir, þá vil ég ljúka máli mínu með því að lesa hér upp niðurlagið á orðsendingunni vestan af Hellissandi. Mér finnst, að hún mætti vel takast til athugunar í þessu sambandi. Hún snertir það, hvernig fyrir handvömm er oft eytt peningum, sem ella hefði verið hægt að nota til þess að bæta sjónvarpsskilyrðin annars staðar. En niðurlag þessarar áskorunar er svo hljóðandi:
„Við lýsum vanþóknun okkar á þeirri undirbúningsvinnu, sem framkvæmd hefur verið í sambandi við byggingu stöðvarinnar á Vallnaholti, og teljum, að eðlilegra hefði verið að koma sjónvarpi til þeirra, sem ekki njóta þess enn, frekar en leggja fjármagn í það að eyðileggja sjónvarpsmóttöku í fjölmennum byggðarlögum.“