30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2913 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)
179. mál, sjónvarp á sveitabæi
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hv. 6. þm. Vesturl. vék hér að nokkuð sérstöku atriði í máli sínu, sem hann var nú að ljúka, og nefndi mig í því sambandi. Hann skýrði rétt frá gangi þessa máls. Það er vandamál, sem komið er upp í Neshreppi utan Ennis, á Hellissandi, þar sem sjónvarpsskilyrði hafa breytzt til hins verra fyrir tilverknað þeirra, sem þeim málum ráða. Þm. Vesturl. hafa verið send mótmæli, undirskrifuð af mörgum íbúum þar vestra, og þetta mál hefur verið rætt nokkrum sinnum meðal okkar. Hins vegar verð ég að segja það, að hv. þm. Vesturl. hafa mætt nokkuð misjafnlega til þeirra funda, þar sem þetta vandamál hefur verið rætt. En svo vill til, að ég hitti útvarpsstjóra í gærkvöld á hljómleikum og spurði hann um þetta mál. Sagði hann mér þá frá því, að nú nýlega hefðu að hans tilhlutan verið sendir menn vestur á Hellissand til þess að athuga þetta mál sérstaklega og hefði verið samin um það ítarleg grg., m. a. byggð á viðtölum við fólk á Hellissandi. Lofaði hann að senda mér þessa grg. eða ljósrit af henni, eins fljótt og hann gæti því viðkomið, og skal ég fúslega sýna hv. 5. þm. Vesturl. það rit, svo að við getum lagt krafta okkar saman til þess að leysa þetta vandamál.