30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2913 í B-deild Alþingistíðinda. (2302)

179. mál, sjónvarp á sveitabæi

Jónas Árnason:

Herra forseti. Mér virðist af viðbrögðum hv. 4. þm. Vesturl., að hann hafi misskilið mig hér áðan, þegar ég vék að þessu Hellissandsmáli. Tók ég það einmitt skýrt fram, að við værum alveg sammála um þetta. Ég leyfði mér að líta svo á, að ég talaði fyrir hönd okkar beggja. En hins vegar eru viðbrögð hans þess eðlis, að maður gæti haldið, að hann teldi mig hafa verið að efna til einhverrar kjördæmiskeppni í þessu sambandi. En það er síður en svo.

Aths. hans um það, að þm. Vesturl. hafi mætt misjafnlega til funda, þar sem rædd eru sjónvarpsmál vestur á Snæfellsnesi, ég veit ekki, hvernig ber að skilja hana. Ég veit ekki betur en ég hafi a. m. k. mætt á þessum fundum. Það kann að vera, að einn fundur hafi farið fram hjá mér af einhverjum ástæðum. En hitt skal ég játa, að við mætum kannske misjafnlega til tónleikanna, sbr. þær upplýsingar, sem hann fékk hjá útvarpsstjóra á tónleikum í gærkvöld. Það gleður mig að frétta um þær, og ég vil nú vænta þess, að útvarpsstjóri láti ekki nægja að senda 4. þm. Vesturl. þessa álitsgerð, sem hann ræðir um, heldur okkur öllum, svo að við getum allir 5 kjörnir þm. og uppbótarþm. líka sameinazt um að koma á góðu sjónvarpi aftur vestur á Hellissandi.