30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2915 í B-deild Alþingistíðinda. (2305)
184. mál, rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti
Flm. (Bjarni Guðnason) :
Herra forseti. Ég hef ásamt hv. 4. þm. Norðurl. e., Stefáni Valgeirssyni, lagt fram þáltill., sem hér er nú til umr., prentuð á þskj. 338, og heitir þar, að beðið sé um gagngera rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti I. Í heild hljóðar þessi þáltill. þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á félmrh. að láta fara fram gagngera rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti I, þ. e. í fjölbýlishúsunum Ferjubakka 2–16, Grýtubakka 2–16 og 18–32 og Hjaltabakka 2–16 og 18–32. Leiði sú rannsókn í ljós augljósa smíða- eða frágangsgalla á umræddum eignum, verði viðhlítandi lagfæringar gerðar eigendum að kostnaðarlausu. Jafnframt verði séð svo um, að íbúðaeigendum verði gefinn upp byggingarkostnaður ofangreindra húsa.“
Þessari þáltill. fylgir svo grg., sem við flm. höfum tekið saman. Auk þess fylgja hér 3 fskj. máli okkar til stuðnings, og skal ég nú rekja það helzta, sem þar kemur fram.
Það er kunnugt, að í hinu sögufræga júnísamkomulagi á árinu 1965, sem gert var á milli verkalýðsfélaga og ríkisvalds, var samþ., að byggðar skyldu á árunum 1966–1970 1250 íbúðir í Reykjavík á vegum ríkisins og Reykjavíkurborgar í samvinnu við verkalýðsfélögin. Þessar byggingarframkvæmdir hafa átt sér stað í Breiðholti allar götur síðan og hafa farið fram í áföngum, og eins og nú standa sakir er byggður fjórði áfanginn, enda er nú komið fram á árið 1973. Það mál, sem hér er á dagskrá, varðar einkum fyrsta áfangann eða Breiðholt I, sem reistur var á árunum 1966–1969. Þó er hér ekki átt við þann hluta framkvæmdanna, sem Reykjavíkurborg var aðili að, enda leigir hún þær íbúðir út og er þar á annan hátt farið heldur en um íbúðir þær, sem ríkisvaldið seldi. Í ljós hefur komið, að í þessum íbúðum og í sameigninni eru ýmsir smíða- og frágangsgallar, sem engan veginn geta talizt eðlilegir við sölu á nýjum íbúðum, og það breytir engu, þótt ætlunin hafi verið, að íbúðirnar væru sérlega ódýrar eða staðlaðar, eins og það heitir á tæknimáli. Það er tvennt ólíkt að selja ódýrt eða hitt að skila hlutunum í viðunandi ástandi. Fyrir þessum framkvæmdum í Breiðholti hefur staðið nefnd, svokölluð framkvæmdanefnd byggingaráætlunar, og skipa hana 2 nm. af hálfu húsnæðismálastjórnar ríkisins, einn tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, einn tilnefndur af fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík og einn tilnefndur af Reykjavíkurborg.
Íbúðaeigendur í Breiðholti hafa margsinnis farið þess á leit við framkvæmdanefndina, að hún léti gera nauðsynlegar lagfæringar á þeim göllum, sem þeir, þ. e. a. s. íbúðaeigendur, töldu örugglega smíðagalla. Framkvæmdanefndin hefur vissulega reynt að koma eitthvað til móts við þetta og látið lagfæra sitthvað í þeim íbúðum, sem verst voru á sig komnar, en því fer víðs fjarri, að þar hafi nóg verið að gert. Að sjálfsögðu hafa íbúðaeigendur ekki viljað una þessu ástandi, og þrátt fyrir að þeir hafi leitað til Framkvæmdanefndarinnar æ ofan í æ, þá virðist hún ætla að smeygja sér undan ábyrgð í þessum efnum. Þess má geta, að viðgerðarsamningur milli íbúðaeigenda og framkvæmdanefndarinnar var gerður, þar sem taldir voru upp þeir ágallar, sem þurfti að laga. Við þennan samning hefur nefndin ekki staðið nema að litlu leyti, og vil ég þá benda hv. þm. á, að ef þeir hafa þessa þáltill. við höndina, þá geta þeir litið á fskj. I og fskj. II, þar sem fram kemur, hvernig þessi mál standa nú. Fskj. I er viðgerðarsamningur annars vegar framkvæmdanefndar byggingaráætlunar og hins vegar íbúðakaupenda, og þar eru talin upp þau atriði, sem þurfti að laga. Þessi atriði snerta ýmsa þætti húsagerðarinnar, þ. e. útveggi og þak, innveggi, hurðir, gólf, lagnir, bílastæði, stéttir og lóðir. Og þar er svo talið upp í einstökum atriðum, hverju sé ábótavant. Þar heitir beinlínis framkvæmdanefnd byggingaráætlunar að lagfæra ýmsa hluti, svo sem að skipta um móðugler og sprungin gler, glugga- og svalahurðir verði þéttaðar, svo sem þörf krefur, gert verði við leka á útveggjum, gert verði við leka á þaki, svalahandrið verði máluð, skipt um skrár á útihurðum, lagfært los á lömum og hurðarkörmum. Gólfin voru í miklu vandræðaástandi og heitið að lagfæra svokölluð parketgólf o. s. frv. Þetta geta þm. sjálfir lesið nánar í þessu þskj.
Þessi samningur var gerður, eins og hér kemur fram, í des. 1969. Þremur árum seinna kemur fram, að lítið af þessu hefur verið gert. Og það kemur fram í fskj. II, þar sem er talið upp af hálfu íbúðaeigenda það, sem framkvæmt hafi verið í raun og veru. Eins og segir í fskj. II og upphaf þessa samnings ber með sér, þá er um miklu fleiri galla að ræða en þá, sem flokkaðir eru undir gr. 1–8. Þær gr. eru aðeins um galla, sem eru í öllum stigahúsum í öllum blokkunum, en ekki bundnir við einstakar íbúðir. Síðan er rakið lið fyrir lið, hvað hefur verið lagfært. Sumt hefur vissulega verið fagfært að nokkru eða öllu leyti, sumt aðeins að nokkru leyti og allmargt að engu leyti, eins og hér kemur fram, og tel ég ekki ástæðu að lesa þetta upp, því að þm. hafa þetta fyrir framan sig. En þannig standa málin nú, að framkvæmdanefndin hefur ekki staðið nema að óverulegu leyti við þann viðgerðarsamning, sem hún gerði við íbúðakaupendur.
Til þess að ítreka, hvernig málin standa, höfum við flm. látið fylgja hér fskj. III. Og það er bréf til framkvæmdanefndar byggingaráætlunar frá umsjónarmanni eldvarna. Það er dags. 2. júlí 1971. Segir í þessu bréfi meðal annars: „Við athugun á íbúðarhúsum að Grýtubakka 2–32 hefur komið í ljós, að ekki hefur verið farið eftir ákvæðum byggingarsamþykktar fyrir Reykjavík í nokkrum tilvikum. Eftirtöldum atriðum er ábótavant frá sjónarmiði eldvarna og öryggis:“ Síðan er talið upp í 5 liðum, hverju sé ábótavant frá sjónarmiði eldvarna og öryggis. Þar segir m. a.:
1. Í kjallara eru stigahús opin inn í geymslusvæðið. Annars vegar er enginn dyraumbúnaður, og hins vegar er stórt op yfir dyrum. Loka þarf stigahúsum í kjallara á eldtraustan og reykþéttan hátt.
2. Í kjallara þurfa að vera eldvarnarveggir með tilheyrandi eldvarnarhurðum með minnst 50 metra millibili.
3. Sorpgeymslur eru ekki eldtraustar í hólf og gólf. Hér er viðartengiklæðning yfir dyrum.
4. Samkv. byggingarsamþykkt á sorprenna að ganga með óbreyttu þvermáli beint upp úr þaki. Í risinu er loftræsting frá snyrtiherbergjum og sorprennum tengd saman með pípum gegnum eldvarnarveggi. Í veggjunum er opið með pípunum og væntanlega engar eldvarnarlokur innan í pípunum.
5. Í risi ná eldvarnarveggir ekki þétt upp að yztu þakklæðningu. Viðarbönd liggja yfir og ofan á veggjunum undir þakklæðningunni:“
Síðan segir umsjónarmaður eldvarna, sem skrifar þetta bréf :
„Er þess vænzt, að framantalin atriði verði athuguð af yðar hálfu og fundin viðunandi lausn í samráði við eldvarnareftirlitið. Athuga þarf einnig, hvort svipað er ekki ástatt með aðrar byggingar sams konar, sem framkvæmdanefnd byggingaráætlunar hefur reist í Breiðholtinu.“
Eins og fyrr segir, er þetta bréf skrifað 2. júlí 1971, og framkvæmdir á þessum atriðum eru engar, þannig að ég fæ ekki séð annað en málin standi þannig, að þessi fyrsti áfangi eða a. m. k. sum íbúðarhúsin þar standist ekki þær kröfur, sem gerðar eru um eldvarnir og öryggi. Þetta bréf frá eldvarnareftirlitinu er aðeins sýnishorn um það, við hvaða öfl er að etja í þessu máli.
Íbúðaeigendur hafa að sjálfsögðu reynt að ná rétti sínum með því að ræða við framkvæmdanefndina, rita henni bréf, ræða við hana, kynna mál sitt í blöðum, en árangur hefur ekki orðið sem erfiði. Í sannleika sagt hefur þessu máli skotið upp alltaf endrum og eins, og það er kominn tími til að taka það föstum tökum og a. m. k. gera sér ljóst, hvað um er að ræða. Og nú er að okkar mati, flm., ekki nema í eitt hús að venda, og það er, að hið háa Alþ. gripi hér í taumana og skori á hæstv. félmrh. að sjá til þess, að íbúðaeigendur nái rétti sínum. Ég vil minna á, að félmrn. er hér aðili að þessu máli, enda segir í reglugerð um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar, sem gefin er út af félmrn. 28. apríl 1967, m. a. þannig í 12. gr.: „Félmrh. skipar tvo trúnaðarmenn í samráði við borgarstjóra Reykjavíkur til þess að hafa eftirlit með öllum byggingarframkvæmdum og fjárreiðum vegna íbúðabygginga þeirra, sem um ræðir í reglugerð þessari: Það virðist því liggja í hlutarins eðli, að það komi í hlut félmrn. að sjá svo um, að þessir íbúðakaupendur kaupi ekki svikna vöru.
Í þessu sambandi er rétt að geta þess, að við byggingarframkvæmdir í Breiðholti I voru notaðar nýjar aðferðir við fjöldaframleiðslu íbúða, og það var beitt fullkomnustu tækni og skipulagningu, sem þá var kostur á. Þetta leiddi til þess, eins og viðurkennt hefur verið af framkvæmdanefndinni, að fyrstu byggingarframkvæmdirnar í Breiðholti urðu með nokkru tilrauna sniði. Menn voru þá að þreifa sig áfram með nýja byggingartækni, og einmitt þetta atriði leiddi til þess, að upp komu þeir smíða- og frágangsgallar, sem hér um ræðir. Er sjáanlegt, að í síðari áföngum Breiðholtsframkvæmdanna hefur verið um miklar framfarir að ræða, og þar hafa menn augljóslega lært af fyrri reynslu. Og þá vaknar spurningin: Getur það talizt nokkur sanngirni, að kaupendur íbúða í Breiðholti I beri bótalaust þá annmarka, sem fram hafa komið í íbúðum þeirra einmitt vegna þessarar tilraunastarfsemi og aðrir hafa notið góðs af síðar meir?
Ég vil þó taka það fram, að þessir gallar eru að sjálfsögðu ekki í öllum íbúðunum í fyrsta áfanganum. Velflestar íbúðirnar eru gallalausar eða gallalitlar, en allmargar hafa ýmsa galla. Hér er m. ö. o. ekki talið, að hver einasta íbúð í fyrsta áfanga sé gölluð, síður en svo. Framkvæmdanefndin hefur reynt að standast þetta með því að bera fram ýmis rök, m. a. þau, að það væri ekki mark takandi á þessum kvörtunum íbúðaeigenda í Breiðholti I, þar sem um væri að ræða örfáa nöldurseggi, sem væru alltaf óánægðir, hvar sem þeir væru niður komnir. Þessi málflutningur er náttúrlega engum til sóma, og til þess að taka af tvímæli hafa 243 íbúðaeigendur af 260 í ofangreindum fjölbýlishúsum eða yfir 93% skrifað undir skjal, þar sem farið er fram á sams konar beiðni og um getur í þáltill. Meginástæðuna fyrir því, að ekki skuli vera 100% þátttaka, hygg ég vera þá, að sumar þessara íbúða eru leigðar út. M. ö. o.: hér er lögð fram ósk þessara íbúðaeigenda um könnun á ástandi íbúðanna, og þar er fullkomin samstaða.
Meginatriðið er þó, að þessi þáltill. fellir engan dóm. Hér er einungis farið fram á, að óhlutdrægur aðili kanni ástand íbúða og sameignar og láti í ljós álit sitt. Reynist hins vegar berlegir ágallar, sem rætur eigi að rekja til smíðagalla eða vinnusvika, verði að sjálfsögðu gerðar viðhlítandi lagfæringar íbúðaeigendum að kostnaðarlausu. Hér er auðvitað ekki átt við eðlilegt slit af nýtingu íbúðanna.
Auk þess hafa íbúðaeigendur óskað þess að fá uppgefinn byggingarkostnað, hver hann var í raun og veru, því að þeir telja sig hafa ástæðu til þess að ætla, að íbúðaverðið hafi verið of hátt. Í fyrrgreindri reglugerð, sem ég vitnaði í, segir, að söluverð íbúða skuli vera kostnaðarverð. Hér er enginn dómur lagður á það, hvort íbúðakaupendur hafi nokkuð fyrir sér í þessu efni eða ekki. En þeim er varla láandi, þótt þeir vilji fá uppgefinn byggingarkostnað, enda má það heita réttur þeirra, eins og að byggingu þessara íbúða er staðið.
Ég skal nú ekki fjölyrða meira um þetta mál, en að lokum segja nokkur orð. Ég hef orðið mjög var við það, hversu íbúðakaupendur hér á Íslandi, hvort sem um er að ræða í Breiðholti I eða aðra, eiga afskaplega erfitt með að ná rétti sínum, ef þeir telja sig svikna. Þetta fólk, sem kaupir íbúðir, sem á eftir að smíða eða er í smíðum, þarf oft að standa jafnvel árum saman í málaferlum út af smáatriðum. Ég tel, að réttleysið í þessum málum á Íslandi í dag sé ógnvekjandi. Hér er rekinn sá byggingarmáti, að einstakir aðilar byggja íhúðir og gera það oft af dugnaði og atorku, og skal ekkert um það fengizt, en neytendur eiga oft ákaflega erfitt með að leita réttar síns, ef þeir þykjast kaupa svikna vöru. Þetta er bæði mín persónulega reynsla og annarra, og hér er mikil vöntun í okkar þjóðfélagi. Það þarf að tryggja rétt kaupandans, kauprétt neytandans. Sérstaklega verður það átakanlegt með íbúðakaupendur í Breiðholti I, þar sem hér er um að ræða láglaunafólkið í þjóðfélaginu og verkalýðshreyfingin sjálf stóð að því að semja um byggingu þessara íbúða við ríkisvaldið, að þetta mál skuli hafa komið upp, og ég verð víst, því miður, að fella þann dóm, að mér þykir mjög hafa á skort, að verkalýðshreyfingin sjálf væri það skjól, sem hún hefði átt að vera fyrir þessa félaga sína, sem keyptu íbúðir í Breiðholti.
Í þessu Breiðholtsmáli eru mörg sjónarmið og mörg viðhorf, en það eru tvö atriði, sem ég vil leggja áherzlu á og endurtek. Það er hið óþolandi réttleysi íbúðakaupenda í þjóðfélaginu í dag, hversu vanmegnugur einstaklingurinn er til þess að leita réttar síns, ef hann þykist svikinn að einhverju leyti, og í öðru lagi sá furðulegi lærdómur, sem dreginn verður af þessu máli, þ. e. að verkalýðshreyfingin hefur ekki sinnt ákalli þessa fólks í þessum málum, heldur látið þetta sem vind um eyru þjóta, og það er e. t. v. mesta undrunarefnið.
Hér er því einungis beint til hæstv. félmrh. að láta fara fram hlutlausa könnun á ástandi íbúðanna í Breiðholti I, fá hlutlausan aðila til þess að kanna málin, og síðan, ef augljósir smíða- og frágangsgallar koma í ljós, þá er það ekki nema sanngirni, að þeir gallar verði bættir íbúðakaupendum að kostnaðarlausu. Þetta er m. ö. o. allt, sem felst í þessari þáltill. Ég vænti þess, að hæstv. félmrh., sem ræður mestu um þessi mál, taki á þessu af þeim skilningi og einurð, sem vænta má af honum sem fyrrv. forseta Alþýðusambandsins og núv. ráðamanni um húsnæðismál hér á landi.
Að lokum vil ég svo afhenda hæstv. félmrh. undirskriftir þær, sem ég nefndi í ræðu minni, en það eru um 93% af öllum íbúðakaupendum í Breiðholti I.