30.03.1973
Sameinað þing: 64. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2920 í B-deild Alþingistíðinda. (2306)

184. mál, rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af þessari till. — Ég vil í fyrstu minna á, að þegar Breiðholtsframkvæmdirnar fóru af stað fyrir tæpum áratug, var þar um að ræða merkilegt félagslegt átak, sem bæði leysti vissan félagslegan vanda hvað snerti fólk, sem var á hrakhólum með íbúðir, og eins hitt, að það leiddi til betra ástands á þeim vettvangi, húsbyggingavettvanginum, og á þeim markaði, þegar tekið er tillit til verðs og gæða bygginga. Þær framkvæmdir, sem fóru fram og hófust í Breiðholti I, um leið og þær voru aðstoð með þeim hætti, sem ég hef nú rakið, þá sönnuðu þær líka um leið kosti þess fyrirkomulags, sem á hafði verið, þ. e. a. s. sýndu fram á, að byggingaraðilar, sem á þessum vettvangi höfðu haslað sér völl, byggðu yfirleitt vel, og það verð, sem þeir höfðu boðið, var ekki ósanngjarnt, eins og hafði verið haldið fram mjög í umr. þar á undan. Það kom í ljós, að þrátt fyrir mikið fjármagn og það mikla magn, sem byggt var af framkvæmdanefnd Breiðholtsáætlunarinnar, þá urðu þessar íbúðir, sem byggðar voru á hennar vegum, hvorki ódýrari né betri að gæðum til. Ég skal ekki fara nánara út í þær umr., sem urðu allmiklar hér fyrir nokkrum árum, en þessar niðurstöður eru engu að síður til gagns, bæði fyrir hina einstöku byggingaraðila, svo og fyrir framkvæmdanefndina, sem áfram hefur haldið að byggja og gert það mun betur í því framhaldi.

Með þessum byggingum voru fólki, sem var í vandræðum með húsnæði, boðnar íbúðir með mjög hagstæðum kjörum, og það fyrirkomulag leiddi til vissra deilna og gagnrýni. Margur leit svo á, að þarna væri gengið of langt. Það er ekki mín skoðun, en ég þarf ekki að minna á, að þetta allt orkaði mjög tvímælis á sínum tíma.

Í framhaldi af því, að fólk fékk þessar íbúðir og flutti í þær, fór strax að gæta þess, að það var með vissa gagnrýni á frágang þessara íbúða, taldi ýmislegt vera vangert og lét í ljós skoðanir sínar á opinberum vettvangi, í blöðum og víðar. Og það var tvímælalaust svo, að margir, sem fylgdust með þessu úr fjarlægð, litu svo á, að þarna væri um að ræða vanþakklæti af hálfu þessa fólks, það væri að fá þarna íbúðir með hagstæðum kjörum og væri síðan að nöldra út af einhverjum minni háttar göllum, sem ástæðulaust væri. Nú hefur hins vegar komið í ljós, eftir því sem lengra hefur liðið, að þessi gagnrýni og ákúrur íbúanna hafa reynzt að mörgu leyti réttar, og það hefur verið full ástæða til þess fyrir þetta fólk að kvarta undan ýmsu, sem miður hefur farið í þessum byggingum og rakið hefur verið hér af 1. flm. þessarar till. Hefur komið í ljós, að þrátt fyrir þessar kvartanir alllangan tíma hefur reynzt erfitt fyrir þetta fólk að fá upplýsingar eða lagfæringar og gengið bónleitt til búðar, þar sem framkvæmdanefndin hefur verið annars vegar.

Nú skal ég ekki leggja dóm á það, hvort framkvæmdanefndin hefur haft ástæðu til þess að virða ýmsar þessar kröfur að vettugi eða svara alls ekki erindum íbúanna. En vissulega gefa þau bréf frá íbúunum, sem ég hef m. a. kynnt mér, tilefni til þess að halda, að ýmislegt skorti þarna á og framkvæmdanefndin hafi ekki sinnt réttmætum kröfum og kvörtunum.

Í rauninni er það svo, að till. sem slík, þar sem skorað er á hæstv. félmrh. í þessu tilfelli að láta fara fram gagngerða rannsókn á íbúðum, til þess að sanngjarnar kröfur og kvartanir séu skoðaðar, — í rauninni ætti þessi till. að vera fyllilega óþörf. Og ég tek undir orð síðasta ræðumanns hvað það snertir, að það er vissulega bagalegt í þessu þjóðfélagi, ef neytendur eða almenningur almennt á í svo miklum erfiðleikum að ná fram rétti sínum eða ná fram því, að kröfur séu skoðaðar á hlutlausan og sanngjarnan hátt, að það þurfi að koma hingað inn á hv. Alþ. sérstakar óskir og till. með áskorunum til hæstv. ráðh. um það, að þeir beiti sér fyrir slíkri rannsókn.

Ég er þeirrar skoðunar, að þetta mál sé nokkuð gott sýnishorn af því, hvernig almenningur stendur gagnvart stjórnvöldum. Hann stendur allt of oft varnarlaus, þegar um er að ræða stofnanir eða fyrirtæki, sem annað hvort eru opinber eða hálfopinber, og er vissulega ekki vanþörf á að bæta úr þessum tengslum milli neytenda annars vegar og stjórnenda hins vegar.

Um leið og ég tek fram aftur, að ég legg ekki neinn sérstakan dóm á eina eða aðra kvörtun eða kröfu í máli íbúa í Breiðholti I, í þessum viðkomandi húsum, þá er ég mjög sáttur með það og styð það heils hugar, að kröfur þeirra séu skoðaðar. Því er ég hlynntur þessari till. og vil gjarnan, að hún nái fram að ganga. Mér sýnist þarna farið fram á upplýsingar, sem ættu að vera sjálfsagðar milli kaupanda og seljanda, milli almennings og stjórnvalda, og þessar kröfur vera mjög sanngjarnar, og styð ég því þessa till. heils hugar.