02.04.1973
Neðri deild: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2945 í B-deild Alþingistíðinda. (2338)

73. mál, búfjárræktarlög

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Frv. þetta, sem er 73. mál á þskj. 191, er samið af milliþn., sem búnaðarþing kaus árið 1971. Í n. áttu sæti Egill Bjarnason ráðunautur frá Sauðárkróki, Jón Helgason bóndi í Seglbúðum og Magnús Sigurðsson bóndi á Gilsbakka. Nál. var skilað í frv.-formi, og var það lagt fyrir búnaðarþing 1972. Gekk það þing frá frv. ásamt grg. eins og það var lagt fyrir hv. Ed., nema hvað gerðar voru nokkrar orðalagsbreytingar á því. Hv. Ed. hefur afgreitt þetta mál, og voru þar gerðar nokkrar orðalagsbreytingar á frv. og lítilsháttar efnisbreyting á X. kafla þess, þ. e. um forðagæzlu, sem virðist vera nánast það að sníða frv. eftir þeim breytingum, sem þegar hafa verið gerðar í flestum sveitum landsins og þéttbýlisstöðum í framkvæmd á forðagæzlu.

Þær meginbreytingar, sem með þessu frv. er lagt til að gerðar verði á búfjárræktarlögunum, stefna að því, að kynbótastarfsemin og búfjárræktin öll í landinu aðlagist og færi sér fullkomlega í nyt nýja tækni, aukna þekkingu og bætta aðstöðu, sem skapazt hefur að undanförnu. Þessar breytingar hljóta að hafa veruleg áhrif á félagslega skipulagningu kynbótastarfsins. Ljóst dæmi um þetta eru þær róttæku breytingar, sem verða með tilkomu tveggja djúpfrystistöðva fyrir nautasæði, sem nú þegar þjóna öllu landinu. Við þetta breytist allt kynbótastarf í nautgriparækt, möguleikarnir stóraukast fyrir heildina, en vandinn og ábyrgðin, sem fylgir nautavali til þessara stöðva, kemur á færri hendur. Í samræmi við þetta er nú hægt að styrkja nautahald utan þessara stöðva, nema í örfáum tilfellum. Á hinn bóginn verður að efla verulega atkvæmarannsóknir, og hafa opnazt fleiri leiðir til þess að styrkja þær en áður voru fyrir hendi.

Kostnaðarauki vegna þessa frv., ef að lögum verður, miðað við svipaða starfsemi og verið hefur hingað til og við verðlag 1970, er talið í grg., sem fylgir frv., að verði einhvers staðar í kringum 4 millj. á ári.

Þetta frv. hefur nú legið fyrir hv. landbn. Nd. um nokkurt skeið til athugunar og verið rætt þar á mörgum fundum. Þetta er mikill lagabálkur, sem er í 11 köflum, og lagagreinarnar eru 66 að tölu.

I. kaflinn er um yfirstjórn, félagskerfi og leiðbeiningaþjónustu. Þar er kveðið svo á, að Búnaðarfélag Íslands skuli fara með yfirumsjón allrar búfjárræktar í landinu, og helztu verk efni þess skilgreind. Slík ákvæði hafa ekki verið áður í l., starfssvið Búnaðarfélags Íslands verið markað af langri hefð, en eðlilegt er, að lög um búfjárrækt hefjist á skilgreiningu þess félagskerfis, sem sér um framkvæmd laganna fyrir hönd ríkisins og vinnur að framförum í búfjárrækt landsmanna. Þessi kafli fjallar enn fremur um önnur stig félagskerfisins, þ. e. a. s. búnaðarsamb. og hin minnstu stig þeirra, hreppabún.fél. Í þessum kafla er tekið fram, að Búnaðarfélag Íslands skuli móta samþykktir í öllu félagskerfinu með gerð vissra fyrirmynda, og verður Búnaðarfélag Íslands að staðfesta þær. Á þennan hátt á að tryggja það, að frávik, sem mismunandi aðstæður kunna að skapa í samþykktum einstakra sambanda eða félaga, fari ekki út fyrir þau mörk, sem meginstefnunni eru sett. Þá fjallar þessi kafli um leiðbeiningaþjónustu, annars vegar ráðuneytisþjónustu Búnaðarfélags Íslands í búfjárrækt og hins vegar ákvæði um héraðsráðunauta. Í þessum kafla, þ. e. í 4. gr., er lagt til, að ferðakostnaður ráðunauta sé greiddur af ríkinu í sama hlutfalli og laun þeirra, þ. e. a. s. 65% af hvoru tveggja.

II. kaflinn fjallar um nautgriparækt. Í þessum kafla frv. er gert ráð fyrir mestum breytingum, enda hefur orðið grundvallarbreyting á aðstöðu til kynbóta í nautgriparækt, eins og áður segir. Má segja, að helztu nýmælin séu, að lögfest er, að Búnaðarfélag Íslands skuli reka nautastöð til framleiðslu á djúpfrystu sæði, en eins og vitað er, þá eru nú starfandi í landinu tvær stöðvar, sem vinna að þessu verkefni, og er gert ráð fyrir, að á því verði engin breyting. Þá er í þessum kafla lagt til, að niður falli úr gildandi l. ákvæði um kynbótanefndir, sem hafa verið í hverjum hreppi. Aðalverkefni þeirra, sem var að sjá um nautahald, er að mestu leyti búið að vera. Er gert ráð fyrir, að búnaðarsamböndin og nautgriparæktarsambönd sjái um dreifistöðvar á afmörkuðu svæði. Þetta kerfi er komið upp að mestu leyti um allt land, og er gert ráð fyrir, að í einstaka tilvikum sé áfram nautahald, þar sem erfitt er að koma á sæðingum vegna erfiðleika um samgöngur og mikils strjálbýlis.

III. kaflinn er um sauðfjárrækt, og eru þar að miklu leyti svipaðar breytingar og í II. kaflanum. 16. gr. fjallar um sauðfjársæðingar, en ákvæðin um þær eru ekki í kaflanum um sauðfjárrækt í gildandi l. Þar er lagt til, að ríkissjóður greiði 1/3 af stofnkostnaði stöðvanna og enn fremur nokkurn styrk á hverja sædda á. En í sambandi við þessar dreifistöðvar eru sams konar ákvæði og í sambandi við II. kafla.

IV. kaflinn er um hrossarækt. Í þessum kafla eru líka verulegar breytingar. Þar er gert ráð fyrir, að hætt verði kosningu kynbótanefnda í einstökum hreppum, en þau verkefni, sem þeim er ætlað í gildandi l. komi í hlut búnaðar- og hrossaræktarféfaga. Þá eru í þessum kafla hækkuð ýmiss konar framlög til kynbótastarfsins. Þá er rætt í 31. gr. um vörzlu stóðhesta. Ákvæði þar eru hert frá gildandi lögum og gerð skýrari og einfaldari í framkvæmd.

V. kafli frv. er efnislega óbreyttur, en hann er um svína- og alifuglarækt.

VI. kaflinn er um hundarækt. Þessi kafli er ekki í gildandi lögum, en í honum er gert ráð fyrir, að Búnaðarfélag Íslands hafi forgöngu um, að tekin sé upp ræktun hreinkynja fjárhunda, annaðhvort á sérstökum búum eða hjá einstaklingum, sem vildu sinna þessu verkefni.

VII. kaflinn er enn fremur nýr, en hann er um loðdýrarækt, þar sem loðdýra- eða minkarækt er aftur hafin í landinu og vonazt er eftir því, að minkarækt verði arðgæf búgrein. Þó að ekki hafi tekizt vel til fram að þessu, þykir rétt að hafa ákvæði um leiðbeiningaþjónustu við þessa búgrein í búfjárræktarlögum, enda hefur stjórn samtaka loðdýraræktenda farið þess á leit við Búnaðarfélagið, að það ráði sérfræðing í minkarækt til leiðbeininga, a. m. k. einhvern hluta ársins.

VIII. kaflinn er um æðarrækt. Hann er líka nýr. Þó hefur það verið um nokkurra ára skeið, að Búnaðarfélag Íslands hefur veitt æðarræktarbændum, nokkrar leiðbeiningar um ræktun og hirðingu æðarvarps og myndun nýrra varpstöðva. Áður fyrr hafði félagið æðarræktarráðunaut í sinni þjónustu. Nú hafa flestir æðarræktarbændur landsins bundizt samtökum um eflingu þessarar búgreinar og hafa óskað eftir leiðbeiningaþjónustu í auknum mæli hjá Búnaðarfélagi Íslands. Þykir eðlilegt að hafa heimild til þess í þessum lögum.

IX. kaflinn er um ræktun erlendra búfjárkynja og blöndun þeirra við innlent búfé, og er þessi kafli óbreyttur.

X. kaflinn er um forðagæzlu. Þessi kafli er efnislega óbreyttur að öðru leyti en því, að felld eru niður öll ákvæði varðandi stofnun og starfrækslu fóðurbirgðafélaga.

XI. kaflinn er svo almenn ákvæði og er um sæðingu annarra búfjártegunda en nautgripa og sauðfjár. Þessi ákvæði eru færð undir þennan kafla, þar sem lagt er til, að VI. kafli gildandi laga falli niður, og ákvæði um sæðingu nautgripa og sauðfjár tekin upp í II. og III. kafla frv., eins og áður hefur verið greint frá. 61. gr. er um útgáfu á reglum, sem móti stefnu Búnaðarfélags Íslands í ræktun einstakra búfjártegunda, svo og reglur um tilhögun sýninga og búfjárdóma. Tilgangurinn með þessu er, að stefna Búnaðarfélags Íslands á sviði búfjárræktar komi skýrt fram og sé kynnt sem flestum.

Landbn. er sammála um að leggja til, að þetta frv. verði samþ. með eftirfarandi breytingum.

Hv. þm. Eðvarð Sigurðsson var fjarstaddur við afgreiðslu málsins:

1. Við 2. gr. Í stað orðanna „nautgripa-,fjár“ komi : nautgripa-,sauðfjár.

2. Brtt. er við 4. gr., að 2. málsl. síðari málsgr. falli niður, þ. e. a. s. þessi málsliður: „Framlag ríkisins miðist við, að hver héraðsráðunautur starfi fyrir minnst 100 bændur.“ Þegar þetta frv. var samið, var miðað við það, að ráðunautafjöldi í hverju héraði gæti ekki verið nema einn á hverja 100 bændur. Þegar hv. landbn. Nd. fór að skoða frv. nánar og enn fremur jarðræktarlögin, sem voru samþ. á síðasta þingi, kom í ljós, að þetta ákvæði átti aðeins við ráðunauta í búfjárrækt. Ef þessi málsgr. væri hér inni, þá mundi hún ekki þrengja þetta ákvæði, eins og milliþn. og búnaðarþing ætluðust til, heldur hið gagnstæða. Þess vegna leggur n. til, að þessi málsl. falli niður.

Þá er næst 3. brtt., við 23. gr., að 2. málsgr. orðist svo: Afkvæmaverðlaun á atkvæmasýningunni: að hrútar: 1. verðlaun kr. 3 000, en var í frv. kr. 2 000, 2. verðlaun kr. 1 500, en var 1000, og 3. verðlaun kr. 600, en var kr. 400. b) ær: 1. verðlaun kr. 900, var kr. 600, og 2. verðl. kr. 400, er í frv. kr. 200. Enn fremur má veita heiðursverðlaun á hrúta allt að kr. 8 000, en í frv. var þetta kr. 4 000. — 5. málsl. 3. málsgr. orðist svo: Bezti atkvæmahópur 2500, en í frv. var þetta 2 000.

Í sambandi við þetta vil ég geta þess, að það er ákaflega mikil vinna, sem liggur á bak við svona sýningar, þar sem verður oft að tína einstaklinga kannske úr mörgum hreppum á svona sýningar. N. var sammála um, að til þess að tryggja, að svona sýningar gætu farið fram, þar sem verið er að leita eftir beztu einstaklingum, væri nauðsynlegt að örva þetta. N. hafði enn fremur samband við ráðunauta Búnaðarfélags Íslands í sauðfjárrækt, og mæltu þeir mjög með því, að þessi breyting yrði gerð á frv. Ég vil geta þess, að þarna er ekki um miklar fjárhæðir að ræða, gæti verið kannske 25–30 þús. kr. á ári.

Þá hef ég lýst þeim brtt., sem n. hefur orðið sammála um að leggja til.

Ég vil geta þess, herra forseti, að það hefur verið óskað eftir því, að n. athugaði frv. á milli 2. og 3. umr. í sambandi við 4. gr. og 36. gr. Einstakir nefndarmenn hafa athugað þetta, og geri ég ráð fyrir, að n. verði sammála um að flytja einhverja brtt. við 3. umr.