02.04.1973
Neðri deild: 74. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (2342)

54. mál, alþjóðasamningur um varnir gegn mengun sjávar

Frsm. (Garðar Sigurðsson) :

Herra forseti. Þetta frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd alþjóðasamning um varnir gegn mengun sjávar vegna losunar úrgangsefna frá skipum og flugvélum ætti að vera sérstakur aufúsugestur fyrir okkur Íslendinga. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa nokkur atriði, sem koma fram í upphafi samningsins og gefa til kynna, hvert efni samningsins er í höfuðatriðum eða hverja stefnu hann markar. Þar segir fyrst:

„Samningsaðilar, sem viðurkenna, að hafið og lifandi auðlindir þess hafi ómetanlega þýðingu fyrir allar þjóðir; sem gera sér ljóst, að jafnvægi náttúrunnar og lögmætum notum hafsins er ógnað í vaxandi mæli vegna mengunar; sem viðurkenna, að samvinna ríkisstj., sem nær til þjóða, vissra svæða og hnattarins alls, er þvingandi nauðsyn til að hindra og berjast gegn mengun hafsins; sem gera sér ljóst, að þessi mengun á sér ýmsar orsakir, m. a. losun úrgangsefna úr skipum og flugvélum og afrennsli fljóta, árósa, rennsli úr sorpleiðslum innan lögsögu einstakra ríkja og að mikilvægt sé, að ríkin geri viðeigandi ráðstafanir til að hindra slíka mengun, og þróa beri framleiðsluhætti og vörur á þann hátt, að skaðleg úrgangsefni, sem þarf að losna við, minnki; sem eru sannfærðir um, að alþjóðlegar ráðstafanir til að hafa stjórn á mengun hafsins vegna losunar skaðlegra efna frá skipum og flugvélum, eru gerlegar og verður að framkvæma án tafar, en að slíkar ráðstafanir komi á engan hátt í veg fyrir viðræður hið bráðasta um ráðstafanir, sem miða að því að takmarka aðrar orsakir mengunar hafsins; sem álíta, að ríkjum, sem liggja að norðaustanverðu Atlantshafi, beri sérstök skylda til að vernda hafið á þessu svæði:

Síðan kemur löng upptalning um atriði, sem þessir samningsaðilar eru sammála um, en ég mun ekki lesa það hér, það geta þm. sjálfir kynnt sér, en það var álit n. að mæla með því, að þetta frv. verði samþ. óbreytt. Ég vil enn fremur leggja áherzlu á það, að hver einstakur þm. og raunar sem flestir landsmenn vakni betur til meðvitundar um mengunarvarnir, þar sem mengunarvarnir eru nauðsynlegar, og um náttúruvernd almennt.