03.04.1973
Sameinað þing: 66. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3013 í B-deild Alþingistíðinda. (2386)
210. mál, sjónvarpsskilyrði á fiskimiðum
Flm. (Karvel Pálmason):
Herra forseti. Till. sú til þál. á þskj. 424, sem hér er til umr., er á þá leið, að Alþ. feli ríkisstj. að gera nú þegar ráðstafanir til, að bætt verði móttökuskilyrði sjónvarps á fiskimiðunum úti fyrir Vestfjörðum.
Það mun öllum vera ljóst, að sjónvarpið gegnir miklu og mikilvægu hlutverki meðal þjóðarinnar, og þó að á undaförnum árum hafi margt og mikið verið gert til þess að koma sjónvarpi til sem allra flestra landsmanna, þá skortir þó enn talsvert á, að allir njóti þeirrar sjálfsögðu þjónustu, sem sjónvarp er nú talið. Vart þarf að draga í efa, að allir munu sammála um það, að svo sjálfsagt sem það er, að allir, sem á þurru landi eru, geti notið sjónvarps, þá mun ekki síður mikilvægt að búa þannig um hnútana, að sjómenn, sem eru meginhluta úr árinu á hafi úti, fjarri sínum heimilum, eigi þess einnig kost að njóta þessarar sjálfsögðu þjónustu. Nú mun það vera svo, að því er ég bezt veit, að verst ástand mun vera að því er þetta varðar á miðunum úti fyrir Vestfjörðum. Í þessu sambandi er rétt að minna á, að enda þótt vestfirzkir sjómenn eigi þarna mikilla hagsmuna að gæta, að úr þessu verði bætt, þá er það svo, að mikinn hluta ársins eru sjómenn víðs vegar að af landinu á Vestfjarðarmiðum. Ástand þessara mála á umræddu svæði er nú svo, að sjónvarp sést vart út fyrir mitt Ísafjarðardjúp. Í athugun, sem póst- og símamálastjórnin lét gera á s. l. hausti um þetta mál, kemur fram að helzt er talið koma til greina, að reist verði endurvarpsstöð á Barða, sem er milli Önundarfjarðar og Dýrafjarðar. Talið er í þessari athugun, að stöð, sem þarna yrði sett, mundi auk þess að þjóna miðunum einnig leysa vandamál fyrir hluta af byggðinni á Ingjaldssandi, sem ekki nýtur nú sjónvarps. Það má því segja, að með þessari lausn, ef úr yrði, væru slegnar tvær flugur í einu höggi. Ég held, að ljóst sé af þeirri athugun, sem póst- og símamálastjórnin gerði, að þar sé um svo smáar fjárupphæðir að ræða, að vart sé orð á gerandi. Þessari athugun póst- og símamálastjórnarinnar fylgdi kostnaðaráætlun, sundurliðuð, og er hún sem hér segir: Tæki, lofnet, mastur og annar búnaður er áætlað á 1 millj. 435 þús. Bygging undirstaða og flutningar 1 millj. 350 þús. Rafmagn og sími 1 millj. Uppsetning masturs, loftneta og tækja er áætlað 250 þús. Og ófyrirséð er áætlað 465 þús. kr. Einnig kemur fram í þessari áætlun eða athugun, að ekki er gert ráð fyrir vegarlagningu á þetta svæði, heldur ráð fyrir því gert, að við uppsetningu, aðflutning efnis og viðhald, yrði notuð þyrla.
Mér sýnist ljóst mál af því, sem hér hefur verið sagt, að tvennt fari í raun og veru saman, þ. e. annars vegar að bæta þessa aðstöðu, þar sem hún er verst og tiltölulega litlu þurfi til að kosta í fjármunum, og eins og ég sagði áðan þá mun það a. m. k. að mínu mati — og ég hygg mun fleiri — vart vera áhorfsmál, að þetta beri að gera.
Ég tel ekki ástæðu, herra forseti, til að fjölyrða öllu frekar um þetta mál, nema því aðeins að tilefni gefist til. Ég vænti þess fastlega, að þetta sé svo augljóst mál öllum hv. þm., að vart þurfi um það fleiri orð að hafa. Ég tel, að hér sé svo sjálfsagt réttlætis- og nauðsynjamál á ferðinni, að ég treysti hv. þm., treysti á dómgreind þeirra, að þeir sjái sér fært að veita þessu máli jákvæða fyrirgreiðslu. Og ég treysti því, að sú hv. þingnefnd, sem kemur til með að fá þetta mál til meðferðar, sýni af sér röggsemi, — ef röggsemi þarf til, sem ég tel nú ekki vera, — að mál þetta fái afgreiðslu skjótlega úr n., þannig að það megi ná fram að ganda þegar á þessu þingi.
Ég vék að því áðan, að þarna væri um sjálfsagt nauðsynjamál að ræða, sem litlu væri til kostað, aðeins hluta af kostnaðarverði lítils trillubáts, þannig að ég held, að það þurfi ekki miklar vangaveltur yfir þessu að hafa, og ég treysti því sem sagt, að sú þingnefnd, sem þetta mál fær til meðferðar, afgreiði það skjótlega á jákvæðan hátt.
Ég vil svo að síðustu herra forseti, leyfa mér að leggja til, að umr. verði frestað og málinu vísað til allshn. Og ég vænti þess, að hún sýni af sér rögg og láti okkur sjá afgreiðslu á þessu máli nú innan nokkurra daga, þannig að við getum afgreitt það, áður en þing lýkur störfum.