04.04.1973
Efri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3021 í B-deild Alþingistíðinda. (2396)
222. mál, atvinnuleysistryggingar
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. Það er ekki langt síðan þessu frv. var útbýtt hér í d., og ég verð að játa, að mér hefur ekki gefizt tóm til að lesa það gaumgæfilega, enda ætla ég ekki að ræða frv. almennt. En við lauslega athugun hef ég tekið eftir því, að ein af þeim breytingum frá gildandi l., sem gera á samkv. þessu frv., er að víkka gildissvið l., enda tók hæstv. ráðh. það mjög skýrt fram í framsöguræðu sinni. Það er aðeins út af þessu atriði, sem mig langar til að segja örfá orð og þá helzt í fyrirspurnarformi, ef hæstv. ráðh. þætti hlýða að skýra þau atriði nánar við umr., en þá að öðrum kosti til athugunar fyrir þá n., sem fær málið í sínar hendur.
Eins og lögin hafa verið og eru nú, taka þau einungis til staða, þar sem íbúafjöldi er 300 manns eða fleiri. Þessi lína er mjög skýrt dregin, því að það fer auðvitað ekki milli mála í sambandi við íbúaskrá hvers byggðarlags, hver íbúafjöldinn er. Nú á að hverfa frá þessari reglu. Að sönnu hefur áður verið heimilt að láta ákvæði l. ná til staða með minni fólksfjölda, en nú á að lögbjóða það, að gildissvið l. taki til landsins alls. Þá sýnist mér við lauslega athugun, að af því leiði það, að í sumum greinum geti mörkin orðið óglögg, því að vissar undantekningar eru þó samkv. frv., t. d. um starfsemi bændanna.
Við framkvæmd l. er á aðra hlið verkalýðsfélög og félagsmenn þeirra. Ber ekki að skilja þessi ákvæði 4. gr. þannig, að þeir einstaklingar, þótt þeir stundi verkamannavinnu, sem eru ekki félagsbundnir í verkalýðsfélagi, njóti ekki réttar samkv. þessum l. og að skyldur sveitarfélags, bar sem ekkert verkalýðsfélag er starfandi, séu þá ekki heldur lögboðnar, t. d. komi greiðsluskylda sveitarfélags þá ekki heldur til greina í sveitarhreppi, þar sem ekkert verkalýðsfélag er starfandi? Hinn aðilinn í sambandi við framkvæmd þessara l. eru svo atvinnurekendur og að sönnu sveitarfélög og ríkissjóður, sem leggja framlög í sjóðinn og styðja þetta málefni á þann hátt. Það er tekið fram, að ákvæði l. nái til allra atvinnurekenda, innlendra og erlendra, sem reka atvinnu hér á landi. Þetta mun þá einnig ná til ríkisins sjálfs, þeirra framkvæmda. sem ríkið sjálft hefur á hendi, sveitarfélög og aðrir opinberir aðilar. Við opinberar framkvæmdir, þar sem kannske stórir flokkar vinna, svo sem við vegagerð og rafmagnsveitur og því um líkt, greiðir þá ríkisstofnunin, sem fyrir verkinu stendur, iðgjald vegna þeirra manna, sem þar eru við störf. Hvert sveitarfélag greiðir síðan á móti því fyrir þá einstaklinga, sem eiga lögheimili í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Ef þetta er ekki réttur skilningur, þá vildi ég gjarnan fá nánari skýringar á því. En þá kemur að undantekningunni: „Bændur eru þó ekki gjaldskyldir vegna vinnu, sem unnin er við búrekstur þeirra.“ Þá kemur í huga minn fyrst þessi spurning: Nær þessi undanþága til allrar vinnu, sem bóndinn lætur inna af hendi, t. d. húsbyggingar, ef hann ræður sér smið til þess að reisa hús á búi sínu, eða einungis þess, sem unnið er vegna búskaparins sjálfs, teknaöflunar innar á heimilinu?
Í öðru lagi kemur í huga minn þessi spurning: Í sveitunum starfa ræktunarsambönd, sem hafa á sínum vegum allmikinn vélakost og vinna að ýmiss konar verkefnum, — er sú vinna, sem ræktunarsamband innir af hendi fyrir bóndann, svo sem jarðrækt, undanþegin þessari gjaldskyldu eða ekki? Og ef ræktunarsamband lætur vinna að öðrum verkefnum, sem ekki snerta bóndann sjálfan, heldur kannske opinberar framkvæmdir að meira eða minna leyti, er þá sú vinna ekki gjaldskyld? Er þá sveitarsjóður skuldbundinn til þess að leggja fram fé samkvæmt 11. gr., jafnvel þótt ekkert verkalýðsfélag sé starfandi í hreppnum? Ég geri ráð fyrir því, að þeir, sem hafa reynslu af því að framkvæma lögin, eins og þau eru nú, hafi í huga, hvernig þetta hefur verið í framkvæmd, og auðvelt sé að svara þessu, en mér finnst eðlilegt, að þm. geri sér þessi atriði algerlega ljós, a. m. k. áður en frv. verður afgreitt frá deildinni.
Ég tók það fram, að ég ætlaði ekki að ræða málið almennt, en varpa þessum spurningum fram. Ef ráðherra telur hlýða og er viðbúinn því að skýra þessi atriði nánar, er það sjálfsagt æskilegt. Að öðrum kosti bið ég þá n., sem skoðar málið, að athuga þetta ofurlítið.