04.04.1973
Efri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3034 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)
69. mál, Hæstiréttur Íslands
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Ég gat þess áðan í ræðu minni, að kæmi fram skýr yfirlýsing frá hæstv. ráðh., dómsmrh. eða fjmrh., um, að frá því máli, sem brtt. mín snertir, verði efnislega gengið á þann veg, sem ég hef lagt til, mundi ég falla frá till. í tilefni af þessu kvaddi hæstv. fjmrh. sér hljóðs og lýsti því yfir, að von væri á frv. til l. um breyt. á l. um lífeyrissjóð opinberra starfsmanna, þar sem á máli þessu yrði tekið. Það er auðvitað gott og blessað, að von er á því frv., en það segir ekkert um það, sem ég gerði að aðalatriði varðandi þetta mál, þ. e. a. s. hvort sú breyting, sem þar er von á, taki til þeirrar stöðu, sem þetta frv. fjallar um. Um það kom ekkert fram í yfirlýsingu hæstv. ráðh. Verði þetta frv., sem hér er til umr. og afgreiðslu, samþ., áður en frv., sem hæstv. ráðh. gat um, verður afgreitt, sé ég ekki annað en um þá stöðu, sem hér er fjallað um, gildi þær fáránlegu reglur, sem nú gilda um réttindi hæstaréttardómara. Ég get því ekki tekið yfirlýsingu hæstv. ráðh. gilda, að hún sé fullnægjandi, til þess að ég falli frá brtt. minni, og komi ekkert frekar eða skýrar fram í því efni, mun ég halda fast við brtt. og óska eftir því, að um hana verði greidd atkv.