04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3037 í B-deild Alþingistíðinda. (2423)
124. mál, vátryggingarstarfsemi
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil leyfa mér að flytja brtt. við 59. gr., sem orðist svo: „Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1974“ — og jafnframt, að á eftir 59. gr. komi svo hljóðandi ákvæði til bráðabirgða: „Til undirbúnings framkvæmd l. skipar trmrh. 3 menn í n., og skulu þeir fullnægja sömu skilyrðum og í 2. málsgr. 38. gr. 1. greinir:
Eins og sjáanlegt er á þessu frv., er hér um mjög veigamiklar breytingar að ræða á vátryggingarstarfsemi. Þegar frv. þetta var lagt fyrir Alþ. í fyrra, tók ég undir mörg atriði, sem í frv. felast og eru mjög til bóta, því að sú löggjöf, sem fyrir var, var fyrir löngu orðin úrelt. En þessi atriði eru mjög viðamikil og þarfnast nokkurs undirbúnings, og því tel ég eðlilegt, að lögin öðlist ekki gildi fyrr en 1. jan. 1974. Þrátt fyrir það er full nauðsyn á því, að undirbúningur að framkvæmd l. hefjist strax, og því legg ég til í ákvæði til bráðabirgða, að trmrh. skipi 3 menn í n., sem skuli fullnægja sömu skilyrðum og segir í 2. málsl. 38. gr. Ég ræddi þessa brtt. rétt áðan við hæstv. trmrh. og skýrði honum frá, hvernig á henni stæði. Hann sagðist fyrir sitt leyti ekki hafa neitt á móti henni og sýndi skilning á því, að hér væri um vandasamt verk að ræða, sem þyrfti nokkurn undirbúning. Enn fremur ræddi ég áðan lauslega við formann heilbr.- og trn., sem tók sömu afstöðu til þessarar till. og hæstv. trmrh.