04.04.1973
Neðri deild: 75. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3059 í B-deild Alþingistíðinda. (2464)
3. mál, bygging og rekstur dagvistunarheimila
Ólafur G. Einarsson:
Herra forseti. Ég þarf að leiðrétta hv. 4. landsk. Ég var ekki að finna að störfum n., alls ekki. Ég var að finna að því, hvernig n. var skipuð. Það var ekki haft neitt samráð við sveitarfélögin í landinu, en hitt er mér kunnugt, að n. skrifaði sveitarfélögunum, og það er að sjálfsögðu þakkarvert. Þetta vildi ég leiðrétta.
Í sambandi við það, sem hv. þm. sagði, að afstaða Sambands íslenzkra sveitarfélaga byggðist á grundvallarmisskilningi, það vil ég ekki viðurkenna. Það hefur verið mótuð alveg ákveðin stefna hjá sveitarfélögunum varðandi verkefnaskiptinguna, og ég get ómögulega séð, að sú stefna þurfi að vera í andstöðu við þá stefnu, sem ég tel eðlilegt að væri hjá ríkisvaldinu. Ég nefndi hér áðan, að sveitarfélögin telja eðlilegt, að ríkisvaldið eitt hefði með höndum verkefni, sem vörðuðu alla landsmenn nokkurn veginn jafnt. Þetta verkefni verður ekki flokkað undir það, að það varði alla landsmenn jafnt. Það er fjöldi sveitarfélaga í landinu, og þá á ég að sjálfsögðu við sveitarhreppana, þar sem hvorki er þörf fyrir dagvistunarstofnanir né nokkur grundvöllur fyrir að reka þær. En með þessu framlagi ríkissjóðs taka íbúar þeirra sveitarfélaga að sjálfsögðu þátt í rekstri þessara heimila, sem eingöngu eru eða verða í þéttbýlum sveitarfélögum. Þannig sýnist mér, að þetta sé einmitt verkefni, sem fellur undir þá skoðun sveitarfélaganna í landinu, að það eigi að vera algerlega í höndum þeirra. Það er hins vegar grundvallaratriði, að þau hafi þá tekjustofna til þess að standa undir slíkum framkvæmdum.
Ég var ekki heldur að segja, að neitt frumkvæði væri tekið úr höndum sveitarfélaganna. Þau hafa það eftir sem áður. En ef þau ætla að njóta þessa styrks til byggingarframkvæmdanna, geta þau ekki hafið framkvæmdir fyrr en fé hefur verið veitt í fjárlögum og fyrir liggur skriflegt samþykki menntmrn. Það fer svo eftir ákvörðun Alþ. hverju sinni, hversu mikið fé verður veitt á fjárlögum til þessara mála, og það var það, sem ég átti við, þegar ég sagði, að þetta gæti orðið til þess að draga úr framkvæmdum.
Þá var einnig nefnt, að þessi styrkur ríkisins varðaði fleiri en sveitarfélögin, og það er alveg rétt, það gerir hann, og það þykir mér mjög gott ákvæði í þessu frv. En ég sé ekki, að það þurfi að verða nokkuð annað upp á teningnum. þótt ríkið taki ekki þátt í rekstrarkostnaðinum, heldur sveitarfélögin. Ég sé ekki annað en sveitarfélögin hlytu að styrkja slík heimili, þó að þau væru í eigu einkaaðila eða félagasamtaka. Ég sé ekkert á móti því, að sveitarfélögin styrktu slíkan rekstur, alveg eins og þau hljóta að greiða með þeim stofnunum, sem þau koma sjálf á fót.