01.11.1972
Efri deild: 9. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (260)
15. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Frsm. (Bjarni Guðbjörnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., er til staðfestingar á brbl., sem út voru gefin 30. ágúst s.l. Með reglugerðinni um stækkun fiskveiðilögsögunnar í 50 mílur, sem út var gefin 14. júli, þótti þurfa að kveða nokkru skýrar á um ákvæði, sem voru í gildi varðandi það mál, sem sem þetta frv. snertir. Meginefni þessara laga er að taka af allan vafa um, að þau lagaákvæði, sem áður giltu um 12 mílna svæðið, skuli nú gilda um hina nýju fiskveiðilögsögu, þ.e.a.s. um 50 mílna svæðið allt, og þær veiðar, sem áður voru háðar leyfum eða verða yfirleitt ekki stundaðar í fiskveiðilandhelginni nema með leyfum, verði einnig háðar leyfum áfram á öllu 50 mílna svæðinu. Þá er enn fremur gert ráð fyrir því, að veiðiheimildir óbreyttra skipa verði óbreyttar fram til ársloka 1972, en sú breyting var, sem kunnugt er, samþ. með lögum, er samþ. voru 18. des. s.l. á Alþ., enda er gert ráð fyrir því, að nýjar lagaheimildir um þetta efni verði komnar í gildi um áramótin, eins og kunnugt er. Frv. er sem sagt til þess að gera þau ákvæði, sem áður voru um þetta, skýrari og ótvíræðari, þannig að ekki valdi misskilningi.
Sjútvn. ræddi frv. á fundi sínum 25. okt. s.l. Brbl. þessi hafa verið í gildi nú um tveggja mánaða skeið, og engar aths., svo að vitað sé, hafa komið fram. N. leggur samhljóða til, að frv. verði samþ. óbreytt.