07.04.1973
Neðri deild: 80. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3156 í B-deild Alþingistíðinda. (2621)
236. mál, launaskattur
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Ég ætla aðeins að veita nokkrar upplýsingar um það atriði, sem hér hefur verið rætt.
Það er í fyrsta lagi, að lögskráningarskyldan er miðuð við 6 rúmlestir, en ekki 12, og hefur verið þannig í langan tíma. Auk þess er það, að hér er um launaskatt að ræða, og hann er aðeins greiddur af launum þeirra, sem vinna hjá öðrum. Það er ekki innheimtur launaskattur af þeim, sem vinna hjá sjálfum sér á smæstu bátum. En séu þeir hlutaráðnir á þessum bátum hjá öðrum, er greiddur af þeim launaskattur. Ég tel engan vafa leika á því, að það er ekki samkvæmt þessu heimilt að innheimta launaskatt af þeim, sem eru lögskráðir á fiskiskipin, hvort sem þeir starfa einvörðungu í landi eða á sjó, en þá, sem eru ráðnir á fastan aflahlut, ber skylda til þess að lögskrá. Undan því verður ekki vikizt, nema með því að brjóta lög. Hins vegar er það rétt, að það er algengt, að það starfi við skip menn í landi, sem ekki eru lögskráðir á skipin, en þá eru þeir ráðnir upp á önnur launakjör. Það hefur ekki verið gert samkomulag um það að sleppa útgerðinni við að borga launaskatt af þeim. Hér er aðeins um það að ræða, af hverjum útgerðin sjálf á að sleppa við að borga launaskatt, og hún hefur aftur gert samninga á þessum grundvelli.
Ég tel hins vegar alveg sjálfsagt, að þetta mál sé athugað í n., og ef þarna ber eitthvað á milli, sem verður að teljast, að óeðlilega sé fallið niður, þá sé það leiðrétt. Ég vænti, að frv. sé í fullu samræmi við kröfur útvegsmanna í þessum efnum, sem gengið var að, að hér sé aðeins verið að lögfesta það, sem þeir gerðu kröfur um. En sé þarna um það að ræða, að eitthvað falli niður á milli, er sjálfsagt að athuga það. En ég held sem sagt, að það sé ekki ástæða fyrir þeim ótta, sem hér kom upp, af því að framkvæmdin sé hér önnur en gert var ráð fyrir.