07.04.1973
Neðri deild: 81. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3167 í B-deild Alþingistíðinda. (2628)
169. mál, heilbrigðisþjónusta
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Frsm. heilbr. og trn., Jón Skaftason, hefur nú gert nokkra grein fyrir afstöðu n. í heild til þessa veigamikla máls, og hygg ég, að sú grg. hafi verið í öllum meginatriðum rétt. Það er enginn vafi á því, að þetta frv., sem hér er til afgreiðslu, er með meiri háttar frv., sem upp hafa komið á þessu löggjafarþingi. Það er þess vegna ákaflega mikilvægt, að smíðin sé vönduð. Þetta frv. hefur vissulega legið frammi, það var kynnt á síðasta þingi, þannig að þingheimur allur hefði átt að geta rýnt í frv. En þrátt fyrir það að frv. hafi sjálft, að mínu viti, horft til mikilla bóta með nál. — þar eru ýmsar veigamiklar og góðar breytingar — vil ég ekki leyna þeirri skoðun minni, að ég tel ýmsu ábótavant í frv., enda kemur fram í nál., að einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja frekari brtt. Er ætlunin fyrir 3. umr., að n. komi saman og kanni samstöðu sína um brtt., ef ekki tekst samstaða, beri einstakir nm. fram sérstakar brtt.
Ég mun sjálfsagt taka til máls við 3. umr. og fara þá kannske út í einstök atriði, þannig að ég skal ekki vera langorður að sinni. Ég ætla þó að víkja að nokkrum heildaratriðum í frv., sem ég tel, að hefðu mátt betur fara.
Í fyrsta lagi kemur mönnum nokkuð á óvart, að þegar lagður er fram lagabálkur af þessu tagi, skuli hvergi koma fram nein kostnaðaráætlun. Hér er þó lagt til að byggja upp nýtt heilsugæzlukerfi á öllu landinu, og til þess þarf mikið fjármagn. Því hefði verið eðlilegt, að fram hefði komið með frv. a.m.k. nokkur heildaráætlun um þennan kostnað. Landlæknir, Ólafur Ólafsson, hefur ásamt Einari Sverrissyni gert nokkra áætlun af þessu tagi, og niðurstaðan er sú, að stofnkostnaður við byggingu og búnað heilsugæzlustöðva utan Reykjavíkur, ásamt íbúðum fyrir lækna og hjúkrunarkonur, muni nema um 1.500 millj. kr., og þar af greiðir ríkissjóður 85%. Síðan segir orðrétt í nál., með leyfi forseta:
„Hér við bætist svo aukabúnaður og byggingar þeirra stöðva, þar sem fleiri en tveir læknar sitja, en þær eru alls 9 fyrir utan Reykjavík. Hér er ekki reiknaður neinn kostnaður vegna bygginga á Reykjavíkursvæðinu“.
Hér hefur líka komið til sá kostnaður, að ljósmæður eiga að vera einn aðili að heilsugæzlustöðvunum, þannig að þá myndast aukinn stofnkostnaður.
Ég held, að þegar maður horfir á þetta raunsætt, sé varla um að ræða minni upphæð en 2—3 milljarða kr., og hefði farið vel á því, að verið hefði í þessu frv. einhver stefnumótun um, hve hröð þessi uppbygging heilsugæzlu stöðva og heilbrigðisþjónustunnar ætti að vera En eðlilega kemur þetta síðar til kasta Alþ Þetta er kannske ekki mergurinn málsins, þó að þessu sé vissulega áhótavant.
En ef við lítum hins vegar á heildarkaflana í frv., er ýmislegt, sem ég er ekki alls kostar ánægður með. Fyrst er kaflinn um yfirstjórn, og hefur þar verið bitbein verkaskiptingar ráðuneytisstjóra annars vegar og landlæknis hins vegar. Þetta hefur verið fært til betri vegar að nokkru leyti með till. frá n., en engu að síður er ég ekki ánægður, því að mér finnst, að það sé dálítið klúðurslegt. Að vísu komu fram rök hjá hv. frsm. n. um, að það hefði orðið samkomulag milli núv. landlæknis og rn. um verkaskiptinguna. En er ekki svo, að það sé löggjafans að ganga svo tryggilega frá þessum málum, að ekki komi til árekstra? Við vitum, að persónuleg fyrirheit starfsmanna um þessi atriði varða ekki miklu, þegar út í hinn gráa hversdagsleika er komið. Ef lögin ganga ekki tryggilega frá þessum hlutum, geta komið upp ýmis konar vandræði, þannig að ég hygg, að löggjafinn hljóti nú að láta sig nokkru varða, að hér sé tryggilega búið um hnútana.
Frsm. minntist á 6. gr. sérstaklega, en þar er kveðið á um deildaskiptingu rn. Nú hygg ég, að það sé þannig, að deildaskipting rn. eigi varla heima í þessum lögum. Ég hygg, að það sé fyrst og fremst reglugerðaratriði, hvernig ráðh. rekur sitt rn., þannig að ég hygg, að heppilegast væri, að 6. gr. færi út, því að ég fæ ekki betur séð en 6. gr. bindi nokkuð verkaskiptingu landlæknis og ráðuneytisstjóra. Sýnt er a.m.k., að undir ráðuneytisstjóra eiga að heyra þessar deildir, sem eiga að fara með heilbrigðiseftirlit og heilsugæzlu. Það er einmitt að verulegu leyti verkefni landlæknis. Það er eins og sjálft valdið eigi að liggja í rn., en síðan á landlæknir að róa einn á báti með eftirlitið. Ég hygg, að það sé í reynd miklu betra, að heilbrigðiseftirlitið sé starfandi stofnun undir landlækni, en ekki að allt starfslið og vald sé í rn. Ég held, að það sé miklu betra að hafa hreint bú og það leiðir af sjálfu sér, þegar svona er um búið, að það hljóta að koma upp einhvers konar árekstrar, hversu velviljaðir sem einstaklingarnir eiga að vera, sem kunna að hafa þetta með höndum. Úr því að landlæknir á að vera ráðunautur ráðh. eða ráðgjafi um fagleg mál, heilbrigðismál, hvers vegna er þá í 5. gr. sett upp ráðgjafarnefnd um heilbrigðismál, og þar kemur landlæknir hvergi nærri? Ráðuneytisstjórinn er formaður n. Er það ekki einmitt landlæknis að vera ráðunautur um þessi mál?
Mér sýnist ýmislegt í yfirstjórninni vera komið þannig, að hlutur landlæknis átti að vera mjög rýr í upphafi, og leifar af því komi fram í þessum frv.gr. Þess vegna hygg ég, að það hefði verið miklu betra að hafa þarna hreint bú, a.m.k. met ég þetta þannig, að þetta kunni að leiða til árekstra. Ekki fleiri orð um það, en væntanlega mun ég bera fram einhverjar brtt. um yfirstjórnina.
II. kaflinn um læknishéruð olli miklum heilabrotum, og sá kostur var valinn að fresta gildistöku þessa kafla, eins og segir í ákvæði til bráðabirgða: II. kafli l. og gr. 20 taka ekki gildi fyrr en Alþ. ákveður. Þetta er náttúrlega til bóta. Hins vegar get ég ekki fallizt á þá umdæmis- eða svæðislæknaskiptingu, sem hér er gert ráð fyrir. Ég hygg, að það hljóti að vera heppilegast fyrir framtíðina að hafa ákveðnar stjórnunareiningar í landinu, sem eru augljóslega að rísa upp, og það eru kjördæmin. Grunnskólafrv. gerir ráð fyrir fræðslustjórum, sem miðast við kjördæmin. Það er verið að koma upp landshlutaeiningum eða stjórnum, sem miðast við kjördæmin. Það er verið að koma upp og á að koma upp væntanlega efnahagslegum einingum, sem falla undir landshlutasamtökin. Ég tel, að þetta sé sú stjórnunareining, sem eigi að koma upp, og þá hljóti að vera heppilegast, að heilbrigðisþjónustan falli undir sömu einingu og fræðslumál, atvinnumál o.s.frv. Ég fæ t.d. ekki séð, að það geti verið heppilegt, að eitt umdæmi læknis nái yfir 3 kjördæmi eða t.d. frá Suðurlandi yfir allt Vesturland og alla leið yfir á Vestfirði. Þetta hlýtur að vera afskaplega óheppilegt, eftir að landshlutasamtökin eru komin á. Þá eru kannske þrjú landshlutasamtök aðilar að heilbrigðisþjónustunni á einu svæði, þannig að ég fæ ekki séð, að þetta sé heppileg skipting. Nú á að fresta þessu, en engu að síður samþykkja þessa svæðaskiptingu. Ég er dálítið hræddur um, að það gæti leitt til þess, að þessari svæðaskiptingu væri smeygt bakdyramegin, ef svo mætti segja, inn í þetta, þannig að ég er ekki með þessari svæðaskiptingu. Ég tel lang eðlilegast, eins og ég hef sagt áður, að kjördæmin verði þær einingar, em fara með þessi mál eins og fræðslumál, atvinnumál o. s. frv.
Um heilsugæzlustöðvarnar er það að segja, að ég hefði talið heppilegt — en ég mun ekki bera fram neinar brtt. um það efni, — að það hefðu verið settar í reglugerð heimildir til ráðh. að framkvæma eða ráða nokkuð um, hvar heilsugæzlustöðvar yrðu settar, þannig að ráðh. hefði nokkurt svigrúm um það eftir aðstöðu hverju sinni, hvar heilsugæzlustöðvar væru. En þá yrði að fylgja sú klásúla, sem frá mínum bæjardyrum séð er alger forsenda þess, að ég styðji þetta frv., að það komi fram, að þau héruð, sem hafa farið á mis við heilsugæzluþjónustu, þ.e.a.s. læknislausu héruðin, hafi forgang um heilsugæzlustöðvar, og það merkir að sjálfsögðu svæði eins og Vestfirði, Norðausturland og Austfirði. Ef þetta ákvæði, sem hv. frsm. minntist á hér áður, verður ekki sett inn í þessi lög, treysti ég mér ekki til þess að styðja þetta frv., því að þá spyr ég bara: Til hvers eru þessi lög? Þetta tel ég grundvallaratriði og forsendu. Ef þetta forgangsákvæði fyrir þessi héruð væri sett inn, hygg ég, að margir þm. gætu sætt sig við það, að ráðuneytið, heilbrmrn., hefði dálítið svigrúm um, hvar aðrar heilsugæzlustöðvar ættu að vera, eða gæti ráðið því. Þá yrði ekki sá ótti þm. fyrir hendi, að þeirra eigin héruð færu á mis við heilsugæzlustöðvarnar, eða a.m.k. síðar. Ég tel heppilegt, að hér sé dálítill sveigjanleiki, og sums staðar á landinu, þar sem læknisþjónusta hefur verið góð með héraðslæknum, hví ekki að láta það kerfi haldast um skeið? Að vísu mun það vera unnt samkv. lagafrv., en hér er dálítið sterklega settar niður og lögbundnar 38 heilsugæzlustöðvar. En ég er þeirrar skoðunar, að þessi tvö kerfi, heilsugæzlustöðvarnar og svo einstakir héraðslæknar, megi um nokkuð langt skeið starfa samhliða, ef svo mætti segja. Það væri öllum til hagsbóta, því að hvers vegna ætti t.d. að leggja niður læknishéruð, þar sem íbúar eru harla ánægðir með læknaþjónustu? Þetta er dálítið viðurhlutamikið. En ég er á þeirri skoðun, að heppilegast hefði verið að setja þetta inn í reglugerð og veita rn. nokkurt svigrúm um þessi atriði. Það er hin eðlilegasta framkvæmd þessara hluta. En ég mun að sjálfsögðu ekki koma fram með brtt. um það, því að mér skilst, að það vilji mikill meiri hl. þm. binda þetta í lögum, og ég sé ekki ástæðu til þess að fara að setja mig upp á móti því, úr því að það er vilji meiri hl. En ég endurtek, að ég er ekki reiðubúinn að styðja þetta frv., nema það komi skýrt ákvæði um forgang heilsugæzlustöðva fyrir þau byggðarlög, sem hafa verið læknislaus eða illa sett með lækna á undanförnum árum, því að til þess er þetta frv.
Ég skal nú ekki að öðru leyti fjalla meira um þetta. Ég mun e.t.v. víkja að einstökum liðum síðar meir, við 3. umr. Ég hygg þó, að menn geti af máli mínu séð, að það er sumt, sem ég tel miður farið í frv., en ég tel það líka ábyrgðarhluta að bregða fæti fyrir það, ef það gæti hugsanlega leyst þann mikla vanda, sem fólk hefur búið við í fásinninu hvað varðar læknisþjónustu. Til þess vil ég ekki verða. Hins vegar leiðir það kannske til þess, að þetta frv. verður með töluvert öðrum hætti en ég hefði kosið.