01.11.1972
Neðri deild: 9. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (263)
34. mál, almannatryggingar
Flm. (Pétur Pétursson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að endurflytja hér frv. á þskj. 36 um breyt. á l. við almannatryggingar, sem ég flutti á síðasta þingi. Þá var afgreiðsla þessa máls með þeim hætti, að heilbr: og félmn. skilaði séráliti, þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Með hliðsjón af því, að n., sem vinnur að endurskoðun tryggingalaganna, hefur óskað þess að fá málið til athugunar í sambandi við heildarendurskoðun laganna, leggur heilbr.- og félmn. til. að frv. verði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að það fái jákvæða afgreiðslu í endurskoðunarnefndinni.“
Nú veit ég ekki, hvar þetta mál stendur eða hvernig endurskoðunarnefndinni gengur að koma saman þessari endurskoðun. En mér sýnist þetta mál vera þannig vaxið, að þurfi ekki endilega að bíða eftir allsherjarendurskoðun tryggingalaganna. Mér finnst þetta vera sjálfstætt mál, sem hægt væri að afgreiða, ef hv. Alþ. sýndist svo.
Það er nú ekki eins og það sé verið að flytja þetta mál í fyrsta skipti nú eða í fyrra. Þetta hefur verið flutt árum saman af hæstv. utanrrh., Alfreð Gíslasyni lækni og kannske einhverjum fleirum, en þá í því formi, að allar tannlækningar skyldu falla undir tryggingalöggjöfina. Það er auðvitað endamarkið. En ég hef valið þá leið að leggja til, að þetta verði gert í áföngum, þ.e.a.s. að viðgerðir tanna yrðu á vegum sjúkrasamlaga til 20 ára aldurs, að svo miklu leyti sem það er ekki nú á vegum sveitarsjóða og ríkissjóðs. En það er langt frá því, að sú aðstoð, sem nú er veitt í skólum, nái til nema hluta fólks, sem hér kæmi undir.
Ég heyrði það í fyrra á hv. þm., að þeir höfðu mjög margir mikinn áhuga á þessu máli og töldu, eins og rétt er, að tannlækningar eigi að flokkast með öðrum sjúkdómum. Á þessu er vitaskuld ekki minnsti vafi. Það er jafnnauðsynlegt, að gert sé við tennur í börnum og unglingum, eins og hver önnur heilsugæzla. Og við verðum líka að muna það, að ýmsir sjúkdómar verða bókstaflega til vegna skemmdra tanna, að því er fróðir menn telja. Við þetta bætist svo það, að hópur fólks í þessu landi hefur bókstaflega ekki efni á því að láta gera við tennur í börnum sínum eða unglingum, því að þetta eru ekki sérlega ódýrar aðgerðir.
Ég hef nokkuð rætt við tannlækna í sambandi við þetta mál, og ég finn, að þeir hafa í raun og veru áhuga á því, að að þessu máli sé unnið, ýmsir hverjir a.m.k. Ég er ekki viss um, að það séu allir, en þeir, sem ég hef rætt við, hafa látið að því liggja, að þetta hljóti að koma og sé alveg sjálfsagt mál.
Í ýmsum löndum eru allar tannlækningar, aðrar en gullaðgerðir, — greiddar af opinberum aðilum, og þannig þarf það auðvitað að verða hér. En það er kannske heldur langt farið í einu stökki.
Ég vil meta undirtektir hv. þm, í fyrra þannig, að þeir telji það í raun og veru eðlilegt, að tannviðgerðir komi undir tryggingalöggjöfina eða sjúkrasamlögin. Ef það er skoðun hv. þm., þá finnst mér, að það eigi að taka á þessu máli í einhverri veru strax. Ég sé ekki, að það þurfi endilega að bíða eftir þessari endurskoðunarnefnd, sem við vitum ekki, hvenær skilar sínu áliti, heldur taka þennan þátt hreinlega út og vita, hvort ekki er hægt að viðurkenna það, að tannsjúkdómar eru rétt eins alvarlegir og aðrir sjúkdómar og þurfa þess vegna einnig aðstoðar við.
Ég vil, herra forseti, leggja til. að eftir þessa umr. verði frv. vísað til heilbr: og trn.