07.04.1973
Neðri deild: 81. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3178 í B-deild Alþingistíðinda. (2632)

169. mál, heilbrigðisþjónusta

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Ég ætla að leyfa mér að fara örfáum orðum um þetta frv. í framhaldi af því, sem ég sagði við 1. umr. þess.

Frv. þetta var lagt fram til kynningar á síðasta þingi ásamt ítarlegri grg. Mönnum hefur því gefizt kostur á að kynna sér ákvæði þess nokkuð s.l. sumar og allt fram til þessa dags. Sannleikurinn er og sá, að fjölmargar athugasemdir hafa borizt við einstök ákvæði frv. allt fram á þessa stund. Það er ekki óeðlilegt, þar sem frv. er mjög fjölþætt og margs að gæta og varðar auk þess hag og heill hvers manns í landinu. Það er ekkert vafamál, að frv. hefur að geyma fjölmörg nýmæli, sem horfa til bóta, og það er ekki mín ætlan að bregða fæti fyrir þetta frv. Á hinn bóginn er einnig augljóst mál, að það hefur mikinn kostnað í för með sér, sem ekki hefur verið mældur né tíundaður enn. Hann er áreiðanlega mikill. Í grg. er sagt, að á frv. hafi verið gerðar veigamiklar breytingar frá því, að það var lagt fram í fyrra, einkum 2. og 3. kafla þess, um læknishéruð og heilsugæzlu. Ég ætla ekki að fara út í þessa þætti málsins mjög nákvæmlega. Þó vil ég geta þess, að hv. 8. landsk. þm. flutti ásamt mér á síðasta þingi brtt. við frv. það, sem þá var lagt fram, um sérstaka heilsugæzlustöð í Búðardal. Það má segja, að þetta frv., eins og það er nú úr garði gert, gangi til móts við þær óskir, sem við settum fram í þeirri brtt. Hvort gengið er nógu langt í því efni skal, ósagt látið. Við munum athuga það nánar, hvort gengið er nægilega langt til móts við óskir heimamanna, einkum þegar þess er gætt, að aðalþyrnir í augum Búðardalslækna, a.m.k. á síðari árum, hefur verið sá að þurfa jafnframt að gegna erfiðu læknishéraði vestan Gilsfjarðar. Um þetta atriði munum við fjalla nánar fyrir 3. umr. málsins, því að mér skilst, að það sé ætlunin að bera a.m.k. ekki brtt. undir atkv. við þessa umr. málsins, heldur geyma þær til 3. umr.

Þetta frv., eins og það lítur út, hefur að geyma fjölmörg nýmæli, eins og ég sagði áðan, og veigamestu nýmæli þess eru tíunduð og þeim lýst í grg. í 15 liðum. Þó að rík ástæða væri til þess að ræða ýmsa þætti málsins, ætla ég að takmarka mál mitt mjög, og þá aðallega við 2. kafla, um læknishéruð. Frsm. n. greindi frá því, hvernig n. hefði hagað störfum sínum, og að því er varðar þennan kafla hefur n. vissulega valið léttustu og auðveldustu leiðina, þ.e. að fresta framkvæmd hans. Að því er vikið í brtt. n., ákvæði til bráðabirgða, þar sem segir svo: „II. kafli laganna og gr. 20.1 taka ekki gildi fyrr en Alþingi ákveður. Meðan gildistöku þessara ákvæða er frestað, skal ráðherra skipa einn lækni í hverju heilsugæzluumdæmi til þess að gegna þeim embættisstörfum, sem tilgreind eru í II. kafla“. Ég verð að segja það, að ég er ekki alls kostar ánægður með þessa málsmeðferð n. Það er að vísu auðveld leið að fresta þeim ákvæðum, sem eru máske aðalásteytingarsteinarnir í þessu frv., en ég er ekki viss um að hún sé rétt. Enda er augljóst, þegar ákvæði til bráðabirgða er lesið, að það er þegar ætlazt til þess, að byrjað sé að framkvæma það, a.m.k. að nokkru leyti. þess vegna hef ég freistazt til þess, að varpa hér fram hugmynd, brtt. við 7. gr. frv. Það má segja, eins og ég held að síðasti hv. ræðumaður hafi tekið fram, að vissulega skorti einstaka þm. þá heildaryfirsýn yfir landið allt, sem nauðsynleg er í þessum efnum. Það er því ekki óeðlilegt, að hver og einn líti nokkuð á ákvæði frv. af sínum sjónarhóli og síns kjördæmis. Þegar að því kemur að hreyfa til ákvæði 7. gr., verður það ekki gert, að því er Vesturland snertir, nema koma nokkuð við nágrannahéruðin. Þess vegna vil ég biðja þá hv. þm., sem þar eiga hlut að máli, að íhuga þessa hugmynd og athuga, hvort þeir geti orðið henni að einhverju leyti samþykkir.

Ég vil þá leyfa mér að kynna þessa hugmynd við 7. gr. En hún er í fyrsta lagi fólgin í því, að 1. tölul. orðist svo: „Reykjavíkurhérað tekur yfir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Keflavíkur og Kópavogskaupstaðar og Gullbringu- og Kjósarsýslu. Aðsetur héraðslæknis í Reykjavík.“ — Mér er ljóst, að þarna getur þegar orðið ágreiningur milli Reykvíkinga og Reyknesinga, en það er þeirra mál. 2. tölul. orðist svo: „Vesturlandshérað tekur yfir svæðið frá Hvalfjarðarbotni að Kollafirði á Barðaströnd. Aðsetur héraðslæknis á Akranesi.“ Í þriðja lagi: Við greinina bætist nýr tölul., er verði 6 og orðist svo: „Suðurlandshérað tekur yfir svæðið frá Skeiðará að mörkum Gullbringu- og Kjósarsýslu. Aðsetur héraðslæknis á Selfossi.“ — Ég hef nú hreyft þessum hugmyndum og ætla að biðja hv. alþm. að taka þær til vinsamlegrar athugunar fram að 3. umr. málsins.