01.11.1972
Neðri deild: 9. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í B-deild Alþingistíðinda. (265)
47. mál, Iðnlánasjóður
Flm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Frv. þetta til 1. umr. um breyt. á l. um iðnlánasjóð er flutt í framhaldi af sams konar frv. til l., sem lá fyrir síðasta Alþ., þ.e.a.s. að auka framlögin til iðnlánasjóðs úr ríkissjóði. Þá var gert ráð fyrir, að árlegt framlag yrði hækkað úr 15 millj. í 25 millj., og var þá gerð grein fyrir því í frv., að sú hækkun væri til samræmis við verðbreytingar, sem orðið hefðu á almennum verkamannakauptöxtum í Reykjavík, en iðnlánasjóðsgjaldið hafði gjarnan fylgt þeirri breytingu. Var hugsunin með því sú, að ef þetta yrði hækkað úr 15 í 25 millj. kr., þá rýrnaði ekki verðgildi ríkissjóðsframlagsins, sem ella mundi verða. Nú er lagt til, að þetta framlag sé hækkað í 30 millj. kr., og er þá höfð hliðsjón af verðbreytingum, sem orðið hafa síðan þetta frv.-var undirbúið á haustinu 1971, og svo einnig hinu, að frv. náði ekki fram að ganga og missti því iðnlánasjóður af þeirri eðlilegu hækkun framlagsins á þessu ári, sem gert var ráð fyrir í till. okkar á s.l. ári.
Um leið og ég mæli nú fyrir þessu frv., vil ég fara nokkrum orðum almennt um þýðingu stofnlánasjóðsins og iðnlánasjóðs og annarra stofnlánasjóða og lánveitinga til iðnaðarins, sem iðnþróunin í landinu hlýtur að grundvallast á, ekki sízt vegna þess, að iðnþróun hefur verið gerð nokkuð að umtalsefni af talsmönnum hæstv. ríkisstj. að undanförnu.
Í stjórnarsáttmála ríkisstj. var gert ráð fyrir að semja iðnþróunaráætlun, og voru það ein af áformum þessarar ríkisstj. Í því fólst að sjálfsögðu engin stefnumótun ríkisstj. Það hafði þá verið undirbúið um langan tíma að semja iðnþróunaráætlun, og iðnþróunaráform höfðu verið gefin út í iðnrn. í maímánuði 1971. Þá hafði einnig, áður en núv. ríkisstj. tók við völdum, verið samið við fulltrúastofnanir Sameinuðu þjóðanna, iðnþróunarstofnun og viðskiptastofnun Sameinuðu þjóðanna, að vinna áfram að áætlunargerð um iðnþróun hér á landi, en samningar um þetta hófust um þetta atriði á árinu 1969. Það fólst þess vegna að sjálfsögðu ekki nein stefnumótun — engin ný a.m.k. —- í þessu ákvæði stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. Menn verða einnig að hafa í huga, að samning sérfræðinga á iðnþróunaráætlunum eða iðnþróunaráformum út af fyrir sig segir ekki til um það, að viðkomandi ríkisstj. eða stjórnvöld á hverjum tíma ætli að fylgja þessari áætlun. Það er ekki fyrr en iðnþróunaráætlun sérfræðinganna um hugsanlega valkosti og möguleika liggur fyrir, sem þau stjórnvöld, sem þá eru við völd, taka ákvörðun um, að hve miklu leyti slík iðnþróunaráætlun eða önnur áform skuli vera stýritæki og stefnumótandi um opinberar aðgerðir bæði stjórnvalda og löggjafarvalds. Þess vegna er það auðvitað hlálegt, þegar látin er út ganga mikil auglýsing um það frá hæstv. iðnrh. ekki alls fyrir löngu, að nú standi fyrir dyrum iðnbylting á Íslandi, af því að erlendir sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna eru hér samkv. eldri samningum, sem gerðir voru áður en ríkisstj. tók við völdum, í samráði við innlenda sérfræðinga að gera iðnþróunaráætlun um áratuginn fram til 1980. Það er ekki fyrr en hæstv. ríkisstj. hefur fengið þessa áætlun í hendur og tekið afstöðu til þess, hversu mikla eða litla áherzlu hún vill leggja á þær fræðilegu hugmyndir, sem þar koma fram, sem hægt er að tala um einhverja stefnumótun viðkomandi ríkisstj. Fyrr verður náttúrlega ekki talað um iðnbyltingu.
Ég vil leggja áherzlu á, að hv. þm. geri sér rétta grein fyrir slíkri áætlunargerð, bæði á sviði iðnaðar og öðrum sviðum, þar sem sérfræðingar vinna verkin. Hin pólitísku stjórnvöld taka síðan ákvarðanir um það, að hve miklu eða litlu leyti þær upplýsingar, sem í áætluninni felast, eru notaðar sem pólitískt stýritæki.
Í tíð fyrrv. ríkisstj. voru gerðar meiri kannanir á sviði iðnaðarins og iðnþróunar hér á landi en áður hafði tíðkazt. Þar voru gefnar út tvær mjög ítarlegar álitsgerðir um íslenzkan iðnað og EFTA, eða Fríverzlunarsamtök Evrópu, þróun íslenzks iðnaðar frá 1960, ástand og horfur, einkum með tilliti til aðildar Íslands að Fríverzlunarsamtökum Evrópu. Þessu var lokið 1969, en dr. Guðmundur Magnúss. próf. vann á vegum iðnrn. að þessari skýrslugerð, ítarlegri úttekt á iðnaðinum, í samráði við samtök iðnaðarins og einstök iðnfyrirtæki, eins og nánar kemur fram í þessari grg. Í framhaldi af henni og meðan verið var að undirbúa samningagerð við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna um frekarí áætlanagerð var unnið að iðnþróunaráformum fyrir áratuginn 1970–1980. Lá sú skýrslugerð fyrir í maímánuði 1971, og báðar þessar skýrslur, sem ég hef vitnað til, hljóta að verulegu leyti að vera grundvallarundirstaða þeirrar áætlunargerðar, sem aðrir sérfræðingar eru nú að vinna að. En iðnþróunaráætlun sérfræðinga mótast að verulegu leyti af því sama og iðnþróunaráform rn. frá 1971. Ég gerði grein fyrir því í inngangi þeirrar skýrslu, að það bæri að líta á hana til leiðbeiningar um ákvarðanir og úrlausnir á sviði iðnaðar á næstu árum. Ég sagði enn fremur, með leyfi hæstv. forseta:
„Ég hefði að vísu óskað, að frá rn. kæmi meira ákveðin stefnumörkun, en þá mundi hafa ráðið meira hinn pólitíski vilji. Sennilega fer bezt á því, að lagt sé fram fræðilegt rit, eins og hér er á ferðinni, sem vissulega eru sérhverju stjórnvaldi mikill fengur við ákvörðun mála.“
Slík áætlun stefnir eðli sínu samkv. ekki, eins og ég hef gert grein fyrir, að flokkspólitískum áhrifum, en hlutlausum upplýsingum til þess að auðvelda stefnumörkun þeim, sem um þessi mikilvægu vandamál eiga að fjalla á næstunni. Og ekkert síður hefur það mikla þýðingu fyrir hæstv. núv. ríkisstj., sem tók við völdum 1971, heldur en hverja aðra ríkisstj., sem tekið hefði við völdum að kosningum loknum.
Í upphafi þessarar skýrslu er skilgreining á verkefnum í skýrslunni og hvað iðnþróunaráform eru, og með leyfi hæstv. forseta vil ég mega taka hér upp nokkrar setningar úr því, en þar segir svo m.a.:
„Með mótun iðnþróunaráforma má annars vegar áætla, hvers sé að vænta af tilteknum framkvæmdum, og hins vegar fá hugmynd um, hvernig ná megi ákveðnu markmiði eftir tilgreindum leiðum. Megintilgangur þessarar ritsmíðar er: að huga að framvindu meginþátta iðnaðarins og þjóðarbúsins á undanförnum árum og stöðu iðnaðarins í þjóðhagslegu samhengi, að áætla vaxtarmöguleika íslenzks iðnaðar 1971–1974 og í útlínum fram til 1980, að áætla, hvert líklegt sé að stefni að öllu óbreyttu, að gera spá um framboð vinnuafls, fjármagns og orku, að fá fram samanburð við önnur lönd, þar sem ástæða þykir til, að athuga, hvaða tækifæri eru fyrir hendi til útflutningsaukningar og sveiflujöfnunar á útflutningi og hvernig ná megi tilteknum markmiðum í þessum efnum. Að fengnum þeim upplýsingum, sem að framan greinir, fæst betri yfirsýn yfir, hverju þarf að beita sér fyrir við skýringu á hagkerfinu. Með þessu móti er einnig fyllt í þekkingareyður, veikleikar á kerfinu og misræmi í tímaferli einstakra þátta koma betur í ljós“.
Þetta segir þar m.a. En um helztu rökin fyrir eflingu iðnaðar á Íslandi er m.a. svo til orða tekið, með leyfi hæstv. forseta:
„Í ritgerð þessari er litið á hagvöxt sem aðalmarkmið, þar sem jafnframt sé tekið tillit til tekju- og atvinnuöryggis. Aukin fjölhæfni útflutningsframleiðslunnar er leið að þessu markmiði. Með því að beina fjármagninu í sjávarútveg fengist væntanlega talsverð verðmætisaukning. En hætta er á, að sveiflurnar kringum meðaltalið yrðu verulegar, einkum vegna eftirtalinna atriða: Óvissa ríkir um sjálfan fiskistofninn, magn hans og gæði. Óvissa ríkir um verð sjávarvara á erlendum mörkuðum. Óvissa ríkir um viðbrögð núverandi keppinauta jafnt sem nýrra. Frekari vinnsla hráefnis veldur þrepaáhættu, þ.e. ef hráefnið bregzt, leggst vinnsla niður. Á móti þessu vegur, að með meiri fullvinnslu fæst stöðugra og hærra verð á hluta framleiðslunnar. Fullvinnslu eru hins vegar takmörk sett vegna þjónustuskyldu á slíkum mörkuðum“.
Þetta er einnig um það, hver séu rökin fyrir eflingu iðnaðar á Íslandi. Nú hef ég margsinnis heyrt bað tuggið upp aftur og aftur í blöðum stjórnarflokkanna og þá náttúrlega ekki sízt í blaði því, sem styður hæstv. iðnrh., að í þeirri iðnþróunaráætlun, sem nú sé verið að gera, sé brotíð blað og þar sé stefnt að allt öðru en verið hafi í tíð fyrrv. stjórnar. Fyrrv. stjórn hafi ekkert séð nema erlent fjármagn og viljað hyggja allan iðnað upp á erlendu fjármagni o.s.frv. Allt er þetta eintómur þvættingur, sem fær ekki staðizt, bæði vegna þess, að auðvitað verður iðnþróunaráætlun, sem unnið er að, ekki stefna ríkisstj. fyrr en ríkisstj, í heild er búin að taka afstöðu til einstakra þátta þeirrar áætlunar, þegar hún liggur fyrir. Enn fremur er hitt alger rangtúlkun á stefnu fyrrv. ríkisstj. Að þessu öllu er nánar vikið í þessum iðnþróunaráformum, en aðalatriðið er það, að fyrrv. ríkisstj. hafði ákveðna stefnumótun, sem ég skal gera nánar grein fyrir, áður en þessi iðnþróunaráform voru fram sett, sem sennilega hefði í öllum aðalatriðum gilt eftir það, en með þeim breytingum, sem iðnþróunaráformin gáfu tilefni til að gera. En það var einmitt að leggja aðaláherzlu á tvennt: létta iðnaðinn, hinn almenna iðnað í landinu, og hins vegar stóriðju — og svo að meta stóriðju annars vegar og aðrar atvinnugreinar hins vegar. Þess vegna var í öllum hugleiðingum og stefnumörkunum aðgreining á stóriðju og smáiðju. Með stóriðju er þá einkum átt við orkufrekan iðnað til útflutnings og með smáiðju allan léttan iðnað. En mörkin hljóta að sjálfsögðu að vera óskýr, eins og var margtekið fram. Ef reyna átti að ákveða kjörskiptingu fjármagns milli stóriðju annars vegar og smáiðju hins vegar, út frá okkar þróunarstigi og óskum um aukinn hagvöxt, stöðugri og hærri útflutningstekjur, samfara því, að allar fúsar hendur hefðu þarft verk að vinna, hlaut niðurstaðan að verða sú, að sækja bæri fram á sviði smáiðju og stóriðju samtímis. Þetta var ævinlega grundvallaratriðið í stefnumótun fyrrv. ríkisstj. Okkur var ljóst, að í þjóðfélaginu hefur verið, var og er enn auðvitað tregða til tilfærslu í atvinnulífinu og erlent fjármagn t.d. hefur tilhneigingu til þess að fara troðnar slóðir. Í raun og veru voru möguleikarnir til að skipta fjármagninu milli stóriðju og smáiðju og milli iðnaðarins og sjávarútvegsins ákaflega takmarkaðir. En við gerðum okkur grein fyrir því í tíð fyrrv. hæstv. ríkisstj., að spurningin var ekki „annaðhvort eða“, annaðhvort landbúnaður, sjávarútvegur eða iðnaður, heldur „bæði og“. Efla yrði jafnhliða þær atvinnugreinar, sem fyrir eru í landinu, og iðnaðinn, smáiðju og stóriðju, eftir því sem þætti hentast á hverjum tíma og miðað við þær rannsóknir, sem gerðar væru í það og það skiptið.
Nú er það fjölmargt, sem stuðlar að þeirri iðnþróun, sem verður óhjákvæmilega á næstu árum. Hvort sem núv. hæstv. ríkisstj. er það ljúft eða leitt, hlýtur hún óhjákvæmilega eðli málsins samkv. að grundvalla aðgerðir sínar að verulegu leyti á því, sem fyrir liggur í löggjöf um þessi atriði frá tíð fyrrv. ríkisstj. Þá voru t.d. sett lögin um útflutningslánasjóð og útflutnings- og samkeppnislán.
Þegar við erum að tala um iðnlánasjóðinn og eflingu hans, hefur einnig verið talað hér í d. um nauðsyn á auknum rekstrarlánum og veðtryggingu rekstrarlána. Það er út af fyrir sig mjög þörf löggjöf, sem sett var hér á síðasta þingi um veðtryggingu rekstrarlána. En menn mega ekki láta sér gleymast, að það var sannarlega búið að gera ýmsar aðgerðir til þess að auka rekstrarlán iðnaðarins á undanförnum árum, þegar menn eru að ræða mál eins og þessi. Tvisvar sinnum hafði lausaskuldum iðnaðarins, sem myndazt höfðu fyrst og fremst vegna lélegrar lánsfjáraðstöðu, og þá ekki sízt rekstrarlána, verið breytt í föst lán, löng lán. Var það 1964 í fyrra skiptið og 1968 í síðara skiptið. Heimildin til að breyta lausaskuldum í föst lán og löng lán nam 40 millj., sem hækkaðar voru um 20 millj. Allt það fjármagn var notað til þess að breyta lausaskuldum ósamningsbundnum í föst og lengri lán, og þetta var mjög hagkvæmt fyrir iðnaðinn.
Þegar gengisbreytingin varð 1968, var hún íðnaðinum ákaflega hagkvæm. Í umr. um efnahagsráðstafanir, sem þáv. ríkisstj. átti við stjórnarandstöðuflokka á því hausti, komu aðallega tvær leiðir til greina, svokölluð uppbótaleið eða uppbótakerfi eða gengisbreyting. Eins og menn muna, varð niðurstaðan sú, að samkomulag varð ekki milli stjórnar og stjórnarandstöðu um leiðir þær, sem fara bæri. En öllum var ljóst, að ef uppbótaleiðin var farin, þurfti að fara uppbótaleið fyrir iðnaðinn líka ekkert síður en sjávarútveginn vegna skekkjunnar á gengi krónunnar, sem hlaut beinlínis að draga algerlega úr öllum vexti iðnþróunar í landinu. Iðnaðurinn gat ekki á innlenda markaðnum staðizt samkeppni við erlendar vörur, sem fluttar yrðu inn með svo skekktri gengisskráningu sem þá hefði orðið, né heldur var nokkur möguleiki fyrir íslenzkan iðnað að ryðja sér braut á erlendum markaði með skakkt gengi. Gengisskráningin var miðuð við þarfir sjávarútvegsins, og það er rétt að viðurkenna það, að hefði hún aðeins verið miðuð við þarfir iðnaðarins, hefði hún ekki verið jafnmikil. Þess vegna var hún iðnaðinum alveg sérstaklega hagkvæm. En það komu fram vissir erfiðleikar hjá iðnaðinum í sambandi við fjármagn og rekstrarlán upp úr gengisbreytingunni. Þá var það, að í samningum við Seðlabankann gekkst ríkisstj. fyrir því, að aðstoðað var með aukningu rekstrarlána, allt að 150 millj. kr., sem gert var ráð fyrir, að iðnaðinum yrði aukalega séð fyrir á næsta ári eftir gengisbreytinguna. Annars háttar löggjöf var líka sett: um útflutningslánasjóðinn og tryggingu á útflutningslánum, tvenns konar löggjöf, og þá stofnaður útfl. lánasjóður upp á 150 millj. kr. til þess að veita iðnaðinum lán til útflutningsframleiðslu og jafnframt samkeppnislán til þess að keppa við erlendan iðnað hér á markaðnum. Vélar voru lánaðar til landsins með greiðslufresti. Til þess að íslenzkur iðnaður gæti framleitt sams konar vélar, þurfti hann að geta boðið sams konar greiðslufrest, og samkeppnislánunum var ætlað það hlutverk. Þannig var á mörgum sviðum ýtt undir iðnaðinn og ekki sízt með setningu laga um útflutningsmiðstöð iðnaðarins, en á undan hafði verið veitt fé á fjárl. til útflutningsskrifstofu iðnaðarins. Allt þetta hefur orðið til þess, að iðnaðurinn í útflutningsverðmæti hefur margfaldazt á liðnum árum, ekki sízt vegna aðildar okkar að Efnahagsbandalaginu og áhrifa, sem það hefur haft á aukningu útflutnings til annarra landa vegna þessarar löggjafar, sem ég hef vikið að.
En ég vil aðeins benda á, að það getur auðvitað verið mikið matsatriði sérfræðinga, þegar verið er að gera áætlanir um það, hvar á að setja mörkin, þegar verið er að áætla fram í tímann. Í iðnþróunaráformum, sem dr. Guðmundur Magnússon vann að, var m.a. áætlun um útflutning í atvinnuvegunum, bæði sjávarútvegi, landbúnaði og öðrum atvinnuvegum, — og iðnaði fyrst fram til ársins 1974, þá verða tollabreytingar, eins og kunnugt er, í sambandi við samninginn við Fríverzlunarsamtökin, og einnig fram til ársins 1980.
Nú hefur verið lögð mikil áherzla á það af hæstv. iðnrh., að árið 1980 muni útflutningsverðmæti okkar að 60% vera iðnaðarvara, og þá verður sjávarútvegurinn orðinn litli bróðirinn í þeim leik. Ekki veit ég, hvort þetta er stefnumörkun, — þ.e.a.s. ég veit, að þetta er ekki stefnumörkun ríkisstj., því að hún hefur ekki tekið afstöðu til þess. Menn þurfa náttúrlega að vera spámannlega vaxnir til þess að gera slík atriði að stefnumörkun. Hins vegar getur verið, að ríkisstj., þessi eða önnur, vilji reyna að ná þessu marki, nota fjármagn og beita fjármagni og skiptingu fjármagns milli atvinnuvega að því, að þessu marki verði náð. Sérfræðingum getur nokkuð sýnzt sitt hvað um þetta. Er gert ráð fyrir því hjá Guðmundi Magnússyni prófessor, að árið 1980 verði sjávarvörurnar 56% útflutningsins og ál og önnur orkufrek framleiðsla 32% og annar iðnaður, kísilgúr meðtalinn, 10%. Landbúnaðarvörur og aðrar vörur nema 2% af heildarútflutningnum. Þetta þýðir það, að þarna er gert ráð fyrir í spá fram til ársins 1980, að það kunni að verða 42% af útflutningnum iðnaðarvarningur og þar á meðal stóriðjuvarningur og hann langmesti hlutinn, þ.e. ál og önnur orkufrek framleiðsla. En sjávarútvegurinn verður samt sem áður stærsti útflytjandinn eða 56% á þessu tímabili. Það kemur greinilega fram í þessari grg. Guðmundar Magnússonar, að hér er afskaplega erfitt að spá og mikil óvissa, sem þessu er samfara. Hann gerir grein fyrir því, að ef þessi markmið eigi að nást, þurfi að koma til annar orkufrekur iðnaður, eins og ég sagði, og það er talað um ýmsa hluti. Það er talað um sjóefnaiðnað, saltframleiðslu, magnesíum o.fl., sem unnið hefur verið að og málmhræðslu, álsteypu og álbræðslu. Síðan koma ýmis önnur atriði til álita, sem eru fjarlægari og flokkuð í aðra flokka, eins og olíuhreinsun, lítil stöð eða stór stöð, þungavatnsframleiðsla í sambandi við heita vatnið og svo ýmislegt annað, sem ekki er komið í gagnið að neinu verulegu leyti. Það eru leirmunir, þaraþurrkstöð, niðursuða, hveitimylla, spónverksmiðja, stálbræðsla, perlusteinsvinna o.s.frv. frv Þetta eru möguleikar í smærri eða stærri stíl, sem geta komið til álita. En óvissan er náttúrlega verulega mikil, þegar spáð er fram í tímann um svona langt skeið.
Á sínum tíma var hv. þm. send þessi iðnþróunaráform, sem ég tel, að skipti miklu máli, að hv. þm. kynni sér rækilega, því að nú er það svo, að þegar maður spyr eftir iðnþróunaráætluninni nýju í stjórnarráðinu, þá er hún ekki sögð vera til, engin iðnþróunaráætlun til. Mér er sagt, að hún sé aðeins til í slitróttu formi á erlendri tungu í frumdrögum, sem búið er að tína saman, og það sé ekki gert ráð fyrir, að hún verði tilbúin úr höndum sérfræðinganna fyrr en einhvern tíma á næsta ári. Þá á hæstv. ríkisstj. eftir að fjalla um málið, og hvaða áhrif hefur hún þá á stjórnarstefnuna? Það er auðvitað greinilegt, að þessi iðnþróunaráætlun, sem nú er verið að vinna að í framhaldi af fyrri ráðagerðum með fulltrúum Sameinuðu þjóðanna og erlendum aðilum, hefur engin áhrif haft á fjárlög þessa árs og hlutfallaskiptingu milli atvinnuveganna í opinberum fjárveitingum til sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar. Við vorum ekki alls fyrir löngu á sýningu eða kynningu um íslenzkan útflutningsiðnað, og þar kemur í ljós, að framlög af opinberu fé útflutningsmíðstöðvar iðnaðarins og útflutningsmiðstöðvar íslenzkra iðnrekenda fara lækkandi í þessum fjárl. frá því, sem verið hefur. Voru þau komin upp í tæp 0.40/00 af fjárl. 1971, en eru núna í fjárlagafrv. 1973 aðeins 0.20/00. Það er að vísu rétt að gera sér grein fyrir því, að 25 millj. eru, held ég, í fjárl., en það geta verið aðrar tekjur, sem ætlaðar eru til Sölustofnunar lagmetisiðnaðar. Verð ég að segja, að mér finnst algerlega röng hlutfallaskipting í því, sem þeirri einu stofnun er ætlað miðað við útflutningsmiðstöðina, sem hefur það heildarverkefni að stuðla að auknum útflutningsiðnaði á Íslandi. Fram að þessu og sennilega í nánustu framtíð, a.m.k. alveg örugglega á þessu ári og kannske næsta ári líka, mundi slík stofnun gera lítið fram yfir það, sem aðrar stofnanir hefðu getað gert, sem unnu að lagmetisiðnaði og seldu hann út, eins og síldarverksmiðjurnar, Siglósíld o.s.frv. Hins vegar er þetta góðra gjalda vert, og það er vitað, að mikið fé þarf til þess að brjóta sér markaði erlendis fyrir útflutningsframleiðslu og ekki sízt á iðnvarningi, þar sem við erum í samkeppni við háiðnþróaðar þjóðir. Framlög til iðnaðarins í fjárl. eru ekki nema um 1% í fjárlagafrv. og fjárl. þessa árs. Það má segja, að það sé ekki ýkjamikill munur á sjávarútveginum, þó er framlagið þar helmingi meira, 2% og líðlega það. Það er fyrst, þegar kemur að landbúnaðinum, sem munurinn verður áberandi, en til hans eru á einn eða annan hátt veitt 13, 14 og upp í 16% af fjárl.
Nú hef ég alltaf lagt áherzlu á það, að menn væru ekki að metast um atvinnugreinarnar. Þetta háa hlutfall landbúnaðarins á sínar skiljanlegu orsakir. Ég tel, að það væri mjög hæpið að framkvæma breytingar á þessu með því að skera þær niður, því að það mundi valda slíkri truflun á þeirri þróun, sem á sér stað á sviði þess atvinnurekstrar. Hitt er eðlilegt, að sækja í auknum mæli upp og fram með hlutdeild iðnaðarins í fjárveitingum hins opinbera, bæði fjárfestingarsjóða, lánum banka og öðru slíku, og einnig á fjárl., enda væri alveg vonlaust að ætla sér einhverja iðnbyltingu eða eitthvað í líkingu við það hér á landi, ef það fylgdi ekki með.
Í tíð fyrrv. ríkisstj. voru meginatriði mótuð í iðnaðarstefnunni oftar en einu sinni. Kom það m.a. fram á árinu 1966, á fundi Félags ísl. iðnrekenda, þegar þáv. iðnrh. gerði grein fyrir stefnunni í samráði við starfsfélaga sína. Þar var m.a. rætt um stefnuna í stóriðjumálum, sem var auðvitað allt önnur en menn vilja nú vera láta, þar sem menn eru að tala um, að fyrrv. ríkisstj. og fulltrúar hennar hafi ekkert séð nema erlent fjármagn. Sú stefna var ákaflega skýr, og ég get varla ímyndað mér, að núv. hæstv. ríkisstj. komi til með að fylgja mikið annarri stefnu en þeirri, eftir því sem við höfum heyrt boðað. En hún er sú, með leyfi hæstv. forseta:
„Stefnt er að virkjun stórfljóta landsins, byggingu stórra orkuvera, sem verði grundvöllur og orkugjafi fjölþættrar iðnvæðingar í landinu. Orkuver landsins séu eign Íslendinga. En til þess að virkja megi í stórum stíl og undir lántöku verði risið, á sem hagkvæmastan hátt, er tryggi ódýrari raforku, og til þess að styrkari stoðum sé rennt undir atvinnulíf landsmanna,“ — það hefur heyrzt líka nú nýverið, að það væri verið að renna fleiri stoðum undir atvinnulíf landsmanna, — „til þess að styrkari stoðum sé rennt undir atvinnulíf landsmanna verði erlendu áhættufjármagni veitt aðild að stóriðju, ef hagkvæmt þykir samkv. mati hverju sinni og landsmenn brestur fjárhagslegt bolmagn eða aðstöðu til framkvæmdanna.“
Það var alltaf gert ráð fyrir því, að ef um fjármagn í stórum stíl væri um að ræða, kæmu ákvarðanir til álita þingsins hverju sinni. Það var síður en svo, að það þætti neitt sjálfsagt, að erlendir aðilar ættu meiri hluta í þeim orkufreku iðnfyrirtækjum, sem kynni að verða samið um að hefja mundu starfsemi hér á landi. Í sambandi við kísiliðjuna í Mývatnssveit á ríkið meira en helminginn í þeirri iðju, og sveitarfélögum á Norðurlandi var boðin miklu meiri þátttaka en þau kusu að velja sér. En minni hlutann á svo bandarískt fyrirtæki.
Um álbræðsluna hef ég margsinnis sagt, að þar stóð sérstaklega á, og það var mat okkar, að við slíka framleiðslu margra greina, allt frá því að báxítið er unnið úr jörðu, súrálið unnið, álið framleitt og loks framíeiðslan og salan á erlendum markaði, þar væri um slíka framleiðslu og framleiðni að ræða, að það væri ákaflega erfitt að vera aðill að bara einni grein þessarar framleiðslukeðju, eins og framleiðslu hráálsins. Þess vegna var niðurstaða okkar sú, eftir mjög ýtarlega athugun, að heppilegast væri, að erlendir aðilar ættu algerlega hlutaféð í álbræðslu, sem hér væri reist, og við miðuðum okkar hagnað við sölu raforku og framleiðslugjald. Framleiðslugjaldið er miðað við framleiðslumagnið á hverjum tíma, tiltekið magn á tonn. Eins og nú háttar og hefur háttað að undanförnu, fáum við Íslendingar verulega miklu meira í okkar hlut fyrir raforku frá þessari álbræðslu hér og framleiðslugjaldi, ef við miðum við tonn, heldur en hliðstæð verksmiðja, sem reist var í Húsnesi í Noregi og Alusuisse er aðíli að, en á ekki nema meiri hl. í og Norðmenn voru aðilar að vissu leyti sem minni hluti. Ég hef þess vegna alltaf lagt áherzlu á það, að menn verði að líta á, hvaða hag við höfum af erlendri stóriðju í mynd orkufreks iðnaðar, líta á í heild, hvað fæst fyrir raforku og í skatta og gjöld að öðru leyti.
Hæstv. iðnrh. kom frá Sviss í haust, eftir að hafa rætt við fyrirsvarsmenn Alusuisse um hugsanlega stækkun álbræðslu hér og byggingu nýrra álbræðslna. Stækkunin liggur náttúrlega í augum uppi, því að nýi keraskálinn er nokkrum metrum styttri en sá gamli, sem var lengdur. Hugsunin var alltaf að lengja þennan nýja keraskála, sem nú er tekinn í notkun, en vegna erfiðleika á markaðinum að undanförnu sýndist þeim ekki ráðlegt að gera það fyrr en síðar meir. Ég gæti vel hugsað mér, að það hljóti að verða mjög fljótlega, sem þeir hafa hug á því að lengja þennan keraskála, því að þetta er auðveld framkvæmd hjá þeim og ódýr, en samsvarar því að auka afköstin um 10 þús. tonn á ári, og verður þá hægt að selja þeim um 20 megawött af raforku.
Ég hef heyrt sagt, að ráðh. hafi haft fyrirvara um, að þeim verði ekki seld raforkan á hinu lága verði viðreisnarstjórnarinnar. Þarna erum við hæstv. ráðh. algerlega sammála, því að þeim var auðvitað sagt það, síðast þegar rætt var við þá af minni hálfu, að það gæti ekki komið til álita að selja þeim við þessa lengingu, þegar að henni kæmi, raforkuna við sama verði og samkv. raforkusamningnum. Þá var raforkuverðið miðað við það, að við fengjum töluvert miklu meira en kostnaðarverð rafm. Kostnaðarverðið á framleiðslu var þá talið vera um 20 aurar eða innan við 20 aura á kwst., en við seldum það fyrst á 26 aura og síðan á 22 aura eftir 6 ár. Þá breyttist einnig framleiðslugjaldið, en framleiðslugjaldið var lægra, meðan 26 aura verðið er greitt, en það var vegna óska Landsvirkjunar, að hún fengi hærra raforkuverð fyrst vegna erfiðleika á byrjunarstiginu. Fyrirsvarsmenn Landsvirkjunar lögðu mjög mikla áherzlu á, að af stækkuninni gæti orðið, þegar hún varð á fyrri keraskálanum, vegna þess að Landsvirkjun mundi á þessum fyrstu árum verða mjög mikið hagræði að því að geta selt þar 20 megawött í viðbót og með því verði, sem þá hafði áður verið samið um, því að annars væri það rafmagn fyrir hendi, en fengist ekkert fyrir það. Nú hefur hæstv. iðnrh. sagt, að hann hafi boðið erlendum fyrirtækjum raforkuna á 35 aura kwst., en samtímis hefur hann sagt, að áætlað framleiðslukostnaðarverð á rafmagninu frá Sigölduvirkjun, sem þá var verið að tala um, sé 35 aurar. Þá er raforkan boðin á framleiðslukostnaðarverði, og það er minna en fyrrv. ríkisstj. bauð raforkuna frá Búrfellsvirkjun. Ég sé á einum stað að vísu, að ráðh. gerir þar að auki ráð fyrir því að hafa eitthvað meira en framleiðslukostnaðarverðið, og þá er það alveg það sama, sem okkur fannst að við þyrftum að fá og teljum að hafi verið mjög hagkvæmt. Það mætti líka færa viss rök fyrir því, að þegar maður getur ekki notað raforkuna neitt, þá geti verið hagkvæmt að selja raforku, sem er fyrir hendi, en ekki er notuð, á framleiðslukostnaðarverði. Það er alveg rétt. En betra er auðvitað, ef það er meira en framleiðslukostnaðarverð, og hvað sem það er meira.
Þetta var stefnan í stóriðjumálunum, og mér sýnist, að henni sé fylgt alveg út í æsar, eftir þeim yfirlýsingum, sem gefnar eru. En ég vil aðvara um það að bjóða ekki raforkuna úr Sigölduvirkjun, áður en fullvist er, hvert kostnaðarverðið er, ef svo skyldi nú tiltakast, að það yrði meira en áætlað hefur verið, og hafa vaðið fyrir neðan sig um að hafa það eitthvað meira en kostnaðarverð, ef hægt er að ná samningum um það.
Í þessari stefnumótun var einnig lögð áherzla á jafnrétti milli aðalatvinnuvega landsmanna. Þá var varðandi iðnaðinn sérstaklega haft í huga að létta tollum af vélum og hráefnum iðnaðarins, eins og gert hefur verið, og haldið yrði áfram að efla iðnlánasjóð, og um það fjallar þetta frv., sem við leggjum hér fram. Síðan var lögð áherzla á að hefja nýjar iðngreinar í landinu, sem horfur væru á, að gætu staðizt erlenda samkeppni. Það er þjóðhagslega mikilvægt, að slíkar atvinnugreinar eflist, svo sem innlend skipasmíði, sem varð til hér á landi á s.l. áratug, — stálskipasmíðin, á ég við, — samfara eflingu úreltra dráttarbrauta og eflingu fiskiðnaðar, m.a. niðursuðu og niðurlagningar síldar til útflutnings. Það var einnig sett merk löggjöf í tíð fyrrv. ríkisstj. um rannsóknir í þágu iðnaðarins, bæði byggingariðnaðarins og iðnaðarins almennt. Nú eiga þessar tvær greinar iðnaðarins mjög góð og fullkomin rannsóknarhús uppi á Keldnaholti, hvor stofnunin um sig, og með því móti hefur skapazt alveg ný aðstaða fyrir þessar iðngreinar.
Ég skal ekki fara fleiri orðum að þessu sinni um iðnþróunarvandamál okkar og hlutverk, eðli iðnþróunaráætlana og iðnþróunaráforma. En ég fullyrði, að einmitt með þeirri úttekt, sem gerð hefur verið á íslenzkum iðnaði, og með þeirri þróun, sem þar hefur átt sér stað, hafi í tíð fyrrv. ríkisstj. verið búið mjög í haginn fyrir áframhaldandi iðnþróun. Þess vegna er það von mín, að þegar iðnþróunaráætlunin sem talað hefur verið um og gerð er í samráði við fulltrúa Sameinuðu þjóðanna, verður fullbúin, sé aðstaða í landinu til þess að nota hana sem stýritæki til eflingar, verulegrar eflingar, íslenzkum iðnaði. Þar kemur til álita einn merkasti þátturinn, hversu mikið aukið atvinnuöryggi er hægt að skapa með aukinni almennri iðnþróun í landinu, hvort sem er í stóriðju eða léttaiðnaði. Þó að við aukum fiskveiðarnar hjá okkur, er ekki talið líklegt, að miklu meiri mannafla þurfi á fiskiskipin, þó að bætt sé við nýjum skipum, því að menn af eldri skipum, sem ganga úr sér, koma til, og það er auðvitað stefnt að því að geta haft á nýju skipunum færri menn og meiri sjálfvirkni en fram til þessa. Hið sama gildir einnig á sviði landbúnaðarins. Þó að framleiðsluaukning sé þar, er líklegt, að fólkinu fjölgi ekki mikið í landbúnaðinum og að aukin framleiðniaukning þýði, að þó að framleiðslan aukizt, sé ekki veruleg eftirspurn eftir auknu vinnuafli. Hin aukna eftirspurn eftir vinnuafli mundi þess vegna í mjög ríkum mæli byggjast á iðnþróun í landinu og aukinni þörf fyrir mannafla í þjónustugreinum. Þannig hefur þróunin verið í hinum iðnþróuðu löndum, eftir því sem við bezt þekkjum til.
Að lokum vil ég segja það, að við megum ekki láta það henda okkur að efla ekki iðnlánasjóðinn, okkar gamla iðnlánasjóð, sem var veikur kvistur, en hefur verið að eflast á undanförnum árum, þó að iðnþróunarsjóðurinn norræni hafi komið til sögunnar. En um hann var samið og hann stofnaður, þegar við gerðumst aðilar að Fríverzlunarsamtökunum 1970. Hann er auðvitað mjög mikilvægur fyrir okkur, en hann var fyrst og fremst ætlaður umfram iðnlánasjóðinn til þess að vera stofnlánasjóður fyrir iðnaðinn og til þess að hjálpa okkur að brúa þá vissu erfiðleika, sem við hlutum óhjákvæmilega að lenda í í samkeppni okkar við iðnvarning iðnþróaðra þjóða, bæði á innlendum og erlendum markaði. Það væri smán fyrir okkur, ef við létum okkur nægja að láta iðnlánasjóðinn hjakka í sama farinu og segðum sem svo: Iðnaðurinn hefur aukin stofnlán og fjárfestingarlán vegna norræna iðnþróunarsjóðsins. Það megum við ekki gera. Hitt er svo annað mál, að það getur vel verið, að menn hafi aðrar hugmyndir um fjáröflun til iðnlánasjóðsins, en við höfum ekki séð neinar aðrar hugmyndir fram til þessa.
Eins og núna er, þá er tekjuöflunin tvíþætt. Hún er fyrst og fremst framlag ríkissjóðs, sem var fyrr á árum ekki nema lítið, og svo iðnlánasjóðsgjaldið, en það borgar iðnaðurinn sjálfur. Það er orðið um 40 millj. kr. á ári, og hann er að þessu leyti verulega byggður upp á framlögum iðnaðarins sjálfs, svipað og fiskveiðasjóðurinn var byggður upp af útflutningsgjaldi frá sjávarútveginum að langmestu leyti. En allt hefur þetta sína þýðingu. Við erum nú reynslunni ríkari um það, að það hefur stórkostlega þýðingu fyrir þessa sjóði að fá vissar og árlegar tekjur og þær verða þá auðvitað að fylgja verðlaginu og gildi krónunnar, ef við erum að stefna að auknum vexti atvinnugreinanna. Það má segja, að það sé hægt að fara fleiri leiðir til þess. Það mætti ákveða að leggja í iðnlánasjóðinn gullkrónur, svo og svo margar á ári, eins og sektirnar fyrir brot á fiskveiðilöggjöfinni eru. Þær eru ákveðnar í gullkrónum, og það mætti hafa ákvæði um, að framlagið skyldi vera gengistryggt og fylgja einhverju ákveðnu gengi, gullgengi, sem er hið sama, eða þá að hækka framlagið stig frá stigi eftir möguleikunum hverju sinni. Með slíku móti einu er hægt að tryggja það, að þessi sjóður eins og aðrir fái af framlögum ríkissjóðs tilsvarandi verðmæti og hann hefur áður fengið, þar sem við búum við verðbólgu og minnkandi verðgildi krónunnar í okkar þjóðfélagi.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri. Ég vil árétta það, hversu mikilvægt það er fyrir iðnaðinn í landinu, að iðnlánasjóðurinn eflist, og ég get aðeins lokið máli mínu með því að árétta það, að beiðni um lán úr iðnlánasjóði hafa verið miklu meiri en hann hefur getað sinnt á undanförnum árum. Þó hefur iðnþróunarsjóðurinn hjálpað honum verulega með beinum lánveitingum, fyrst 50 millj., síðar 20 millj., ef ég man rétt, sem iðnlánasjóðurinn mátti svo veita af iðnþróunarláninu. Hygg ég, að iðnþróunarsjóðurinn sjálfur sé farinn að lána, eða stjórn hans, í ríkara mæli smærri lán en hann gerði áður. Allt hjálpar þetta iðnaðinum og bætir úr þörfinni, en það dregur siður en svo úr því, að þörf sé að auka jafnt og þétt styrkleika iðnlánasjóðsins, sem fyrst og fremst er fjárfestingarsjóður iðnaðarins, enda þótt hann sinni ýmsum öðrum greinum og vissar deildir séu í iðnlánasjóði, eins og hagræðingardeild, lán til hagræðingarlána og veiðarfæraiðnaðarins, sem hefur haldið lífinu í þeim veiðarfæraiðnaði, sem hér er í landinu. En þegar allt kemur til alls er verkefni sjóðsins almennt svo mikið, að Alþ. má ekki skera við nögl sér að auka ríkisframlögin.
Ég vil svo mega leggja til, að þessu frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. iðnn.