09.04.1973
Efri deild: 85. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3196 í B-deild Alþingistíðinda. (2655)
238. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 566 er frv. til l. um stofnlánadeild landbúnaðarins og byggingar í sveitum. Frv. þetta er samið af n., sem skipuð var hinn 29. sept. s.l., en í skipunarbréfi n. var mælt svo fyrir:
„Endurskoðunin skal við það miðuð, að Landnám ríkisins hætti starfsemi sinni sem sjálfstæð stofnun, en verkefni þess verði falin öðrum stofnunum, sem vinna í þágu landbúanaðarins, eftir því sem við á og hagkvæmt þykir.
Með endurskoðun á kafla l. um stofnlánadeild landbúnaðarins verði að því stefnt, að lánveitingar til landbúnaðarins verði til að stuðla að þeirri þróun, sem æskilegust er talin í landbúnaðinum hverju sinni. Skulu till. í þessu sambandi sniðnar í samræmi við þær hugmyndir um áætlanagerð um þróun landbúnaðarframleiðslunnar, sem settar voru fram í frv. til l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins o.fl., er lagt var fram á síðasta Alþingi.
Þá skal n. taka til athugunar, hvort ekki sé æskilegt, að bændasamtökin fái aðild að stjórn lánasjóða landbúnaðarins, á svipaðan hátt og t.d. iðnaðurinn á aðild að stjórn iðnlánasjóðs, eða verði á einhvern hátt ráðgefandi aðili um stefnumótun í lánamálum landbúnaðarins.“
Í n. voru skipaðir eftirtaldir menn: Gunnlaugur Briem ráðuneytisstjóri, Ágúst Þorvaldsson alþm., Gunnar Guðbjartsson form. Stéttarsambands bænda, Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, Magnús Jónsson alþm. og bankastjóri, Stefán Sigfússon fulltrúi, Stefán Valgeirsson alþm., Þórhallur Tryggvason skrifstofustjóri og Þorvaldur G. Jónsson fóðureftirlitsmaður. Í samráði við landbrn. var Jónasi Jónssyni aðstoðarmanni ráðh. falið að vinna með n., og annaðist hann jafnframt ritarastörf. N. skipti viðfangsefnum í 3 þætti: 1) Stofnlánadeild landbúnaðarins, 2) Landnámið, 3) Grænfóðurverksmiðjurnar.
Þetta frv. fjallar um fyrsta þáttinn, sem tekinn var, og þó nokkuð af verkefnum Landnámsins. Gert er ráð fyrir, að starfsemi Landnámsins leggist niður sem sjálfstæð stofnun um næstu áramót. Í frv. því, sem samið hefur verið til jarðalaga og ekki kemur til afgreiðslu á þessu þingi, en e.t.v. verður langt fyrir þingið, áður en því lýkur, er gert ráð fyrir því, að þar falli hluti af verkefni því, sem Landnámið hafði áður. Annars er fylgt þeirri stefnu, að landbrn. taki við flestum verkefnum Landnámsins. Í aths. við jarðalögin verður gerð grein fyrir þeim till. Stofnlánadeildin hefur svo samið frv. til l. um heykögglaverksmiðjur ríkisins. Þar er fylgt svipaðri stefnu og í gildandi l. og er ekki nauðsynlegt, að ég geri frekar grein fyrir því.
Þeir þættir, sem eru meginefni þess frv., sem hér liggur fyrir eru, að stjórn stofnlánadeildarinnar er breytt á þann hátt, að bændasamtökin fá aðild að stjórninni, þ.e. að einn fulltrúi verður frá Stéttarsambandi hænda og annar frá Búnaðarfélagi Íslands. Þessir aðilar taka sæti í bankaráði Búnaðarbankans, þegar fjallað er sérstaklega um málefni stofnlánadeildarinnar. Annað atriðið er fjármögnun deildarinnar og þriðja atriðið lánareglur, sem við á að miða, svo að hagur deildarinnar verði í framtíðinni betur tryggður, jafnframt því að fjármagna og stuðla að æskilegri uppbyggingu í landbúnaði. Þá er og í sambandi við stjórn stofnlánadeildarinnar það að segja, að gert er ráð fyrir því, að ráðinn verði sérstakur forstöðumaður stofnlánadeildarinnar. Bankaráðið á, að viðbættum þeim tveim mönnum, sem sæti taka í því, þegar fjallað er um málefni deildarinnar, að skipa þann mann og setja honum erindisbréf. Með því að veita bændasamtökunum aðild að stjórn stofnunarinnar, er fyrst og fremst verið að vinna að því, að þeir verði þátttakendur í þeirri stefnumótun, sem stofnlánadeildinni er ætlað að marka með lánastarfsemi sinni.
Eins og kunnugt er, hefur á síðari árum farið mjög í vöxt lánastarfsemi stofnlánadeildar landbúnaðarins og þó sérstaklega nú tvö síðustu árin. Þó er gert ráð fyrir því, að á næsta ári verði enn veruleg aukning. T.d. var árið 1970 lánuð 141 millj. kr. á vegum stofnlánadeildarinnar, en tæpar 370 millj. kr. á s.l. ári. Hina vegar er það svo, að ráðstöfunarfé deildarinnar hefur farið minnkandi á þessum sömu árum. 1970 var það 45% af heildarútlánum deildarinnar, 1972 22,4%, og miðað við áætlun 1973 gæti það farið niður í 11%. Þau erlendu lán, sem deildin hefur tekið síðan 1953 hafa farið verst með hag hennar. Matsverð þeirra samanlagt var 196 millj. kr. á lántökutíma, en þrátt fyrir það, að greitt hefur verið af þeim með eðlilegum hætti samtals 290 millj. kr., er upphæð þeirra nú 275 millj. kr. Það, sem einnig hefur rýrt ráðstöfunarfé deildarinnar verulega, er það, að orðið hefur að taka að láni fjármagn, sem bæði hefur verið á hærri vöxtum og lánað til skemmri tíma en deildin hefur aftur lánað út.
Í 4. gr. þessa frv. er ákveðin tekjuöflun til deildarinnar, og er þar gert ráð fyrir, að fast framlag ríkissjóðs verði 25 millj. kr., hækki úr 4 í 25 millj. Þá er einnig gert ráð fyrir því, að þetta eina prósent, sem nú er framlag bænda til deildarinnar, haldist óskert til 1980 og ríkissjóður greiði á móti, eins og verið hefur, en gert var ráð fyrir, að gjald þetta lækkaði í árslok 1976 niður í 0,75 og héldist þannig til ársloka 1980. Þá er og gert ráð fyrir því, að gjald það, sem lagt er á útsöluverð búvöru, hækki og verði 1% líka og ríkissjóður leggi á móti sömu fjárhæð og gjald þetta gefur. Er gert ráð fyrir, að þessir tekjustofnar báðir standi til 1980, en ekki gert ráð fyrir, að þeir standi lengur, enda þess þá að vænta, að fjárhagur deildarinnar verði orðinn með þeim hætti, að hægt sé að halda starfseminni áfram, án þess að til þessara tekjustofna þurfi að gripa, eða það verður þá að leita annarra ráða, ef til þess kemur.
Þá er gert ráð fyrir því, að þessar tekjur geti gefið á þessu ári, 1973, a.m.k. um 50 millj. kr. og 1975 geri ég ráð fyrir, að þessi tekjuaukning geti nálgazt um 100 millj. kr.
Í 6. gr. frv. er kveðið á um breyttar útlánareglur, og meginbreytingin frá gildandi lögum er sú, að reglurnar miðist við það, að bændur, sem hafa minna bú en sem svarar l1/2 verðlagsgrundvallarbúi, njóti beztu lánakjara að því marki, er þeir hafa náð slíkri bústærð. Þegar komið er fram yfir þetta mark, er heimild til þess, að hluti af lánunum verði á öðrum kjörum, sem svara til kostnaðarverðs fjármagnsins hverju sinni. Þegar um viðurkennt félagsbú er að ræða, deilist bústærðin eðlilega á aðila félagsbúsins. Þá eru ákvæði um það, þegar sérstaklega stendur á og talið er, að nauðsyn beri til að örva framleiðslu í ákveðnum greinum eða á ákveðnum svæðum, að heimild sé til þess að hækka hundraðshluta lánanna og veita þá allt að 70% af kostnaðarverði framkvæmda. Með þessum ákvæðum er þeim, sem setja sjóðnum lánareglur, gert kleift að aðlaga þær þeirri stefnu í landbúnaðarmálum, sem mörkuð er hverju sinni. Jafnframt er stefnt að því marki, að stofnlánadeildin eflist og geti betur gegnt því hlutverki sínu í framtíðinni, sem hún nú gegnir.
Í 8. gr. eru þau ákvæði, að þegar sérstaklega stendur á, sé heimilt að hafa lán til íbúðarhúsa og útihúsabygginga afborgunarlaus fyrstu tvö árin. Er með þessu gert ráð fyrir, að í vissum tilfellum, svo sem þegar um frumbýlinga er að ræða með erfiðar aðstæður, megi beita þessu ákvæði, og stjórnendur ráða því, þó að aðalreglan sé eins og verið hefur.
Þá er í 9. gr., sem fjallar um vexti af lánum stofalánadeildar, heimild, sem er í samræmi við 6. gr. núgildandi l., um að ákveða misháa vexti af lánum deildarinnar. Ákvæðum þessara tveggja greina er mörkuð sú stefna, að lán til vinnslustöðva og annarra framkvæmda, sem ekki eru á vegum einstakra bænda, verði með þeim kjörum, að þau valdi deildinni ekki sérstökum kostnaðarauka.
Gerð hefur verið grein fyrir 1. kafla frv. með því, sem ég hef nú sagt. II. kafli frv. fjallar um íbúðarhúsabyggingar og er óbreyttur frá gildandi lögum. Um Byggingastofnunina er frv. efnislega alveg óbreytt um málefni, er varða byggingarfulltrúa, en það hefur ekki verið tekið sérstaklega til athugunar í þessari n., enda vinnur n. á vegum félmrh. að endurskoðun laga um byggingarsamþykktir.
Ég hef í ræðu minni hér að framan reynt, eins fljótlega og mögulegt er, að gera grein fyrir þessu frv., sem ég tel, að sé á margan hátt hið merkasta, og þakka hv. nm. fyrir störf þeirra að samningu frv. Ég held, að um það megi segja, þó að ýmsir nm. hafi viljað hafa mörg atriði á annan veg en gert er ráð fyrir í frv., að menn hafi eftir atvikum getað sætt sig við þessa niðurstöðu.
Ég legg svo til, herra forseti, að, að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. landbn.