09.04.1973
Efri deild: 85. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3213 í B-deild Alþingistíðinda. (2673)
191. mál, Iðnrekstrarsjóður
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Við 1. umr. um frv. það, sem hér er nú til 2. umr., gerði ég nokkrar aths. og þar á meðal þær helztar, að óeðlilegt væri, að verksvið þessa nýja sjóðs væri ekki fellt inn í verksvið annarra lánasjóða iðnaðarins, það væri óþarfi að stofna til nýrrar sjóðmyndunar, eins og frv. þetta gerði ráð fyrir, með sérstakri stjórn, einkum og sér í lagi þar sem ekki yrði séð að svo stöddu, að um nýtt fjármagn til iðnaðarins væri að ræða. Þá var það nefnilega svo, að iðnrh. tók það sérstaklega fram, enda hygg ég það koma fram í grg. frv. að, að svo stöddu væri ekki hægt að ætlast til framlaga úr ríkissjóði. Síðan 1. umr. var haldin, hefur iðnrh. tekizt, að því er virðist, að fá loforð fjmrh. og ríkisstj. til framlags úr ríkissjóði að upphæð 50 millj. kr. þegar á þessu ári, þótt búið sé að ganga frá fjárlögum yfirstandandi árs. Það er út af fyrir sig ekki nema gott um það að segja, að þessi fjáröflun er fyrir hendi, þótt á hitt verði að benda, að andkannalegt er og ámælisvert, að ekki sýnist vera séð fyrir tekjuöflun.
Í þessu sambandi hlýt ég að benda á það, sem ég býst reyndar við, að hv. 5. þm. Vestf. hafi gert við 1. umr. um frv. til l. um iðnlánasjóð, að sjálfstæðismenn hafa flutt frv. um framlag úr ríkissjóði í iðnlánasjóð. Ég nefni þetta sem dæmi um það, að samkvæmt því frv. var gert ráð fyrir auknu framlagi úr ríkissjóði, en þá jafnframt gert ráð fyrir því, að tillit yrði tekið til þess við gerð fjárlaga. Nú er þessi upphæð, sem hér er um að ræða í iðnrekstrarsjóð, ekki í fjörlögum frekar en það aukna framlag, sem nú loksins er gengizt inn á að fáist til iðnlánasjóðs, þrátt fyrir það, að frv. sjálfstæðismanna hafi ekki verið áður sinnt, hvorki í fyrra né nú.
Ég vek athygli að því, að iðnn. stendur sameiginlega að nokkrum breytingum og m.a. að svofelldu ákvæði til bráðabirgða: „Lög þessi, svo og önnur lög um lánasjóði iðnaðarins, skal taka til endurskoðunar hið fyrsta með það fyrir augum að sameina sjóðina og verkefni þeirra.“
Ég vil benda á, að þótt þetta ákvæði til bráðabirgða sé til bóta, er það mjög andkannalegt að stofna nýjan sjóð með sérstakri stjórn, um leið og bent er á, að nauðsynlegt sé að fækka sjóðum iðnaðarins. Fyrst verður að fjölga þeim, til þess að unnt sé að fækka þeim. Þetta eru vinnubrögð, sem ekki eru rökrétt, svo að ekki sé meira sagt. Til þess að bæta hér örlítið um og auðvelda þá sameiningu, sem ákvæðið til bráðabirgða gerir ráð fyrir, vil ég leyfa mér, herra forseti, að bera fram svo hljóðandi brtt. ásamt hv. 5. þm. Vestf. og hv. 1. landsk. þm., að 3. gr. frv. orðist svo:
„Stjórn iðnlánasjóðs, samkvæmt 3. gr. laga nr. 68/1967 fer með stjórn sjóðsins.“
Þá þarf ekki að stofna til sérstakrar 6 manna sjóðsstjórnar og varamanna þeirra, sem skipaðir eru til tveggja ára í senn. Endurskoðun með sameiningu fyrir augum á að fara fram þegar á næsta þingi. Því er það mjög óeðlilegt og mundi torvelda sameiningu sjóða og einföldun lánakerfis iðnaðarins, sem allir eru sammála um, ef 3. gr. er samþ. óbreytt. Ég vænti því þess, að hv. þdm. geti fallizt á þessa brtt. Ég skal játa, að ég hefði kosið að fella verksvið þessa nýja iðnrekstrarsjóðs inn í lög um aðrar lánastofnanir iðnaðarins, þannig að hér yrði ekki um sérstakan sjóð að ræða. Það er þó mál út af fyrir sig, hvort þarna verður um sérstakan sjóð að ræða hvað bókhald áhrærir. En það er eðlilegt, að ekki sé sérstök stjórn yfir hann sett. Það mundi torvelda það framtíðarmarkmið, sem allir eru sammála um, sameining lánasjóða iðnaðarins og einföldun lánakerfisins. En með því að þdm. munu ekki hafa fengið þessa brtt. í hendur, er um tvennt að ræða, flytja hana hér skriflega eða fresta framlagningu hennar eða flutningi til 3. umr. Læt ég hæstv. forseta um það, hvort honum finnst einfaldari vinnubrögð.