09.04.1973
Efri deild: 85. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3216 í B-deild Alþingistíðinda. (2682)
164. mál, aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Frsm. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Á þskj. 570 liggur fyrir nál. sjútvn., sem mælir eindregið með samþ. frv., eins og það liggur fyrir. Frv. fjallar um, að trillubátamenn fái nokkurn rétt í fæðissjóði aflatryggingasjóðs, en þeir eru greiðendur í sjóðinn af sínum afla, á sama hátt og aðrir. Er hér um sanngirnismál að ræða. Frv. er flutt af þm. úr öllum flokkum, og ég vænti þess, að það fái að halda áfram. Hliðstætt frv. í fyrra, sem var afgr. úr hv. Ed., dagaði uppi í Nd. Þeir, sem tryggja sína áhöfn, þótt á smáum bát sé, fá því peninga, ef þeir fylgja sömu lögbundnu tryggingu og er á stærri bátum, yfir 12 tonn. Hér er því bæði um öryggis- og réttlætismál að ræða, jafnframt því að vera eðlilegt sanngirnismál. N. mælir einhuga með því, að þessir menn njóti þeirra réttinda, sem aflatryggingasjóður veitir sjómönnum.