01.11.1972
Neðri deild: 9. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 504 í B-deild Alþingistíðinda. (269)

47. mál, Iðnlánasjóður

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Tilefni þess, að ég kveð mér hér hljóðs, er það, að hæstv. iðnrh. fór hér með margþvæld ósannindi úr ræðustól á Alþingi varðandi þan ummæli, sem ég á að hafa haft í sjónvarpsþætti, þar sem við áttumst við fyrir einum tveimur árum eða kannske rúmlega það. Skömmu eftir að sá sjónvarpsþáttur var sýndur, — ég held nokkrum vikum eða mánuðum, — þá fann Þjóðviljinn það út, að ég hefði haldið því fram, að við íslendingar ættum að byggja hvorki meira né minna en 20 álbræðslur. Það, sem ég sagði í þessum þætti, var að við ættum ónotaða fallvatnsorku, hagkvæma orku, sem svaraði til notkunar 20 verksmiðja á borð við álbræðsluna. Það var tilefni þessara ósanninda.

Sannleikurinn er sá, að auðvitað hefur hvorki mér né neinum manni öðrum dottið í hug, að við Íslendingar ættum að byggja álverksmiðjur, sem framleiddu ál, sem svaraði nokkurn veginn til allrar heimsframleiðslunnar. Auðvitað eigum við að hafa iðnvæðingu okkar á fleiri en einu sviði. Og raunar er það svo, að ég efast um, að það sé rétt stefna, sem hæstv. iðnrh. boðaði, þegar hann kom úr veizluhöldunum hjá vinum sínum í Alusuisse, að byggja ætti aðra álbræðslu í samvinnu við þá. Hann vildi byggja bræðslu nr. 2 nú á næstu árum, ef ég hef skilið orð hans rétt. Ég tel, að við eigum að leggja megináherzlu á að byggja iðnað á öðru sviði en álframleiðslu á næstunni, þó að sjálfsagt sé að athuga það að byggja aðra álbræðslu síðar meir, t.d. í tengslum við Austfjarðavirkjun, sem við öll hljótum að vona, að byggð verði, áður en mjög mörg ár líða. Ég held, að heppilegra væri núna að einbeita sér að sjóefnaverksmiðju og málmblendiverksmiðju, en fylgja ekki ráðum hæstv. iðnrh. um að leggja meginkapp á að byggja aðra álbræðslu. Hann virðist ekkert sjá annað en ál nú orðið, þó að öðruvísi brygði manni áður við.

Annars talaði hæstv. iðnrh. um, að það kvæði við annan tón hjá hv. 1. þm. Reykv. en áður hefði verið. Ekki varð ég þess nú var. Hv. 1. þm. Reykv. hefur alla þá tíð, sem ég hef þekkt hann, talað um iðnað og stóriðju og viljað iðnvæða þetta land. Hins vegar minnist ég þess ekki, að þegar talað var um stóriðju hér áður, þá hafi hæstv. núv, iðnrh. verið sérstakur talsmaður þeirrar stefnu. Hann fann henni þá allt til foráttu. Hann hélt því fram, að aldrei yrði hægt að nota nema takmarkaða orku í Þjórsá, vegna þess að þar mundi allt saman farast í ís að vetrarlagi. Þetta var ein af hans röksemdafærslum. Hann hélt því fram, að við Íslendingar yrðum hálfnýlenda, ef við færum að hafa samstarf við fjármagnseigendur um byggingu stóriðju á Íslandi, og annað var í þeim dúr.

Honum varð það á hér áðan að tala um EFTA. Ég man ekki betur en þessi maður hafi allra manna harðast barizt gegn inngöngu okkar í EFTA. Við gengum þó í EFTA, og nú nýlega gerði vinstri stjórnin samning við Efnahagsbandalag Evrópu, til þess að unnt væri að iðnvæða Ísland og til þess að það yrði sannmæli héðan í frá eins og hingað til, að iðnaðurinn væri einn af höfuðatvinnuvegunum, eins og hæstv. ráðh. komst að orði, vegna þess að okkur er knýjandi nauðsyn að flytja út iðnaðarvörur, ef við ætlum að vera verulegt iðnaðarframleiðsluland. En hann barðist sem sagt hatramlegast allra manna gegn því, að við gengjum í EFTA, og samningar við slíka ógnarstofnun sem Efnahagsbandalag Evrópu komu auðvitað ekki til mála, meðan hann var ekki í ríkisstj., þó að allt sé það gott og blessað núna.

Að því er raforkuverðið varðar, þá nefndi nú hæstv. iðnrh. sjálfur þessa 35 aura hér í ræðupúltinu. Hann sagði, að heimsmarkaðsverð á raforku nú væri 4 mill, það eru nákvæmlega 35 aurar. Ég vil halda því fram, að í samningum þeim, sem nú er verið að reyna að gera við Alusuisse að forlagi hæstv. iðnrh., — sendimenn hans voru erlendis núna fyrir nokkrum dögum, og farið er alllaumulega með þessa samninga, — ég vil halda því fram, að 35 aura verð nú sé sízt hagstæðara en það verð, sem samið var um á sínum tíma. Ber þar margt til. Í fyrsta lagi er virkjunarkostnaður mjög miklu hærri nú en þá var. Í öðru lagi er þetta verð miðað við Bandaríkjadollar, sem mjög hefur fallið í verði, eins og menn vita. Þar að auki hefur heimsmarkaðsverð hækkað á raforku gagnstætt því, sem við ætluðum. Það er rétt, við héldum, að kjarnorkuraforka yrði fyrr samkeppnisfær við vatnsaflsorkuna en raun hefur á orðið, en heimsmarkaðsverðið er, eins og hæstv. ráðh. réttilega gat um, a.m.k. 4 mill nú í dag, og er það auðvitað mjög ánægjulegt. En með hliðsjón af því hljótum við líka að verða að fá hærra verð en áður, því þetta markaðsverð hefur farið hækkandi, en ekki lækkandi.

Hæstv. ráðh. talaði um stefnubreytingu, hv. 1. þm. Reykv. hefur reyndar fjallað um það. En þess má gjarnan minnast, að það var ekki eingöngu í löggjöfinni um olíuhreinsunarstöð, sem talað var um, að Íslendingar ættu meiri hluta. Það var í öllum viðræðum við útlendingana frá upphafi rætt um, að Íslendingar ættu 55% og þeir 45%, og þeir voru fúsir til að starfa á þeim grundveili. Ég minnist þess, að þá var dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð nánast talað um mig og aðra þá, sem að þessum málum unnu, í blaði, sem hæstv. iðnrh. var ritstjóri fyrir, sem landráðamenn.

Menn hafa haft á því orð, að ræður hæstv. iðnrh. væru fengnar að láni. Fyrir nokkrum dögum var talað hér um aldraða, og hæstv. iðnrh. flutti þá einhverja beztu ræðu, sem ég hef heyrt og þá langbeztu, sem hann hefur nokkurn tíma flutt. En hún var stolin kosningaræða sjálfstæðismanns, eins og einn af þm. gat hér um. Það var mjög ánægjulegt að hlýða á þá ræðu, og margir sjálfstæðismenn, sem gjarnan vildu eigna sér hana, sögðu, að þeir hefðu samið þetta hér fyrr á árum. En hæstv. iðnrh. sagðist algerlega hafa hafnað þeirri stefnu í iðnaðarmálum, sem fyrrv. ríkisstj. fylgdi, og hann talaði um, að ef hann og hv. 1. þm. Reykv. færu hér að flytja gömlu ræðurnar sínar, þá yrði um mikla og leiðinlega endurtekningu að ræða. Það er nú svo, að ég býst við því, að hv. 1. þm. Reykv. mundi endurflytja sínar ræður nokkurn veginn, hann hefur ekki breytt um skoðun. En umr. yrðu raunar enn þá — við skulum segja leiðigjarnari en hæstv. iðnrh. gat um, vegna þess að hann mundi líka flytja ræður hv. 1. þm. Reykv, eða okkar, sem börðust fyrir stóriðju. Hann er búinn að taka upp flest það, sem við börðumst fyrir, og ég er honum mjög þakklátur fyrir það, innilega þakklátur. Þessi vinstri stjórn, — eitt af því góða við hana, það er ekki mjög margt, — en eitt af því góða við hana er, að í framtíðinni verður mun auðveldara að vinna fylgi fyrir stóriðju á Íslandi, vegna þess að stjórnarsinnar hafa látið af öllum árásum á þá stefnu og reynt að gera hana að sinni. Og fyrir það er ég mjög þakklátur og vona, að hæstv. iðnrh. breyti ekki um skoðun aftur.