09.04.1973
Neðri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3232 í B-deild Alþingistíðinda. (2712)

122. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1973

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Nú hefði ég að sjálfsögðu átt að koma hér með till, t.d. um að fella niður eitthvað af því, sem áformað er að gert verði á árinu 1973, eins og að hætta við Mjólkárvirkjun eða einhverjar slíkar framkvæmdir, til þess að hækka sig enn þá meira í áliti hjá vini mínum, hv. 2. þm. Vestf., sem ég vil gjarnan vinna mig í álit hjá. En því miður verður erindi mitt í ræðustólinn annað en að auka álit mitt, því að það er til orðið vegna

þess, að ég tel mig knúinn til að flytja brtt., sem ég verð að leyfa mér að færa forseta skrifaða vegna tímaskorts.

Eins og ég gat um, var við 2. umr. þessa máls ekki búið að fá niðurstöðu út af því, sem Vestmannaeyjagosið hefur valdið okkur um höfn á Suðurlandi eða hvernig taka skyldi á því máli. Af því tilefni leyfi ég mér að flytja svo hljóðandi brtt., með leyfi hæstv. forseta.

„Við 8. gr. Á eftir gr. komi ný grein, svo hljóðandi:

Í tilefni af því, að nú er unnið að athugun á hafnargerðum á suðurströndinni vegna eldgossins í Vestmannaeyjum á vegum Alþjóðabankans í samráði við Seðlabanka Íslands og ljóst er, að niðurstaða þeirrar athugunar mun ekki liggja fyrir, áður en Alþ. lýkur störfum, er ríkisstj. heimilt að taka innlent eða erlent lán að jafnvirði allt að 150 millj. kr. til þeirrar hafnargerðar, ef ákveðið yrði.“

Ég vil taka það fram, að þegar þetta mál liggur fyrir og til ákvörðunar kemur, mun verða haft samráð við þm. Sunnl. og undirnefnd fjvn., auk þess sem hagsýslustofnunin, samgrn. og hafnamálaskrifstofan verða að sjálfsögðu virkir þátttakendur í þessu máli, þegar það er komið á það stig. Ríkisstj. sýnist þó nauðsyn bera til að fá heimild til þess að mæta þessum vanda, og vona ég, að þessi till. leysi fram komnar till., sem voru fluttar undir öðrum kringumstæðum, af hólmi. Ég leyfi mér, herra forseti, að biðja um, að leitað verði afbrigða fyrir þessari till.