09.04.1973
Neðri deild: 82. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3237 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)

122. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar 1973

Ingólfur Jónsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að ræða framkvæmdaáætlunina, eins og hún liggur hér fyrir, enda þótt ég hafi ýmislegt við hana að athuga. Ég gæti tekið undir margt af því, sem sagt hefur verið í gagnrýnisátt um þessa áætlun. Hitt liggur ljóst fyrir, að það er ekkert óeðlilegt, þótt tölurnar hækki í framkvæmdaáætluninni, miðað við það, hvað dýrtíðin hefur aukizt á síðustu mánuðum. Byggingarvísitalan er nokkuð góður mælikvarði á framkvæmdakostnaðinn, en byggingarvísitalan hefur hækkað frá 1. júlí 1971 og áætlað til 1. júlí 1973 um rúmlega 50%. Byggingarkostnaður hefur hækkað um 2—3% á mánuði, síðan núv. hæstv. ríkisstj. komst til valda, og er það algert met, sem hæstv. ríkisstj. hefur slegið í dýrtíðinni.

Hæstv. fjmrh. og ýmsir hv. þm. úr stjórnarandstöðunni hafa deilt um dýrtíðina. Hæstv. fjmrh. sagði hér í ræðu fyrir nokkrum dögum, að dýrtíðin hefði ekki vaxið meira í tíð núv. stjórnar en hún gerði að jafnaði í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Hæstv. fjmrh. tók það ekki með í reikninginn, hver arfurinn var frá fyrri vinstri stjórninni, sem viðreisnarstjórnin tók við af. En þegar málin eru skoðuð ofan í kjölinn, var dýrtíðaraukningin á ári hjá viðreisnarstjórninni ekki nema 9,7%, en hefur verið 14,4% samkv. opinberum skýrslum hjá núv. hæstv. stjórn. En hæstv. ríkisstj. er nú að fara fram í dugnaði við að fá dýrtíðarhjólið til að snúast hratt, því að frá 1. febrúar s.l. til 1. maí n.k. er áætlað, að vísitalan hækki um hvorki meira né minna en 9,7%, og kaupgjaldið hækki á þremur mánuðum um 9%. Þá er það komið svo, að á þremur mánuðum hækkar vísitalan eins mikið og hún gerði á heilu ári í tíð fyrrv. stjórnar. Þegar þannig er í pottinn búið, er ekki nema eðlilegt, að allar tölur hækki og að fjárfestingarsjóðirnir séu fjárvana. Þá horfir hæstv. ríkisstj. fram á það að verða annaðhvort að draga saman allar framkvæmdir eða reyna að afla fjár til þess að halda framkvæmdum eitthvað í horfinu. Hæstv. ríkisstj. er örlát á loforð fram í tímann til þess að reyna að greiða úr fjárskorti í fjárfestingarsjóðanna.

Mér sýnist við fljóta yfirsýn, að samkv. þeim frv., sem hér hafa verið lögð fram síðustu dagana til styrktar og hjálpar fjárfestingarsjóðunum, muni framlag ríkissjóðs til fjárfestingarsjóðanna hækka um eitthvað milli 500 og 600 millj. kr. á ársgrundvelli. En það er síður en svo, að fjárfestingarsjóðirnir standi betur að vígi, þótt þeir fái þetta framlag frá ríkissjóðnum, en þeir hafa áður gert. Það er líklegt, að þeir standi mun ver að vígi en þeir hafa gert, þrátt fyrir þetta framlag frá ríkissjóði. Þannig leikur verðbólgan fjárfestingarsjóðina, og þannig leikur verðbólgan í fjármálakerfið.

Ég ætla ekki að fara lengra út í þetta, þar sem það liggur alveg ljóst fyrir. En ég vil minna á, eins og allir hv. þm. vita, að fyrir jólin, þegar frv. til l. um framkvæmdaáætlun var til umr., flutti ég ásamt hv. 3. þm. Sunnl. brtt. um fjárframlag til Þorlákshafnar. Það urðu talsverðar umr. um Þorlákshöfn þá, og hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. sögðust ekki treysta sér til að veita fé til Þorlákshafnar, enda þótt þeir viðurkenndu báðir þörfina á því. En síðan hefur margt skeð, og dylst engum, að það verður að auka framlag til framkvæmda við hafnir á suðurströndinni, þótt ekki væri nema til þess að bæta aðstöðu Vestmannaeyjabáta til bráðabirgða. Það verður gert með því að flýta framkvæmdum í Grindavík, flýta framkvæmdum, sem átti að vinna í Þorlákshöfn, og auka framkvæmdir á Stokkseyri og Eyrarbakka, þar sem Vestmannaeyjabátar hafa haft bækistöð í vetur. En það er aðeins til bráðabirgða, og það verður ekkert unnið þarna, sem ekki hefði orðið að vinna hvort sem var.

Hæstv. fjmrh. lýsti hér brtt., sem hann flytur um heimild fyrir ríkisstj. til þess að taka 150 millj. kr. lán til framkvæmda við hafnir á suðurströndinni á þessu ári. Ég ræddi við hæstv. fjmrh. í morgun um þessi mál og gat þess, að mér fyndist þessi upphæð nokkuð lág. En hæstv. ráðh. vitnaði í, að ekki væri unnt að vinna meira á þessu ári. Það kemur nokkuð heim við það, sem vitamálastjóri sagði mér einnig í dag, að það yrði erfitt að vinna fyrir meira á þessu ári, þótt þörfin sé vitanlega miklu meiri á þessum stöðum en sem nemur þessari upphæð. Ég vil þess vegna þakka hæstv. ráðh. fyrir að hafa flutt þessa brtt., sem er í samræmi við það, sem vitamálastjóri telur fært að vinna fyrir á þessu ári. En þetta er ekki nema áfangi, því að í höfnum á suðurströndinni er eftir að vinna mikið, til þess að þær verði nothæfar.

Um Vestmannaeyjamálið ætla ég ekki að ræða neitt að ráði að þessu sinni, heldur aðeins að minna á það, að Þorlákshöfn gæti ekki komið í staðinn fyrir Vestmannaeyjahöfn, ef svo illa færi, að Vestmannaeyjahöfn yrði ekki nothæf. Ef til þess kæmi, yrði að gera strax nýja höfn á suðurströndinni og byggja nýjan bæ. Þetta hygg ég, að allir séu sammála um, ef svo illa færi. En á meðan þetta bráðabirgðaástand ríkir, eru einnig allir sammála um, að bæta þurfi aðstöðuna í þeim höfnum, sem Vestmannaeyjabátar nota til bráðabirgða. Það leiðir að sjálfsögðu til þess, sem hér hefur komið fram, að ég og hv. 3. þm. Sunnl. tökum aftur till., sem við fluttum í haust og miðaðist við þá framkvæmd í Þorlákshöfn að lengja ytri hafnargarðinn um 80 metra á tveimur árum. Það þótti ekki fært að hugsa sér meira þá. En þetta, sem nú er lagt til, að verði unnið á þessu ári, getur e.t.v. orðið nokkru meira en lagt var til í haust. Mér þykir vænt um þá yfirlýsingu, sem hæstv. ráðh. gaf hér áðan, að haft yrði samráð við sveitarstjórnasambandið og þm. kjördæmisins um það, hvernig þessum fjármunum yrði bezt varið. Og þá væri kannske einnig eðlilegt að kalla skipstjórnarmenn og sjómenn til rn., áður en málið yrði ákveðið að fullu.