09.04.1973
Neðri deild: 83. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3247 í B-deild Alþingistíðinda. (2724)
169. mál, heilbrigðisþjónusta
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja brtt. á þskj. 602 við þetta frv. ásamt. hv. 8. landsk. þm. Þessi till. er aðeins um breytingu á einni tölu frv. eða einum stafkrók: H 1 verður H 2, þar sem fjallað er um heilsugæzlustöð í Búðardal, í 17. gr.3, b-lið 12. tölul. Þessi till. er í sama anda og sú brtt., er sömu þm. fluttu við frv. til l. um heilbrigðisþjónustu á s.l. ári, eins og bent hefur verið á nú við umr. málsins. Hún túlkar óskir heimamanna og byggist á þeim rökum, að einum héraðslækni hefur reynzt harla erfitt að þjóna Austur-Barðastrandarsýslu jafnhliða Dalahéraði. Austur-Barðstrendingar hafa ekki gefið upp alla von um læknissetur að Reykhólum. Þeir telja nauðsynlegt, að þar sé læknisaðstaða og læknir, a.m.k. þegar samgöngur eru erfiðar að vetrarlagi.
Að gefnu tilefni og til að forðast misskilning skal tekið fram, að með þessari till. og mörkum þeim, sem dregin eru í frv., er ekki verið að seilast til afskipta á Vestfjarðarkjálkanum. Vestfirðingar hafa jafnan reynzt Vestlendingum, Breiðfirðingum, hinir beztu nágrannar í aldanna rás. En vel fer á, að góðir nágrannar vinni saman, þegar báðum hentar, að hagsmuna– og velferðamálum beggja.
Það hefði verið full ástæða til þess að athuga ýmis ákvæði frv. nánar, svo sem ég hef áður vikið að og margir aðrir hv. þm., m.a. nú síðast hv. 7. landsk., sem hér var að ljúka máli sínu. Margar aths. hafa borizt, sem þörf væri á að skoða betur, varðandi kostnaðarhlið frv., frestun á lögtöku II. kafla, eins og frsm. hv. n. lýsti hér í dag, flokkun sjúkrahúsa, stöðu landlæknis o.fl., o.fl. Öll þessi atriði og ýmis fleiri væri þörf á að fjalla um nánar, en til þess er skammtaður of naumur tími af hæstv. ríkisstj. á þessum síðustu dögum þingsins.