09.04.1973
Neðri deild: 83. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3265 í B-deild Alþingistíðinda. (2739)

241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Ég vil við 1. umr. þessa máls þakka fiskveiðilaganefndinni fyrir mikið starf og gott, sem hún hefur unnið með því að undirbúa það frv., sem hér er nú flutt af þeim nm. fiskveiðilaganefndarinnar, sem sæti eiga í hv. Nd. Það leikur enginn vafi á því, að n. hefur unnið mjög mikið starf, kynnt sér málið mjög rækilega, m.a. með fundahöldum víða um landið og með mörgum samtölum við þá, sem hér eiga mestra hagsmuna að gæta. Mér er einnig kunnugt um það, að n. hefur haft náið samband við flest alla þm. um málið, og það er auðvitað mjög þýðingarmikið í máli eins og þessu, að undirbúningurinn sé vel unninn.

Það er ekki þörf á því hér af minni hálfu að rekja í ítarlegu máli meginatriðin, sem felast í þessu frv. Það hefur þegar verið gert af formanni n. Ég vil þó undirstrika það, að meginatriði þessa frv. eru þau, að hér er um mjög auknar friðunarráðstafanir að ræða fyrir botnvörpuveiðum við landið frá því, sem áður hefur gilt. Auk þess felur frv. í sér, að gert er ráð fyrir miklu strangara eftirliti en hingað til hefur verið varðandi veiðarnar. Þá felur frv. í sér mjög víðtækar heimildir fyrir rn. til þess að grípa inn í með tiltölulega litlum fyrirvara og gera sérstakar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir hættulega veiði. Auk þess eru svo gerðar hér till. um að hækka mjög verulega sektir fyrir brot á okkar fiskveiðilögum. Allt stefnir þetta augljóslega í eina átt. Við erum með þessu frv. að leggja drög að því að auka friðun á miðum okkar af okkar hálfu mjög verulega, og er það þá til viðbótar við þær fjölmörgu ráðstafanir, sem hafa verið í gildi og er verið óðum að taka upp og allar miða að þessu sama, að reyna að koma í veg fyrir hættulega veiði. Ég vil aðeins nefna í því sambandi, að auk þessarar meginstefnu, sem felst í þessu frv., höfum við verið að setja reglugerðir um að banna viss veiðarfæri, eins og þorskanót og ufsanót. Við höfum að undanförnu verið að setja ákvæði um möskvastærð á þorskanetum og einnig reglugerð um netafjölda, sem leyfilegt er að hafa í sjó. Sífellt höfum við verið að setja strangari og strangari reglur varðandi humarveiðar, rækjuveiðar, skelfisktöku og einnig varðandi síldveiðar, loðnuveiðar, en um allt þetta gilda býsna strangar hömlur. Auk þessa alls er svo meginráðstöfunin af okkar hálfu til verndunar okkar fiskimiðum fólgin í því að færa út okkar fiskveiðimörk og vinna markvisst að því, að fiskveiðilandhelgin öll verði aðeins fyrir íslenzk skip og Íslendinga, þó að það kunni að taka okkur nokkurn tíma að ná því marki til fullnustu.

Mér er ljóst. að ýmis ákvæði í þessu frv. eru þess eðlis, að það verða skiptar skoðanir um þau, og ekki vil ég heldur segja, að ég hefði ekki sjálfur viljað hafa viss atriði þarna á annan veg, En eins og fyrr hefur verið lögð áherzla á af formanni n., sem fyrir frv. hefur talað, skiptir hér auðvitað öllu máli að reyna að fá sem víðtækasta samstöðu um þær reglur, sem settar eru, því að í þessum efnum verður auðvitað erfitt að finna þær reglur, sem allir eru ánægðir með.

Ég skal ekki við þessa umr. lengja mál mitt frekar, en ég ítreka þakklæti mitt til n. allrar fyrir hennar mikla starf og til þeirra, sem með n. hafa unnið. Það er enginn vafi á því, að þeir hafa unnið hér gott starf, sem ég ætla, að geti orðið góður grundvöllur fyrir alþm. til að sameinast um og leysa þann mikla vanda, sem við stöndum frammi fyrir varðandi fiskveiðiheimildir í landhelginni, — reyna að leysa það a.m.k. um nokkurn tíma, þó að það verði að gera ráð fyrir að taka þessar reglur til endurskoðunar ekki síðar en gert er ráð fyrir af n. hálfu. Auðvitað ber okkur að taka þessar reglur til endurskoðunar, jafnóðum og í ljós kemur, að á slíku er þörf, og verður að ætla, að það verði gert.

Ég vona, að menn geti fallizt á þá till., sem formaður n. og 1. flm. frv. setti hér fram um það, að ekki væri nauðsynlegt að senda þetta frv. til þn. Frv. er samið af þm. nefnd í allnánu samráði við þm. almennt. Það er ekki trúlegt, að þn. geti tekið þetta frv. fyrir og unnið þar ýkjamikið gagn á stuttum tíma, sem eftir er til þingstarfa að þessu sinni, og ég held, að ef n., sem unnið hefur að því að semja þetta frv., vill taka, eins og hér hefur verið lýst yfir, allar till., sem fram koma, og ábendingar, sem henni berast, til athugunar og umsagnar, þá sé varla hægt að búast við því, að við fáum betri eða eðlilegri nefndarathugun á málinu í meðförum þingsins en hafa þennan hátt á. Ég held, að það spari allmikinn tíma og geri málið í eðli sínu einfaldara í meðförum.

Eins og fram kemur í frv., hafði að vísu verið gert ráð fyrir því, að ýmis önnur lagaákvæði varðandi okkar fiskveiðar en þau, sem hér er fyrst og fremst fjallað um, yrðu tekin til meðferðar í n. En svo hefur nú farið eins og stundum áður, þegar tekizt hefur verið á við þessi verkefni, að n. hefur ekki séð sér fært að leggja til stórfelldar breytingar varðandi þau atriði, önnur en þau, sem snerta togveiðiheimildir, og verður þá að bíða síðari tíma að taka þau mál til frekari athugunar.

Ég vænti svo þess, að hægt verði að ljúka þessari umr. hér í kvöld, svo að þetta mál geti náð fram að ganga fyrir þinglok, sem er ætlað, að verði fyrir páska