10.04.1973
Sameinað þing: 68. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3284 í B-deild Alþingistíðinda. (2755)
215. mál, hlutafjáreign ríkissjóðs
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 5. þm. Reykn. á þskj. 445 vil ég gefa þetta svar:
Hlutafjáreign ríkissjóðs 31. des. 1971 var 218.39.960 kr. Þetta skiptist þannig, að flóabáturinn Drangur var með 4 millj., ég nefni aðeins millj. í þessu tilfelli, Baldur 3 millj. eða 3.2 millj., Eimskipafélag Íslands 4.1 millj., Flugfélag Íslands 8.3 millj., Iðnaðarbanki Íslands 4 millj., Matvælamiðstöðin tæpar 2 millj., Kísiliðjan 178.5 millj., Raftækjaverksmiðjan h/f 500 þús., Skallagrímur h/f 1.3 millj., Þormóður rammi 2,4 millj. og Slippstöðin á Akureyri 10 millj.
Í árslok 1972 var þessi hlutafjáreign, sem hér segir.
Drangur óbreytt, Baldur óbreytt, Eimskipafélag Íslands 12.3 millj., en Eimskipafélag Íslands jók hlutafjáreignina í heild, og þótti rétt, að ríkissjóður héldi sínu hlutfalli þar, Flugfélag Íslands óbreytt, Iðnaðarbanki Íslands óbreytt, Matvælamiðstöðin óbreytt, Kísiliðjan óhreytt, Raftækjaverksmiðjan h/f 2.5 millj., Skallagrímur óbreytt, Þormóður rammi 19.8 millj., Slippstöðin á Akureyri 45 millj., olíuhreinsunarstöðin 1.2 millj. Samtals voru þetta 282.264.960 kr.
Þá er nú spurt um, hvað mikið hafi verið greitt í arð af þessum hlutabréfum, og þá eru tölurnar lægri. 1971: Eimskipafélag Íslands 252.960 kr., Flugfélag Íslands 832 þús., Iðnaðarbanki Íslands 280 þús. og Raftækjaverksmiðjan h/f 50 þús., samtals 1.414.960 kr. 1972: Eimskipafélag Íslands 210.800 kr., Iðnaðarbankinn 280 þús. og Raftækjaverksmiðjan h/f 50 þús., samtals 540.800 kr.
Ég skal svo að lokum taka undir það með hv. þm., að ég tel rétt, að slík grg. sem þessi verði látin fylgja ríkisreikningi, og mun taka það til athugunar.