10.04.1973
Sameinað þing: 68. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3284 í B-deild Alþingistíðinda. (2756)

215. mál, hlutafjáreign ríkissjóðs

Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. sérstaklega fyrir greinagóð svör. Það kemur í ljós, að ríkið á hlutabréfaeign 218 millj. 1971 og 288 millj. 1972. Hins vegar er arður aðeins 540 þús. 1972. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir að hafa tekið jákvætt í það að birta með ríkisreikningi skrá yfir hlutabréfaeign ríkissjóðs, og ég tel mjög eðlilegt, að hún fylgi honum eða a.m.k. upplýsingar á einhverju stigi málsins um hlutafjáreign ríkisins.

Athyglisverðasta breytingin, sem ég sé í þessari upptalningu, er að framlag ríkissjóðs til Slippstöðvarinnar á Akureyri var 1971 10 millj., en var í árslok 1972 orðið 45 millj. Ég veit ekki, með hvaða hætti eignaraðildin þarna hefur átt sér stað. En við vissum um þetta í fjvn. Ég reikna þó með, að ríkissjóður eigi stjórnaraðila í fyrirtækinu. Hvernig hefur samþykktum fyrirtækisins verið breytt? Það veit ég ekki, en þetta eru allt atriði, sem þyrfti að gera Alþ. nánari grein fyrir að mínu mati, þegar slík fjármögnun á sér stað af hálfu ríkissjóðs varðandi aðstoð til einkafyrirtækja.

Einnig er mér kunnugt um, að ríkið hefur hjálpað öðrum fyrirtækjum um verulegar upphæðir, en það er sýnilegt, að það hefur ekki verið skráð á nafn ríkissjóðs, heldur einhverra annarra stofnana á vegum ríkisins.