10.04.1973
Sameinað þing: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3285 í B-deild Alþingistíðinda. (2758)
226. mál, ný höfn á suðurstönd landsins
Flm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Alþingi Íslendinga hefur örugglega aldrei staðið frammi fyrir vandamáli þeirrar tegundar, sem er tilefni til flutnings þeirrar till., sem þm. Sunnl. flytja á þskj. 493, en það er, að til getur komið, að flytja þurfi íbúa heils kaupstaðar, þ.e. Vestmannaeyjakaupstaðar, um set ásamt atvinnutækjum og allri aðstöðu. Slíkt hefur örugglega aldrei komið til greina áður í sögu þjóðarinnar og á vonandi aldrei eftir að gerast síðar. Ef svo illa fer, að höfnin í Vestmannaeyjum og hafnarsvæði þar fara forgörðum eða að Eyjarnar verða ekki taldar byggilegar, þegar náttúruhamförunum þar linnir, fer ekki hjá því, að Alþ. og stjórnvöld standa frammi fyrir stórfelldu vandamáli, sem krefst skjótrar og ákveðinnar úrlausnar. Að mínum dómi er ekki til nema ein lausn á þessu máli, ef svo hörmulega tekst til, en það er, að Vestmanneyingum verði sköpuð aðstaða til þess að halda hópinn og byggja upp nýtt bæjarfélag á stað, þar sem þeir geta byggt afkomu sína á nýtingu fiskimiðanna í kringum Vestmannaeyjar. Ég er alveg sannfærður um, að þjóðfélagslega séð verður þetta einnig langsamlega hagkvæmast.
Það hafa að vísu heyrzt raddir um, að leysa mætti þetta vandamál með því, að Vestmanneyingar tækju sér búsetu í Reykjavík og á hinum ýmsu þéttbýlisstöðum hér í kring og á Reykjanesskaganum. Ég vil mjög eindregið vara við þessari skoðun og vona, að hv. alþm. séu mér um það sammála, enda gengur hún þvert á móti þeirri stefnu, sem Alþ. hefur verið að reyna að marka á undanförnum árum, að halda sem mestu jafnvægi í byggð landsins með því að stuðla að uppbyggingu landsbyggðarinnar utan þéttbýlissvæðisins hér við Faxaflóa, bæði atvinnulega séð og menningarlega. Ef um 5.300 Vestmanneyingar flyttust samtímis inn á þetta svæði, væri það alveg óneitanlega mjög stórt skref aftur á bak í byggðajafnvægismálinu og grundvallar röskun á stefnu Alþ. í þessu máli. Og það eru fleiri rök, sem hníga að því, að þjóðfélagslega séð væri þessi leið síður en svo æskileg. Ef bátafloti Vestmanneyinga og þau atvinnutæki, sem þeim fylgja, ættu að dreifast á hinar ýmsu verstöðvar á Reykjanesi og við Faxaflóa, mundi bátaflotinn hvergi nærri skila þeim verðmætum í þjóðarbúið, sem hann hefur gert fram að þessu og gæti gert í framtíðinni, ef þessir aðilar væru sameinaðir á einum stað við sem svipaðastar aðstæður og þeir áður bjuggu við.
Vestmanneyingar hafa á undanförnum áratugum af eðlilegum ástæðum aflað sér meiri reynslu en aðrir, á hvern hátt hin gjöfulu fiskimið í kringum Eyjar verði sem bezt nýtt. Hin langa reynsla þeirra í þessum efnum er verðmæti, ekki einasta fyrir þá, heldur einnig fyrir þjóðarbúið í heild.
Ég vil nú víkja nokkrum orðum að efnishlið þeirrar þáltill., sem hér liggur fyrir til umr. Till. gerir ráð fyrir, að Alþ. feli ríkisstj. að láta þegar hefja athugun á staðsetningu nýrrar hafnar á suðurströnd landsins, á svæðinu frá Dyrhólaey og vestur um. Er í till. lögð áherzla á, að þessari athugun verði hraðað eins og kostur er á með tilliti til þess, ef svo illa færi, að höfnin í Vestmannaeyjum og hafnarstæði þar færi forgörðum af völdum eldgossins, sem nú á sér stað á Heimaey.
Gerir till. ráð fyrir, að samgrn. skipi 6 manna n. til að framkvæma þessa athugun, þar af verði þrír tilnefndir af þeim ríkisstofnunum, sem fara með hafnamál, skipulagsmál og samgöngumál, og auk þess þrír fulltrúar frá Vestmannaeyjum: einn frá samtökum útvegsmanna, einn sameiginlega frá samtökum sjómanna og verkalýðsfélaganna og einn frá bæjarstjórn Vestmannaeyja. Ég vil leggja áherzlu á, að ég tel, að verkefni fulltrúanna frá Vestmannaeyjum í n. sé fyrst og fremst að gera till. um, hvar þeir teldu hafnarstæði fyrir bátaflota Vestmanneyinga bezt sett, til þess að þeir geti á sem beztan og arðvænlegastan hátt nýtt þau fiskimið, sem þeir fram að þessu hafa byggt afkomu sína á, og ég tel alveg hiklaust, að sjónarmið þessara aðila eigi að ráða úrslitum um, hvar höfnin verði staðsett, ef til nýrrar hafnarbyggingar kemur á suðurströndinni. Vísa ég þar um til rökstuðnings í grg., sem till. fylgir. Verkefni embættismanna í n. er hins vegar að mínu mati að meta það, hvort hægt sé að verða við ábendingum Vestmanneyinga um hafnarstæði. Það kemur til álita hinna sérfróðu manna, hvort af tæknilegum ástæðum sé framkvæmanlegt með eðlilegum hætti að byggja nýja höfn, þar sem Vestmanneyingar kjósa helzt að vera. Einnig kemur að sjálfsögðu til mat hinna sérfróðu manna í n. um skipulagsmál, hvort landrými sé nægilegt, þar sem höfnin kann að verða staðsett fyrir samfélag af eitthvað minni stærðargráðu en áætlunin hafði verið gerð um, að Vestmannaeyjakaupstaður yrði, er fram liðu stundir.
Ég vil undirstrika aftur, að ef svo illa fer, að Vestmanneyingar verði að flytjast til frambúðar frá Eyjum, þá verða þeir sjálfir að fá að ráða, hvar þeir vilja setjast að. Annað kemur að mínum dómi ekki til greina, og vona ég, að hv. alþm. séu mér sammála um þetta atriði.
Þá kem ég að hugmynd flm. um framkvæmd byggingar nýrrar hafnar á suðurströndinni, og getur það átt við, hvort sem um er að ræða aðstöðu fyrir Vestmannaeyjaflota fyrst og fremst eða úrbætur á almennri þörf. Við teljum, að þessum hafnarframkvæmdum verði ekki blandað saman við aðrar hafnarframkvæmdir í landinu og megi ekki verða til þess að tefja þær, heldur yrði þessi höfn, alveg sérstaklega ef Vestmannaeyjaflotinn þyrfti að skipta um aðsetur, að byggjast að fullu fyrir erlent fjármagn og þá með meiri hraða en tækjakostur, sem Íslendingar ráða yfir, leyfir. Ef svo fer, að náttúruhamfarirnar í Vestmannaeyjum leiða til þess, að nauðsynlegt verður talið að flýta byggingu hafnar á suðurströndinni til að skapa Vestmanneyingum í heild, bátaflota þeirra og atvinnutækjum aðstöðu til að byggja upp nýtt samfélag, er ég sannfærður um, að auðvelt muni reynast að fá erlent fjármagn til greiðslu kostnaðar við byggingu hafnarinnar og möguleiki muni skapast til að byggja upp höfnina með meiri hraða og á fljótvirkari hátt en áður hefur gerzt hér á landi, enda er hvort tveggja þetta forsenda fyrir þeirri hugmynd, að Vestmanneyingar haldi sem mest hópinn og byggi upp nýtt samfélag við höfn, sem byggð yrði á suðurströnd landsins, ef til þess kemur, að þeir þyrftu að flýja heimabyggð sína.
Herra forseti. Ég vil að lokum mjög undirstrika, að flutningur þeirrar þáltill., sem hér um ræðir og ég hef nú gert grein fyrir, þýðir alls ekki, að flm. séu búnir að gefa upp alla von um, að höfnin í Vestmannaeyjum bjargist. Sjálfsagt er að horfa raunsæjum augum á hlutina. En það verður að teljast mannlegt og eðlilegt að vona hið bezta, á meðan hið versta hefur enn ekki skeð. Sjálfsagt er þó að vera við öllu búinn, og af þeirri ástæðu er till. sú, sem hér er til umr., flutt. Flm. telja nauðsynlegt, að Alþ. ákveði nú þegar, hvað gera skuli, ef svo tekst til, að Vestmannaeyjar verði ekki lengur taldar byggilegar, þegar náttúruhamförunum þar linnir, og leyfum við okkur að vænta þess, að hv. alþm. séu okkur sammála um þá stefnumörkun, sem í till. felst, og að till. hljóti fullnaðarafgreiðslu nú, áður en þingi lýkur.
Leyfi ég mér að leggja til, herra forseti, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjvn.