10.04.1973
Sameinað þing: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3288 í B-deild Alþingistíðinda. (2762)

138. mál, Lífeyrissjóður allra landsmanna

Frsm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Þm. Alþfl. hafa á þskj. 265 flutt till. til þál. um lífeyrissjóð allra landsmanna. Þetta er stórmál og hefur verið töluvert lengi í athugun, þótt lítt hafi þokazt í átt til viðunandi úrlausnar. Í grg. með þáltill. eru færð nokkur rök fyrir þessu máli, og er því óþarft fyrir mig að fjalla frekar um það, en mig langar þó að bæta við persónulega tveimur eða þremur athugasemdum.

Mín persónulega skoðun er sú, að fá mál sýni misrétti í þjóðfélaginu eins og hvernig háttað er um lífeyrissjóði landsmanna. Það eru örfáir lífeyrissjóðir, sem eru vísitölutryggðir, en langflestir sjóðanna eru ekki vísitölutryggðir. Þetta leiðir til þess, að kjör bótaþega eru fjarskalega misjöfn. Enn fremur hagar svo til, að fjölmargir einstaklingar þiggja einungis ellilífeyri frá almannatryggingum, en svo eru dæmi um einstaklinga, sem geta þegið ellilífeyri úr allt að þremur eða fjórum sjóðum allt að upphæð, sem nemur á annað hundrað þús. kr. á mánuði.

Ég hygg, að það sé ekki ofsagt, eins og ég sagði áður, að þetta lífeyrissjóðakerfi speglar eitthvert mesta misrétti í þjóðfélaginu. Hins vegar er ljóst, að þetta verkefni er dálítið örðugt úrlausnar. Þess vegna hefur allshn. skilað svofelldu áliti:

„N. telur, að hér sé um brýnt viðfangsefni að ræða og úrlausn þess væri mikilvægur áfangi í átt að auknu efnahagslegu jafnrétti í þjóðfélaginu. Hins vegar telur n. rétt, eins og málavextir eru, að vísa till. til ríkisstj.“