10.04.1973
Sameinað þing: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3298 í B-deild Alþingistíðinda. (2777)
229. mál, raforkuöflunarleiðir fyrir Norðlendinga
Flm. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Við nokkrir þm. úr Norðurlandskjördæmunum tveimur flytjum hér þá till., sem nú er á dagskrá og er þess efnis að skora á ríkisstj. að skipa n. í samráði við Fjórðungssamband Norðlendinga til þess að kanna leiðir til raforkuöflunar fyrir Norðurland. Till. er flutt samkv. eindregnum tilmælum Fjórðungssambands Norðlendinga. Það er að vísu ekki nýtt, að Fjórðungssamband Norðlendinga óski eftir þessari málsmeðferð á þeirra rafvæðingarmálum. Þeir gerðu þetta á s.l. ári án þess að fá undirtektir hjá hæstv. iðnrh. Ég flutti fyrr á þessu þingi fsp. til ráðh. um það, hvort hann hygðist ekki verða við þessari ósk Fjórðungssambandsins, sem ég verð að segja, að er sú hógværasta og sanngjarnasta, sem hægt er að gera ráð fyrir í sambandi við þessi stóru og miklu mál, að fá að ræða um þau við viðkomandi stjórnvöld. Hæstv. ráðh. svaraði því út í hött eða nánast þannig, að það hefði þegar verið haft nægilegt samband við þessa aðila. Það kemur hins vegar glöggt í ljós á síðari erindum, sem send hafa verið Alþ. og okkur þm. Norðlendinga, að því fer víðs fjarri, að þetta sé skilningur þeirra manna, sem með orkumál fara á Norðurlandi, og Fjórðungssambandsins, og þess vegna hefur þessi ósk verið ítrekuð og bent á, hversu alvarlega horfi í orkumálum Norðlendinga og hversu nauðsynlegt væri að leita allra tiltækra úrræða til þess að ná samstöðu um þær leiðir, sem skynsamlegastar gætu talizt til lausnar þessum vanda.
Ég skal ekki fara út í þá sálma að ræða hér um orkumál Norðurlands, það yrði langt og mikið mál, og til þess gefst enginn tími. En þetta er vissulega slíkt alvörumál og slíkt grundvallaratriði fyrir alla byggðaþróun norðanlands, að leyst verði með viðunandi hætti orkumál fjórðungsins. Það virðist í rauninni gegna furðu, að ekki skuli þegar hafa verið orðið við þessari ósk, að setja þessa n. á laggirnar til að ræða þennan mikla vanda og kanna allar leiðir, sem gætu komið til greina til lausnar honum. Það eru engir hleypidómar í þessum ályktunum Fjórðungssambandsins, heldur aðeins bent á alvöru málsins og hversu þýðingarmikið það sé, að hinar hagkvæmustu leiðir séu valdar til að leysa úr þessu mikla vandamáli Norðlendinga.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa þessi orð mín fleiri, en leyfi mér að leggja til, að till. verði vísað að lokinni þessari umr. til hv. fjvn.