10.04.1973
Sameinað þing: 69. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3316 í B-deild Alþingistíðinda. (2791)

184. mál, rannsókn á íbúðum og sameignum í Breiðholti

Flm. (Bjarni Guðnason):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að lesa hér upp úr reglugerð um íbúðabyggingar ríkisins og Reykjavíkurborgar, þar sem segir svo í 12. gr., og bið ég nú hæstv. félmrh. að leggja við hlustir:

„Félmrh. skipar 2 trúnaðarmenn í samráði við borgarstjóra Reykjavíkur, til þess að hafa eftirlit með öllum byggingarframkvæmdum og fjárreiðum vegna íbúðabygginga þeirra, sem um ræðir í reglugerð þessari. Skal annar þessara trúnaðarmanna vera löggiltur endurskoðandi, en hinn skal vera tæknifróður maður á sviði byggingarmála. Allar meiri háttar framkvæmdir og samningagerðir skulu staðfestar af tæknilegum eftirlitsmanni. Skulu trúnaðarmenn þessir sameiginlega gera félmrn. og borgarstjóra Reykjavíkur grein fyrir eftirliti sínu og endurskoðun missirislega.“

Líklega hefur hæstv. félmrh. ekki séð þessi plögg.