11.04.1973
Efri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3326 í B-deild Alþingistíðinda. (2832)
96. mál, sala Grenivíkur, Svæðis, Höfðabrekku og hluta af landi Borgar
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 635, leggur landbn. til, að frv. þetta verði samþ. ásamt brtt. um að heimila ríkisstj. að selja Borgarneshreppi þann hluta lands Borgar í Borgarhreppi, sem er sunnan þjóðvegarins vestur á Snæfellsnes. Hreppsnefnd Borgarness hefur óskað eftir því, að hreppurinn fái land þetta keypt. Borgarneskauptún hefur stækkað mjög mikið á undanförnum árum og vantar land og stærra athafnasvæði, svo að hægt sé að koma fyrir á sómasamlegan hátt öllum stærri mannvirkjum, svo sem nýrri mjólkurstöð o.fl. Mál þetta hefur verið rætt við jarðeignadeild ríkisins og dóms— og kirkjumrn., sem eru söluheimildinni meðmælt. Álit hreppsnefndar Borgarhrepps í Mýrasýslu liggur einnig fyrir, þar sem meiri hluti hreppsn. mælir með sölu þessa hluta úr Borgarlandi. Landbn. stendur öll að þessari brtt. og frv. í heild.