16.10.1972
Neðri deild: 3. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 26 í B-deild Alþingistíðinda. (29)

5. mál, orkuver Vestfjarða

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra Forseti. í frv. til framkvæmdaáætlunar fyrir þetta ár óskaði ríkisstj. m.a. eftir heimild til að ábyrgjast allt að 11 millj. kr. lán vegna virkjunar Mjólkár II, og var heimild þessi samþ. einróma á Alþ., en 1. um framkvæmdaáætlun tóku gildi 25. maí í vor. Þá var hins vegar svo ástatt, að ekki var lokið samanburði á mismunandi tilhögunum á virkjun Mjólkár. Endanlegar niðurstöður um það efni bárust iðrn. frá Orkustofnun 19. júlí í sumar. Kom þá í ljós, að þrír valkostir gáfu mjög svipaðan orkukostnað, 3.2 megawatta virkjun, 4.5 megawatta virkjun og 5.7 megawatta virkjun, og var kostnaðurinn 80 aurar á kw-stund. Mælti Orkustofnunin með stærstu virkjuninni og féllst rn. á till. hennar.

Á þessu var hins vegar sá meinbugur, að samkv. l. nr. 54 frá 20. apríl 1954 var Rafmagnsveitum ríkisins heimilað að virkja Dynjandisá eða Mjólká í Arnarfirði í allt að 7000 hestafla orkuveri. Það orkuver, sem nú er starfrækt, er 3800 hestöfl, en sú viðbót, sem Orkustofnun lagði til og rn. félist á, nemur 8400 hestöflum. Þannig skortir nokkuð á, að full lagaheimild væri fyrir framkvæmdum samkv. hinum nýju áformum. Við þetta bættist, að orkuspár sýna nauðsyn þess, að Mjólká II geti tekið til starfa eigi síðar en seinni hluta árs 1975. Til þess að það mætti takast, var talið nauðsynlegt að vinna að undirbúningsframkvæmdum á fjöllum uppi þegar í sumar, en þar er vinnuaðstaða erfið vegna veðurfars og aðeins hægt að starfa tiltölulega stuttan tíma. Í sumar var svo ástatt, að menn voru að störfum á vegum Vesturverks hf. við stíflugerð og miðlun í Langavatni, en ákvörðun um þær framkvæmdir var tekin 1970 í því skyni að auka orkuvinnslugetu núverandi Mjólkárvirkjunar úr 12.25 gígawattstundum í 13.75 gígawattstundir á ári. Var talið skynsamlegt að semja við Vesturverk um að hefja einnig í sumar byrjunarframkvæmdir á undirstöðum þrýstivatnspipu frá Langavatni, en þar var um að ræða 1590 metra kafla af 3870 metra heildarlengd.

Ég átti þannig um tvo kosti að velja, annars vegar að fresta öllum framkvæmdum við Mjólká II, þar til gengið hefði verið frá óhjákvæmilegum lagaheimildum hér á Alþ. með þeim afleiðingum, að Mjólká II hefði naumast tekið til starfa, fyrr en á árinu 1976, eða hins vegar að gefa út brbl., láta hefja framkvæmdir í sumar og stefna að því, að virkjunin kæmi í gagnið ári fyrr. Ég bar málið undir félaga mína í ríkisstj., og voru þeir sammála mér um, að velja bæri síðari kostinn. Samkv. því voru gefin út 3. ágúst s.l. brbl. þau, sem hér eru til umr., en með þeim var framleiðslugeta Mjólkárvirkjunar aukin í 10 þús. kw. Jafnframt var samið við Vesturverk hf. um að hefja þau störf, sem ég vék að áðan, og hefur verið unnið að þeim síðan. Ég vil vænta þess, að hv. alþm. fallist á, að setning brbl. hafi verið eðlileg í þessu tilviki, — og þessi ákvörðun mín sæti ekki ámæli.

Virkjun Mjólkár II er við það miðuð, að hagnýtt verði fallhæðin frá Langavatni til sjávar í Borgarvogi. Fallhæð er hér um 490 metrar og afi 8400 hestöfl. Ráðgert er að koma vélunum fyrir í framlengingu af stöðvarhúsi núverandi Mjólkárvirkjunar, en það atriði auðveldar m.a. alla gæzlu stöðvanna. bíiðað við þær orkuspár, sem gerðar hafa verið fyrir Vestfirði, m.a. með allverulegri aukningu á húshitun með raforku, er áætlað að Mjólká II muni ásamt þeim virkjunum, sem fyrir eru á Vestfjörðum, nægja til ársins 1982. Stofnkostnaður Mjólkár II er áætlaður 220 millj. kr. miðað við verðlag nú.

Eins og ég sagði áðan, voru uppi þrjár hugmyndir misstórar um tilhögun á virkjun mjólkár II, og var þar ekki um að ræða neinn umtalsverðan mun á kostnaðarverði raforkunnar. Því þurfti að gera upp á milli þessara kosta á öðrum forsendum, og m.a. að reyna að gera sér ríkstuddar hugmyndir um þróun fjórðungsins, byggð og atvinnulíf. Mig langar því að bæta við nokkrum almennum orðum um raforkumál á Vestfjörðum í tengslum við hugsanlega raforkunotkun.

Vestfirðir eru vel settir með vatnsorku til allra almennra þarfa og til hitunar, enda þótt magn hennar sé ekki mikið borið saman við aðra landshluta. Talið er, að á Mjólkár- og Dynjandissvæðinu sé fáanleg orka, sem nemur 200 gígwattstundum á ári eða nálægt tífaldri núverand raforkunotkun á Vestfjörðum. Þetta svæði, sem liggur nálægt miðbiki Vestfjarðakerfisins, er mikilvægasta orkuforðabúr Vestfjarða. Að auki er svo nokkur orka annars staðar á Vestfjörðum. Þróun raforkunotkunar á Vestfjörðum undanfarið hefur hins vegar verið fremur hæg í samanburði við aðra landshluta. Þannig var meðalvöxtur notkunarinnar áratuginn 1960–1970 4.9% á ári borið saman við 5.6% fyrir landið í heild. Þetta er í samræmi við það, að nokkurrar stöðnunar gætti á Vestfjörðum á því tímabili. Þannig hefur fólki fremur fækkað í kaupstöðum og kauptúnum á Vestfjörðum á þessum áratug.

Vel má segja, að þessi þróun ætti að hvetja til varkárni og til þess að velja fremur smærri kosti en stærri í sambandi við raforkuframkvæmdir, en hér koma til fleiri atriði. Í því sambandi er t.d. vert að minna á það, að fram til þessa hefur hitun húsa á Vestfjörðum að heita má öll farið fram með olíu, enda er lítið um jarðhita nálægt þéttbýli á Vestfjörðum. Mjólkárvirkjun II gefur góða möguleika á, að hér verði breyting á, og hitunin færist smátt og smátt yfir á raforku. Í orkuspá fyrir Vestfirði er húshitun áætluð út frá þeirri forsendu, að raforka taki smátt og smátt við hlutverki orkugjafa til húshitunar á Vestfjörðum af olíunni, sem nú gegnir þessu hlutverki. Þó er reiknað með, að olían muni um langan aldur halda nokkrum hluta núverandi hitunarmarkaðar. Er áætlað, að þessi hluti olíunnar í núverand markaði veriði 30% árið 1990, þ.e.a.s. raforkan hafi þá tekið við 70%. Auk þess er gert ráð fyrir, að raforka taki við allri aukningu hitunarþarfarinnar frá núverand stigi hennar. Er áætlað, að á árinu 1990 fari til rafhitunar 71.80 gígawattstundir og verði sú notkun þá meira en helmingur af orkunotkuninni á Vestfjörðum.

Auk þessa birtist í ákvörðuninni um 5.7 megawatta virkjun trú á framtíð Vestfjarða. Ég tel fulla ástæðu til að vænta þess, að stækkun landhelginnar hleypi nýju lífi í atvinnulíf í Vestfjarðarfjórðungi þannig, að þróunin í raforkunotkun á yfirstandandi áratug verði mun örari en 1960–1970. Í orkuspám, sem gerðar hafa verið fyrir Vestfirði, er þannig reiknað með 6% árlegum vexti notkunarinnar í stað 4.9% á síðasta áratug. Ég tel, að Vestfirðingar séu þannig settir, að þess megi vænta, að fullvinnsla á sjávarafurðum eigi að geta aukizt þar til muna á næstunni, ekki sízt hvers konar lagmetisframleiðsla. En auk þess verður að leggja áherzlu á, að á Vestfjörðum fari fram aukning á iðnaðarframkvæmdum, og í því sambandi er það mjög ánægjulegt, að einmitt um þessar mundir virðast vera að opnast möguleikar á því að flytja út verulegt magn af hreinsuðu og þurrkuðu þangi frá Reykhólum. Ef sú áætlun yrði að veruleika, mundi það efla mjög atvinnuþróun á Vestfjörðum að minni hyggju. En þetta hvort tveggja, húshitunin og hugmyndir um auknar atvinnuframkvæmdir á Vestfjörðum, voru forsendur þess, að ákveðið var að velja stærsta kostinn í sambandi við virkjun Mjólkár.

Með þessari tilhögun á virkjun Mjólkár er talið, að orka árinnar sé nokkurn veginn fullvirkjuð. En þá er Dynjandissvæðið eftir. Nokkrar athuganir hafa farið fram á því, einkum að því er varðar hugsanlegar samvirkjanir þess með Mjólkársvæðinu. Frá slíkri samvirkjun er nú horfið, þar eð kostnaður við hana hefði orðið mjög mikill í hlutfalli við ávinning. Verður því Dynjandi virkjuð út af fyrir sig. Rækileg könnun á heppilegustu tilhögun virkjana í Dynjandi og nálægum vatnsföllum hefst nú fljótlega. Við virkjun Dynjandi verður að taka tillit til náttúruverndarsjónarmiða. Er gert ráð fyrir, að útlit Fjallfoss haldi sér, þrátt fyrir virkjun og er talið, að slíkt megi vel takast, enda þótt það kosti að fórna verði nokkru af orkuvinnslugetunni. Ég hygg því, að Vestfirðingar þurfi engu að kvíða í raforkumálum, ef þær áætlanir, sem nú hafa verið gerðar, standast.

En fyrst ég er farinn að tala um raforkumál Vestfirðinga almennt, þá langar mig í lokin að geta þess, að á Vestfjörðum eru nú miklar framkvæmdir í samhandi við sveitarafvæðinguna. Á þessu ári hefur verið og er unnið að lagningu heimtauga að 72 býlum, og er heildarkostnaður áætlaður á þessu ári um 19.5 millj. kr. á næsta ári er áformað að leggja heimtaugar að 41 býli fyrir rúmlega 18 millj. kr. Og samkv. áætluninni er ráðgert að leggja heimtaugar að 38 býlum á árinu 1974 og verja til þess rúmlega 14 millj. kr. Alls er þarna um að ræða heimtaugar að 151 býli fyrir 51 millj. kr., og er hér um að ræða mjög miklar framkvæmdir eins og marka má af því, að á árabilinu 1947–1971 eða á aldarfjórðungi vorn lagðar heimtaugar að 196 býlum á Vestfjörðum. Nú er sem sé áformað að framkvæma á þremur árum verk, sem slagar hátt upp í það, sem áður var gert á einum aldarfjórðungi.

Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísat til 2. umr. og hv. iðnn.