11.04.1973
Neðri deild: 86. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3361 í B-deild Alþingistíðinda. (2908)
134. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Stefán Valgeirsson) :
Herra forseti. Þetta frv., sem er 134. mál, hefur nú verið í athugun í n. um langan tíma. N. sendi frv. til Húsnæðismálastofnunar ríkisins, Byggingarsamvinnufélags Reykjavíkur, Veðdeildar Landsbankans og ríkisábyrgðasjóðs, og bárust umsagnir frá öllum þessum aðilum. Undir nál. skrifa allir, sem eiga sæti í félmn., og standa að þeim brtt., sem eru á þskj. 637 þrír nm., þeir hv. þm. Gunnar Thoroddsen, Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur G. Einarsson, töldu, að ástæðulaust væri að afgreiða frv. á þessu þingi, þar sem þessi lög ættu ekki að taka gildi fyrr en um næstu áramót, en meiri hl. n. vildi koma frv. fram nú.
Ég ætla að lýsa hér þeim brtt., sem n. stendur öll að því að flytja.
1. brtt. er við 4. gr. 2. málsl. 1. málsgr. orðist svo: „Lágmarkstala stofnenda skal vera 10 manns, en í þeim sveitarfélögum, sem hafa yfir 15 þús. íbúa, skal lágmarkstalan vera 50.“ Í frv. var þetta á þann veg, að lágmarkstala stofnenda skyldi vera 30/00 af samanlögðum íbúafjölda þeirra sveitarfélaga, sem byggingarsamvinnufélagið nær yfir, miðað við 1. des. árið á undan, en þó aldrei lægri en 15 og ekki hærri en 50.
2. brtt. er við 5. gr., en við þá gr. eru tvær brtt. Það er fyrst a-liður: „2. mgr. A-liðar orðist svo: Stofnsjóðsinnstæður félagsmanna skulu geymdar í byggingarsjóði ríkisins, og skulu þær endurgreiddar að viðbættum vöxtum, þegar framkvæmdir hefjast í byggingarflokki viðkomandi félagsmanns. Vaxtakjör skulu vera þau sömu og eru á ársinnstæðubókum viðskiptabankanna á innstæðutímanum.“ Sú breyting felst í þessu, að alveg er fallið frá því að verðtryggja þetta fé í samræmi við þær umsagnir, sem komu frá húsnæðismálastjórn og öðrum aðilum. Voru allir sammála um, að ekki væri fært eftir þær breytingar, sem voru gerðar á l. á síðasta þingi, að verðtryggja þessar innstæður.
Hin brtt. við þessa gr. er, að aftan við 2. málsl. D-liðar bætist nýr málsl.: „Veðdeildarbréf þessi skulu aðeins gefin út á nafn lífeyrissjóðs eða innlánsstofnunar, og fellur ríkisábyrgð niður, ef bréfin eru framseld.“ Í umsögn frá ríkisábyrgðasjóði er bent á, að það sé mikil hætta á því, að svartamarkaðsbrask með þessi bréf mundi aukast, ef þau væru gefin út á þennan hátt, sem í frv. felst. Hins vegar er bent á það í sambandi við suma lífeyrissjóðina, að þeirra reglur munu vera þannig, að þeir vilja ekki lána úr sínum sjóðum öðruvísi en að ríkisábyrgð sé á þessum lánum, ef visst hlutfall hvílir áður á 1. veðrétti, miðað við brunabótamat. N. féllst á þessi rök og leggur því fram þessa brtt.
3. brtt. er við 6. gr.: „Á eftir 3. málsl. 2. mgr. komi ný mgr., svo hljóðandi, og verði þá 4. málsl. sérstök mgr.: Þegar nýr byggingarflokkur er stofnaður, skulu þeir, sem aðild eiga að honum, kjósa 3 menn úr sínum hópi til þessa að fylgjast með fjárreiðum byggingarflokksins. Þessir menn skulu hafa aðgang að öllum gögnum félagsins varðandi þeirra byggingarflokk, vera viðstaddir opnun tilboða og fylgjast með samningum við verktaka. Enn fremur skulu þeir ásamt löggiltum endurskoðanda yfirfara og stimpla með dagsetningu öll fskj. og árita reikninga byggingarflokksins. Þannig frágengnir skulu reikningar lagðir fyrir fund viðkomandi byggingarflokks til staðfestingar.“ Þessi viðbótartill. skýrir sig sjálf. En það hefur verið talið, að þeir, sem eru í þessum byggingarflokkum, eða þeirra fulltrúar, hafi ekki ævinlega fylgzt nægilega með fjárreiðum og öðru í sambandi við byggingarnar og þetta oft og tíðum valdið misskilningi, sem sé hægt að komast fyrir með þessari reglu, og þess vegna leggur n. þetta til.
4. brtt. er við 8. gr.: „Í stað orðanna „eftir afhendingu“ í 1. mgr. komi: frá því að byggingarframkvæmdir hófust.“ Sú breyting, sem lagt er til að verði á þessu, er, að menn megi selja íbúðir sínar 5 árum eftir að framkvæmdir hefjast, en samkv. frv. er það frá afhendingardegi íbúðarinnar.
5. brtt. er við 11. gr., að greinin falli niður. Þessi grein er nánast um það, að ríkisábyrgðasjóður skuli afhenda veðdeild Landsbankans til vörzlu áhættugjald það, sem hann hefur tekið vegna ábyrgðarinnar á undanförnum árum. Í umsögn ríkisábyrgðasjóðs kom fram, að ríkisábyrgðasjóður mun nú vera í ábyrgð fyrir íbúðarlánum að upphæð einum milljarði. Bent er á, að það sé dálítið einkennilegt, ef eigi að svipta sjóðinn þessu gjaldi, sem mun vera 14,6 millj. kr. samtals, en hann eigi eftir sem áður að vera ábyrgur fyrir þessu. Ef hann hefði hins vegar verið losaður við ábyrgðina, væri öðru máli að gegna. N. féllst á þessi rök og leggur því til, að 11. gr. falli niður.
6. brtt. er við 12. gr.: „1. málsl. gr. orðist svo: Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1974 og taka til þeirra íbúða, sem þá hafa eigi verið afhentar eigendum.“