11.04.1973
Neðri deild: 86. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3367 í B-deild Alþingistíðinda. (2913)
223. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. 2. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Meðferð þessa frv. í hv. félmn. þessarar d. hefur verið næsta undarlegt sjónarspil, sem ég kemst ekki hjá að gera að umtalsefni með nokkrum orðum. Hér er út af fyrir sig um gagnlegt frv. að ræða. Það fjallar um auknar heimildir húsnæðismálastjórnar til þess að rétta húsbyggjendum hjálparhönd og er sannarlega engin vanþörf á því. En þetta frv. var hér til 1. umr., að því er ég bezt man, á mánudag fyrir rúmri viku. Þá var því vísað til hv. félmn. Hún heldur fund strax kl. 9 morguninn eftir, og þá kemur í ljós, að formaður n. og meiri hl. hennar vilja afgreiða málið samstundis, fyrir kl. 10, og telja enga athugun á málinu nauðsynlega. Við sumir nm. bentum á, að þetta væri í raun og veru ekkert smá frv., sem hér væri um að ræða. Það væri gert ráð fyrir því að hækka lánsheimildir húsnæðismálastjórnar til venjulegra íbúðalána um 200 þús. kr. Það mundi kosta á ári milli 200 og 300 millj. kr. Enn fremur var gert ráð fyrir því að heimila lánveitingar til byggingar á 1.000 íhúðum, á vegum sveitarfélaga næstu 5 ár. Okkur taldist lauslega svo til, að á 5 árum mundi þurfa fé til þessa, sem næmi 1.600 millj. kr., þ.e. um 300—400 millj. kr. á ári. Hér var því um að ræða frv., sem gerði ráð fyrir því, að til húsnæðisbygginga skyldi varið á ári um 600—700 millj. kr. nýju fé á næstu 5 árum a.m.k. Ég efast ekki um, að full þörf er á því, að húsbyggjendur fái lánsfjárfyrirgreiðslu, sem nemi þessum 600 —700 millj. kr. á næstu 5 árum og raunar þótt lengra væri litið. En fulltrúum stjórnarflokkanna í félmn. hefur engin þörf fundizt vera á því að gera athugun á því, hvort þetta væri rétt áætlað. Við urðum nokkrir aðrir að reikna þetta á hné okkar til þess að vekja athygli meiri hl. á því, að hér væri stórmál á ferðinni. Þeir höfðu enga grein gert sér fyrir því, hvað fælist raunverulega í frv., og þeir töldu enga athugun nauðsynlega, hægt að afgreiða málið á klukkutíma eða helzt hálftíma. Sem betur fer létu þeir sér segjast, að þetta væru ekki alls kostar viðunandi vinnubrögð. Við töldum sumir í n., að það væri a.m.k. nauðsynlegt, þótt ekki væri nema kurteisi, að sýna málið húsnæðismálastjórn, sem væri verið að veita heimildirnar. Kannske gæti húsnæðismálastjórnin upplýst okkur um ýmislegt, sem við gætum ekki reiknað á hné okkar á hálftíma til klukkutíma fundi. Jú, það tókst, — ég segi ekki með harðfylgi, sem betur fer reyndi ekki á það á þessum fundi, en meiri hl. n. lét sér þó segjast að afgreiða málið ekki á þessum hálftíma til klukkutíma fundi, heldur senda málið til húsnæðismálastjórnar. En hún mátti ekki fá nema örstuttan frest til þess að láta sína skoðun í ljós .
Það kom hins vegar heldur betur í ljós, þegar húsnæðismálastjórn fékk að segja sína skoðun, að hún hafði hitt og þetta um málið að segja, og kannske hefur það verið það, sem formaður n. og meiri hl. vildi ekki láta koma fram, hvorki gagnvart n. né gagnvart þingheimi yfirleitt. Ég lýsti strax yfir fylgi við meginstefnu frv., en spurði form. n., hvernig væri háttað fjármálum Húsnæðismálastjórnarinnar í dag, hvernig geta hennar væri til þess að hjálpa þeim húsbyggjendum, sem stæðu í byggingum á árinu 1973? Það hafði hann ekki hugmynd um. Honum kom það ekkert við — ekki nokkurn skapaðan hlut. Það var málinu algerlega óviðkomandi, rétt eins og það skipti ekki nokkru máli, hvort til væru peningar upp í þetta, sem hér var verið að tala um, einar litlar 600—700 millj. á ári. Hvað er það! Honum kom ekkert við heldur, hvernig ástandið væri hjá húsnæðismálasjóðnum í dag. Ég þóttist hafa einhverja hugmynd um, hvernig það væri, hann mundi vanta einhvers staðar milli 500 og 700 millj. kr., hafði ég frétt utan að mér, en fékk enga staðfestingu á því í n. Það var þá a.m.k. bezt að fá það klárt hjá húsnæðismálastjórninni sjálfri, hvernig þessu er raunverulega háttað og hvort einhver von stæði til þess, að hægt væri að útvega þetta fé. Það væri þó í öllu falli, sagði ég við meiri hl. n., kjarni málsins, að þeir, sem nú stæðu í byggingum, fengju sitt fé, áður en veifað væri loforðum framan í hina, sem ætluðu sér að fara að byggja á næstu 5 árum. Ég lít þannig á, að mér hafi tekizt að sannfæra formann og meiri hl. um, að þetta væri ómaksins vert, því að hann féllst á að fresta afgreiðslu málsins og leita umsagnar húsnæðismálastjórnar. Þegar þau plögg komu, voru þau í hæsta máta athyglisverð. Það komu nefnilega 3 álit frá húsnæðismálastjórninni, og það skemmtilega við þessi álit var það, að skiptingin fór engan veginn eftir flokkaskiptingu í húsnæðismálastjórninni, m.ö.o. venjuleg flokkspólitísk sjónarmið höfðu engin áhrif á umsagnir húsnæðismálastjórnarinnar. Það er sérstaklega athyglisvert og raunar til fyrirmyndar, að menn skuli ekki skiptast þar í hópa út frá fylgi við stjórnmálaflokka, stjórn eða stjórnarandstöðu. 5 af meðlimum húsnæðismálastjórnarinnar skrifuðu undir aðalálitið, og kom í ljós, eins og ég raunar bjóst við og hafði verið mín skoðun, að frv. stefndi efnislega séð í rétta átt. En þeir benda á það, Sigurður Guðgeirsson, Jón H. Guðmundsson, Þráinn Valdimarsson, Ólafur Jónsson og Haukur Vigfússon, að það þurfi þó enn frekar en að hrinda þessu í framkvæmd að sjá um það, að hægt sé að standa við loforðin gagnvart fólkinu, sem nú er að byggja. En þeir segja, að það vanti a.m.k. 550 millj. kr. til að geta fullnægt lánaþörf þeirra, sem nú eru að byggja. Svo bæta þessir ágætu menn við, sem bæði tilheyra stjórnarflokkum og stjórnarandstöðuflokkum, með leyfi hæstv. forseta:
„Slík lagasetning sem þessi verður því dauður bókstafur, nema sjóðnum verði séð fyrir nýjum tekjustofnum til þess að mæta þessu viðamikla verkefni, sem frv. gerir ráð fyrir. Er því ekki raunhæft að ætla sjóðnum að sinna nýjum verkefnum nema sjá honum um leið fyrir nýjum tekjustofnum.“
Ég bendi á, að þetta eru ekki orð stjórnarandstöðumanna í húsnæðismálastjórninni. Stuðningsmenn stjórnar og stjórnarandstöðu sameinast um þessa skoðun, sem vitanlega er öldungis rétt. Það var þetta, sem ástæðulaust þótti að láta koma fram af hálfu þeirra, sem vildu afgreiða málið á hálftíma í hv. félmn.
Svo er hér annað álit frá tveimur öðrum ágætum mönnum í húsnæðismálastjórninni, Ólafi Jenssyni og Gunnari Helgasyni. Annar er, að því er ég bezt veit, stuðningsmaður stjórnarinnar og hinn stjórnarandstæðingur. Þeir vilja gera breytiagar á frv. og finnst ekki nógu langt gengið hjá hæstv. ríkisstj. Þeim finnst ekki nóg að hækka heimildirnar upp í 800 þús. kr., heldur vilja hækka þær upp í 900 þús. kr., auk þess sem þeir segja, með leyfi hæstv. forseta:
„Auk þess telur stjórnin, að byggingarsjóð muni vanta á þessu ári allt að 700 millj. kr. til að geta veitt svipaða fyrirgreiðslu varðandi lánveitingar og var á s.l. ári.“
Það er ekkert ósamræmi í þeim tölum, sem fimmmenningarnir nefna, og því, sem tvímenningarnir segja hér. Fimmmenningarnir miða aðeins við lánsfjárþörf til íbúðarhúsabygginga, sem í gangi eru hjá einstaklingum, en hinir miða við sams konar fyrirgreiðslu til húsbyggjenda, þ.e. þeirra, sem byggja íbúðir til þess að selja, sem nam um 150 millj. kr. á s.l. ári. Þess vegna eru þeir með 150 millj. kr. hærri tölu og segja, að 700 millj. kr. vanti í húsnæðismálasjóðinn. Eru báðar tölurnar réttar, ef þær eru rétt skýrðar.
Og svo er einn á báti sá ágæti og gamalreyndi baráttumaður í húsnæðismálum, Hannes Pálsson, sem, að því er ég bezt veit, er framsóknarmaður, enn þá a.m.k. En hann segir m.a. þetta í sínu áliti, með leyfi hæstv. forseta:
„Að lokum viljum vér benda á það, að það er lítils virði að ákveða hámarkslán til þessarar eða hinnar framkvæmdarinnar, en hafa enga tilburði uppi um það að sjá um fjármögnun til framkvæmdanna. Vér skorum því“ — hann er einn undir, en segir: „Vér skorum því“— það er konunglegur blær á þessu: „Vér skorum því á hv. félmn. að gera till. til Alþ. varðandi aukna fjáröflun, sem nemi allt að 550 millj. kr. á þessu ári. Sé það ekki gert, eru allar samþykktir um hækkun lána sýndarmennskan ein og kemur að takmörkuðu gagni.“
Þetta eru hin konunglegu ummæli stjórnarstuðningsmannsins Hannesar Pálssonar um þá ríkisstj., sem hann styður af heilu hjarta: Sýndarmennskan ein, sem hér er á ferðinni. Ég vek athygli á, að þetta eru ekki orð stjórnarandstæðings, heldur sjálfs Hannesar Pálssonar, eins elzta mannsins í húsnæðismálastjórn. Það var von, að það þætti óþarfi af formanni n. og meiri hl. hennar, að leita eftir skoðunum þessara manna. Hann hefur líklega verið kunnugri í herbúðunum en ég var, og vitað, hvernig vindurinn blési þaðan, og ekki viljað láta þennan vind berast til n., hvað þá í sali hins háa Alþ. En ég er nú búinn að sjá til þess, að alþm. geti lesið þessa skemmtilegu lesningu, bæði þá ókonunglegu og konunglegu, því að ég hef látið prenta þessar umsagnir með nál. mínu.
Það hefur sem sagt verið upplýst í n. á þessari tæpu viku, sem við höfðum þetta mál til meðferðar, að það vantar nú á þessu ári um 700 millj. kr., til þess að hægt sé að halda uppi sams konar stuðningi við húsbyggjendur og var á s.l. ári. Og nú hefur meiri hl. n. mælt með frv., eins og við minni hl. gerum raunar líka, þótt á öðrum forsendum sé. Meiri hl. n. hefur ekki talið ástæðu til þess að vekja athygli á því, að hvorki verður af framkvæmdum á sviði húsbyggingarmála né á nokkrum öðrum sviðum, án þess að fjár sé aflað til þess. Þeir sjá enga ástæðu til þess og ætlast ekki til neins af sinni eigin ríkisstj. í þessum efnum. Ég mæli hins vegar með samþykkt frv. fyrir hönd Alþfl. með þeirri eindregnu áskorun til hæstv. ríkisstj. og þá sérstaklega auðvitað hæstv. félmrh. og hæstv. fjmrh., að þeir láti verða af því að útvega það fé, ekki aðeins sem vantar í ár, heldur þarf til þess að framfylgja þessu frv., sem hér er um að ræða og er gott og gagnlegt að því er stefnumörkun varðar. Engin slík góð áskorun fylgir af hálfu meiri hl. til hæstv. ríkisstj. Honum er alveg sama, hvort til eru peningar til þess að framkvæma þetta eða ekki. Mér er hins vegar ekki sama um það og þess vegna tel ég það skyldu mína, um leið og ég mæli með frv., að vekja athygli á fjárþörfinni í ár og þeirri auknu fjárþörf, sem samþ. þessa frv. mundi hafa í för með sér. Þess vegna fylgir meðmælum mínum með frv. einlæg og ákveðin áskorun til hæstv. ríkisstj. um að leggja sig alla fram til þess að afla fjárins, sem vantar í ár og kemur til með að vanta á næstu 5 árum, ef þetta frv. verður samþykkt, sem allar líkur benda til. Ég tel nefnilega ekki hægt að lifa eftir þeirri heimspekireglu, sem einu sinni var vitnað til á þeim þremur fundum, sem um þetta voru haldnir í n., að hið sama megi gilda um húsbyggjendur og hæstv. forsrh. sagði, að yrði að gilda um atvinnurekendur árið 1973, þegar bent var á það af hálfu forustumanna atvinnurekendasamtaka, að þeir sæju ekki fram á annað en á árinu 1973 yrði halli á rekstri fjölmargra atvinnufyrirtækja í landinu, þá var það haft eftir hæstv. forsrh., að þeir yrðu bara að kasta sér til sunds, þó að þeir sæju hvergi nokkurs staðar til lands, og er þetta orðið frægt. Ég vil hins vegar ekki ætla húsbyggjendum þessi örlög, að þeir kasti sér til sunds í húsbyggingarmálum án þess að sjá nokkurs staðar til lands. Ég tel það skyldu hæstv. ríkisstj. að ganga þannig frá fjármálum Húsnæðismálastofnunarinnar, að þeir, sem leggja út í húsbyggingar í ár og á næstu 5 árum, sjái til lands. Og ég treysti hæstv. félmrh. miklu frekar en hæstv. forsrh. til þess að vinna að þessu og tryggja að atvinnuvegirnir sjái til lands á árinu 1973. Með þessum góðu óskum til hæstv. ríkisstj., sérstaklega hæstv. félmrh., og með loforðum um að styðja hann í hvívetna í því að afla nauðsynlegs fjár, mæli ég með því, að frv. verði samþ.