11.04.1973
Neðri deild: 86. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3371 í B-deild Alþingistíðinda. (2914)

223. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég kannast ekki við, að það hafi verið neitt erfitt fyrir hv. síðasta ræðumann að fá n. til að senda þetta mál til umsagnar. Ég kannast ekki við það. Hitt er alveg rétt, að ég sem formaður n. lagði til, að við afgreiddum málið strax. Ástæðurnar fyrir því voru þær, að þetta mál er ákaflega einfalt. Ástæðurnar voru þær, að það var búið að ákveða, hvenær þingslit yrðu, og ég vildi ekki verða til þess, að þetta mál yrði ekki afgreitt á þessu þingi. Ég man nú ekki betur en hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason vissi meira um, hvernig ástæður væru hjá byggingarsjóði, heldur en hann vill nú vera láta hér í ræðustóli. Og ég vil líka benda hv. þm. á það, að hann kemur ekki fram með nokkra brtt. við þetta frv. þrátt fyrir þessa skoðun — ekki neina. Og hann samþykkir, að þetta frv. gangi fram óbreytt.

Hannes Pálsson hefur áður kvatt sér hljóðs í sambandi við húsnæðismál, og hann er alltaf samkvæmur sjálfum sér, en það er meira en hægt er að segja um hv. þm. Gylfa Þ. Gíslason. Hann hlustaði ekki mikið á það, þegar hann var ráðh., sem Hannes Pálsson var að tala um þessi mál.

Ég man ekki betur en eftir samningana við verkalýðsfélögin í sambandi við Breiðholtsframkvæmdirnar lofaði sú ríkisstj., sem hv. þm. var ráðh. í, sérstöku fjármagni til þeirra bygginga. Hvenær kom það fjármagn? Ætli þm. vilji svara því? Ég man ekki betur en það væru um 30 millj., sem fyrrv. ríkisstj. útvegaði beint til þessara framkvæmda. En á þessu ári t.d. er gert ráð fyrir, að það þurfi þriðjunginn af því ráðstöfunarfé, sem enn er vitað, að húsnæðismálastjórn hefur til umráða, bara í þessar einu framkvæmdir. Það getur vel verið, að hv. þm. sé það minnugur, að hann geti bent á, að á vordögum hafi það verið einhvern tíma vitað, hvort húsnæðismálastjórnin fengi það fjármagn, sem hún þurfti á því ári, sem var að líða hverju sinni. En ég held, að það hafi aldrei komið það ár, að það hafi þá verið vitað, hvernig ætti að útvega fjármagn bæði í þennan sjóð sem og í aðra fjárfestingarsjóði. Það a.m.k. er þá fyrir þann tíma, að ég kom hér til þings, ef það hefur verið. Ég held nefnilega, að það sé ekkert nýtt í þessu út af fyrir sig. Hitt veit ég og vissi ekkert síður en hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, að það þurfti og þarf á fjármagni að halda, en ég treysti ríkisstj, til þess að leysa það mál. Ég man ekki betur en á síðasta ári væri talað um, að það vantaði svo og svo mikið í byggingarsjóð húsnæðismálastjórnar. Það reyndist, sem betur fór, að það vantaði minna en gert var ráð fyrir, og það er oft mjög erfitt að segja um það fyrir fram, hvað vantar í raun og veru í þessa sjóði.

Það kemur fram í áliti þriggja af stjórnendum Húsnæðismálastofnunarinnar, að það hefði átt að hækka lánin meira en upp í 800 þús. En hvaða ríkisstj. var það, sem sat að völdum 1970 og í raun og veru stóð að því að lækka þessi lán? Ég man ekki betur en ég benti þá hv. þm. og ráðh. á það þá, að það væri verið að stíga spor aftur á bak. Sannleikurinn er sá, að miðað við reglugerðina frá 1964, að mig minnir, að hún sé, hefðu lánin átt að vera núna 925 þús. á íbúð, en samkv. þeirri reglugerð, sem ég hef hér í höndum og Emil Jónsson gaf út 1970, hefðu þessi lán átt að vera tæpar 800 þús. Ef hægt er að ásaka einhverja um, að þessi lán eru ekki hærri en þetta, þá skulu þessir hv. þm. ásaka sjálfa sig. Þetta eru þeirra verk. (Grípið fram í: Er engin leið að gera betur?) Það er sjálfsagt hægt að gera betur en fyrrv. ríkisstj. og ég efast ekkert um, að það verði gert. En það er ekki hægt að gera allt í einu.

Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þetta miklu meira. Það er ekkert nýtt fyrir mér eða meiri hl. félmn., að það sé vitað, að það vanti fjármagn til Húsnæðismálastjórnar, og þannig er það með fjárfestingarsjóðina. Það hefur alltaf verið þannig, og ég vil sérstaklega undirstrika það hér. En ég treysti því, og það var í þeirri trú, að ég lagði til, að þetta frv. væri afgreitt strax á fyrsta fundinum. Ég sé ekki, að það hafi verið mikið nýtt upplýst í málinu, hvorki fyrir mér né hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasyni, þó að þessi töf hafi orðið á í sambandi við afgreiðslu málsins.