02.11.1972
Sameinað þing: 11. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

11. mál, starfshættir skóla

Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þessa till. flutti ég á síðasta þingi, þegar mjög var liðið á þingtímann. Hún náði ekki afgreiðslu, henni var vísað til n., en fékk ekki frekari meðferð þá. Hún er því endurflutt nú óbreytt að efni. Tillgr. er svo hljóðandi:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta rannsaka: 1) aðstöðu til líkamsræktar í skólum landsins, 2) vinnuálagið í skólum. Rannsókninni skal hraða svo sem tök eru á, og gera skal Alþ. grein fyrir árangri þegar að rannsókn lokinni.“

Ég vil leyfa mér að gera nokkra grein fyrir þessum tillöguflutningi. Það vita allir hv. alþm., að skólamálin almennt hafa verið mjög í deiglunni á undanförnum árum. Þau hafa verið til meðferðar hér á Alþ. í ýmsum frv. um skólamál. Sum þeirra hafa verið útrædd og afgreidd, en önnur ekki, eins og gengur. Sum hafa verið tekin aftur til endurskoðunar og meðferðar hjá stjórnarvöldum. Þannig var t.d. grunnskólafrv. það, sem flutt var í íið fyrrv. ríkisstj. og nú er í skoðun hjá sérstakri n. og boðað hefur verið, að muni verða lagt fyrir þetta þing.

Það eru því ennþá starfandi nefndir, sem fjalla um þessi mál og undirbúa væntanlega víðtækar breytingar á skólakerfinu í heild. Mér finnst ekkert undarlegt, þó að mörg járn séu í eldi varðandi þessi umfangsmiklu mál, fræðslumálin, því að hér er vissulega mikið í húfi. Útgjöld hins opinbera vegna skólahalds almennt í landinu eru afar mikil. Samtalan á þeim dálki fjárl., sem heyrir undir menntmrn., er eitthvað nálægt 3 milljörðum kr. á árinu 1972. Það er að vísu ekki allt vegna skólakostnaðar, en þá er hins að gæta, að sá kostnaður, sem ríkið greiðir þar, er ekki nema hluti af heildarkostnaði við skólamálin í landinu. Ef með er einnig talin sú vinna, sem skólanemendur sjálfir leggja fram á sínum skólaárum, er áreiðanlega óhætt að tvöfalda þessa tölu, sem fjárl. greina frá, án þess að nokkrar ýkjur séu í frammi hafðar um það, sem lagt er af mörkum við framkvæmd fræðslunnar í landinu.

Skólarnir eru tvímælalaust eitt stærsta starfssviðið í þessu þjóðfélagi, næst á eftir heimilunum sjálfum. Í vor er leið var sagt frá því í fréttum útvarps, að í skólum landsins væru þá um 63 þús. manns. Þegar við svo íhugum enn fremur, að þarna er um að ræða ungt fólk, sem er í mótun, og í húfi er bæði andlegur og líkamlegur þroski þess, og það ræðst kannske alveg sérstaklega á skólaárunum, hvert verður viðhorf alls þessa fólks til þjóðfélagsins, má öllum vera ljóst, hvað hér er í raun og veru mikið í húfi.

Heimilin voru áður svo til einráð um uppeldi þegnanna, en þetta hefur breyzt. Enn þá eru það heimilin, sem móta hina uppvaxandi borgara fyrstu árin, en síðan bætast skólarnir jafnframt við. Þegar þess er hvors tveggja gætt, hvað skólatíminn er í mörgum tilvikum orðinn langur og fræðslan orðin kerfisbundin innan skólanna, hugsa ég, að það séu orðin áhöld um, hvor hafi sterkari áhrif á mótun fólksins, heimílin eða skólarnir. Ég held þess vegna, að óhætt sé að segja, að það varði alþjóð meira en flest annað, það sem fram fer innan veggja skólanna. Það er þess vegna ekki óeðlilegt, þó að oft sé rætt um þessi mál hér á Alþ. og lagðar fram ýmsar till., bæði um heildaraðgerðir í málunum og einstök og afmörkuð atriði, eins og fjallað er um í þessari till.

Nú vil ég segja það, að enda þótt ég a.m.k. vænti mikils árangurs af þeirri vinnu, sem lögð er í að undirbúa skólamálin í heild, er mér ljóst, að öll sú meðferð og mótun hlýtur að taka mjög langan tíma, jafnvel þótt unnið verði að því að fullum myndarskap. En þessi till., sem ég leyfi mér að flytja, er nánast um það, að látin verði fara fram skyndiathugun á tveimur afmörkuðum sviðum í skólamálunum. Ég vil nú gera grein fyrir ástæðunum til þess, að ég flyt þessa till., og þá fyrst fara nokkrum orðum um þann þátt, sem fjallar um vinnuálagið.

Það er almennt álit, held ég, að mér sé óhætt að segja, að það sé mjög handahófskennt, hversu mikið vinnuálag er í hinum ýmsu skólum og skólastigum. Það mun hafa verið á næstsíðasta þingi sem nokkrar umr. urðu um þetta efni hér í þingsölum. Ég held, að það hafi verið við 1. umr. um frv. til l. um skólakerfi, sem þá var lagt fram í Nd Alþ., og að þessar umr. hafi farið fram í jan. 1971. Hv. 1. þm. Austf., Eysteinn Jónsson, flutti þá ræðu, sem síðan var birt í blöðum og útvarpi og vakti þá töluverða athygli. Hann ræddi þar um vinnuskilyrði skólafólks almennt, einkum varðandi heimavinnuna. Hann sýndi fram á í þessari ræðu, hversu hún oft og einatt og á ýmsum skólastigum er í engu samræmi við almennan vinnutíma fullorðins fólks. Eftir skólatíma á daginn er unglingum oft gert að vinna heima margar klukkustundir og oft við allsendis ófullnægjandi vinnuskilyrði, eins og að líkum lætur, miðað við þann húsakost, sem fyrir hendi er hjá fjölskyldum. Áreiðanlega er hann í engu miðaður við þessar sérþarfir, þegar hann er teiknaður og undirbúinn. Jafnvel stóru, nýju húsin okkar eru ekki sérlega heppileg til þess að gefa tækifæri eða veita næði til starfa, eins og heimavinnu skólafólks. Ég man, að hann benti sérstaklega á það, hversu niðurdrepandi það hlyti að vera — andlega séð — að hafa fyrir framan sig, kannske árum saman og dag eftir dag næstum óyfirstíganleg eða alveg óviðráðanleg viðfangsefni og finna alltaf inni í sér, að þeim verði ekki lokið á fullnægjandi hátt. Hann varaði þá við því sérstaklega, að verkefnin, sem nemendum væru ætluð heima, væru miðuð við harðsæknustu nemendurna eða afburðafólkið. Þar þyrfti að sjálfsögðu að miða við getu hins almenna nemanda. Orðrétt sagði þessi hv. þm. m.a. á þessa leið:

„Það verður að finna nýjar leiðir í verkstjórn í skólum, svo að námið verði eins og eðlileg vinna unnin á eðlilegum tíma“ Og í lok þessarar ræðu sinnar komst Eysteinn Jónsson m.a. þannig að orði, ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa þau ummæli: „Það verður að ryðja nýjar brautir með hjálp þeirrar reynslu, sem aðrar þjóðir hafa. Ég þekki fólk, sem á heima á Norðurlöndum og á unglinga í skólum, sem eru þannig settir, að þeir fara á morgnana kl. 8 að heiman, koma svo heim aftur um kl. 4 og hafa þá lokið dagsverki oftast nær. Þetta er eins og annað líf, þetta er eðlilegt líf. Hjá okkur líkist þetta engu eðlilegu lífi. Það er nánast eins og martröð. Við erum náttúrlega samdauna þessu, og það þarf sjálfsagt mikið átak til þess bara að sjá þetta, gera sér grein fyrir þessu, því að það liggur hér í landi að ætla unglingum miklu meira verk en fullorðnu fólki, og niðurstaðan er líka eftir því oft og tíðum,“ sagði þessi hv. þm. í niðurlagi ræðu sinnar um þetta efni.

Eins og ég sagði áðan, var þessi ræða birt í útdrætti í blöðum og vakti töluverða athygli og ýmsir tóku í sama strenginn, að þarna væri víða mikið handahóf og sums staðar væri þannig ástatt, eins og hv. þm. lýsti.

Síðan þessar umr. fóru fram og raunar áður hef ég oft hugleitt þessi mál, og þennan þátt þá sérstaklega, og rætt við ýmsa foreldra, sem eiga börn í skóla eða unglinga og á ýmsum skólastigum. Þeir segja mjög margir, að það sé álit sitt, að heimavinnan sé óeðlilega mikil og aðstaðan til að leysa hana af hendi engan veginn viðunandi. Sumir halda því fram, að börn þeirra sitji lon og don yfir skólabókum, þegar þeim kemur eftir skólatíma á daginn, og verði þá sáralítill eða enginn tími til þess að lesa bækur um annað efni, hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp eða stunda félagslíf, sem sagt lítið um tíma til þess að sinna slíkum hlutum, sem almennt eru taldir heyra til eðlilegu nútímalífi. Hitt er svo einnig til og sannar það, sem ég sagði, að þetta væri breytilegt, að sumir aftur á móti kannast ekki við þetta. Þeir hafa ekki þessa reynslu af sínu fólki, heldur telja, að því sé ætlað eðlilegt starf, og ég hygg, að báðir hafi rétt fyrir sér í aðalatriðum, hvort tveggja sé til. Nú er það auðvitað svo með nemendur í skólum eins og annað fólk að þeir eru ákaflega ólíkir, sumir röskir til verka, aðrir seinfærir. Við vitum, að menn eru mismunandi kappsfullir við verk.

En þrátt fyrir þær staðreyndir, hef ég þó dregið þær ályktanir af því, sem ég hef komizt á snoðir um almennt um þessi mál, að það sé hvergi nærri nógu gott skipulag í þessum efnum né nægilegt samræmi á milli einstakra skóla og skólastiga og að skjótra aðgerða sé þörf í þessu efni.

Við þessa almennu vitneskju, sem ég þykist hafa fengið um þetta mál. bætist svo það, að s.l. vetur varð ég persónulega vitni að einu afbrigði vinnuálags í skólum, sem vakti furðu mína og raunar óhug. Þetta var í handavinnudeild Kennaraskóla Íslands. Ég fylgdist mjög náið með nokkrum nemendum í þessum skóla. Eftir því sem ég komst næst, eru þar mjög dugandi kennarar. Ég þekki þá ekki persónulega, en allt, sem þessir nemendur, sem ég aftur á móti þekki allnáið, hafa af þeim að segja, það er yfirleitt mjög gott. Þeir eru góðir í umgengni og hjálpsamir við nemendur og hvetja þá að ljúka verkefnum, og allt er eðlilegt á þennan hátt. Ég hygg og er raunar sannfærður um, að þeir, sem þarna nema, ná mjög mikilli leikni í störfum, og kennslan er mjög fjölbreytt, a.m.k. hjá stúlkunum, en ég þekki sérstaklega til hjá þeim. En það er heimavinnan þarna, sem ég ætlaði að gera að umtalsefni, og það er einkum tvennt í sambandi við hana, sem vakti sérstaka athygli mína. Annars vegar það, að algerlega virðist skipta í tvö horn um heimavinnuna eftir því, hvort í hlut eiga piltar eða stúlkur. Eftir því sem ég veit bezt, njóta þó bæði kynin alveg sömu réttinda að námi loknu, eiga kost á kennslu í sömu skólum, á sömu skólastigum, og eftir því sem ég bezt veit, hljóta þau sömu laun. En mismunurinn á heimavinnu kynjanna virðist mér alveg afskaplegur. Piltarnir vinna að sjálfsögðu við ýmis þyngri verkfæri. Þarna eru auðvitað notaðir hefilbekkir og margs konar smíðavélar sem ekki verða fluttar heim í íbúðir né eru til á heimilum. Af því leiðir eðlilega, að heimavinna pilta verður lítil og nánast engin. Ég hef það fyrir satt, að það sé ekkert óalgengt, að dugmiklir piltar í þessari deild vinni aðra vinnu seinni hluta dags og á kvöldin. Aftur á móti eru heimaverkefnin hjá stúlkunum ákaflega mikil. Eins og ég sagði áðan, finnst mér þessi mismunur vera algerlega óeðlilegur, miklu meiri en hægt er að forsvara, sérstaklega miðað við það, að bæði kynin stefna að sömu réttindum, sama prófi og væntanlega sömu launum að námi loknu. Þetta er annað atriðið varðandi heimavinnuna þarna.

Hitt er svo varðandi sjálft vinnuálagið hjá stúlkunum. Ég þekkti þetta mjög vel, eins og það var í fyrra, vegna persónulegra kynna minna af nokkrum nemendum úr átthögum mínum. Ég varð þá vitni þess, að það var föst venja að fara á fætur milli sjö og hálf átta kannske tæplega sjö að morgni, enda átti að koma í skólann upp úr kl. átta. Tímum lauk mismunandi snemma dags, eins og algengt er, en það var mjög algengt, að unnið væri áfram í skólanum daglangt, vegna þess að það þótti betri aðstaða til vinnu og nemendur gátu þar unnið saman. Síðan var komið heim nálægt kvöldmatartíma, maturinn gleyptur í sig og síðan setzt við vinnu á ný. Það var unnið 6 daga vikunnar til kl. eitt og tvö á hverri einustu nóttu og ekki tekið algert frí á sunnudögum, það get ég einnig fullyrt. Og þannig gekk þetta allan veturinn.

Ég læt þess getið í grg., að það séu dæmi til þess, að í skólum sé vinnuálagið, sem ég hef leyft mér að nefna svo, ekki 40 klukkustundir, eins og nú er í hinni almennu vinnuviku, heldur 80. Í raun og veru er hér allt of grunnt tekið í árinni, en ekki of djúpt, því að eins og ljóst má vera af þeim tímasetningum, sem ég nefndi, er vikulegur vinnutími miklu lengri en 80 klukkustundir. Þegar við þetta bætist svo það, að vinnan þarna er ákaflega einhliða, handavinna við saum, hekl, prjón og ýmislegt annað, sem kallað eru kvenlegar hannyrðir, held ég, að öllum megi vera ljóst, að þetta er ekki álitlegt. í þessari deild eru mjög fáir bóklegir tímar, og s.l. vetur var þarna engin leikfimikennsla um hönd höfð og engin líkamsrækt stunduð af nokkru tagi.

Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til þess að gera sér nokkra hugmynd um það, hvernig komið sé fyrir fólki heilsufarslega séð, sem búið er að sitja 7–8 mánuði við svona vinnubrögð og þessi skilyrði. Ég ætla ekki að fara um það mörgum orðum, en mér var kunnugt um það, að mjög algeng einkenni, þegar líða tók á vetur, — voru þreyta, bæði andleg og líkamleg, þyngsli í höfði og vöðvabólgur á hálsi og herðum. En sumir — og ég hygg raunar allmargir af nemendum leituðu læknis, þegar leið á vetur. Mér finnst þetta minna á gömlu sögurnar um tóvinnuna á vetrum. En þá voru bara engin vökulög sjómanna og ekki búið að finna upp 40 stunda vinnuviku. Þá notuðu menn vökustaura, þegar leið á vökuna. Þeir eru nú ekki til lengur. En það skal þá lukka til, að það séu ekki komnir aðrir vökustaurar og ekki hollari, sem gripið er til, þegar allt um þrýtur.

Það má vissulega spyrja, hverju svona vinnubrögð þjóni, hvort ekki sé hægt að haga þessu með einhverjum öðrum hætti án þess að tapa verulega á því. Það má spyrja, hvort verið sé að búa fólk undir frjótt og hamingjusamt lífsstarf með þessum vinnubrögðum eða hvort það sé eitthvað annað, sem þarna er að gerast.

Nú vil ég manna síðastur mælast undan því, að ungt fólk starfi, eða mæla með iðjuleysi ungmenna. En ég held, að það sé bezt að hafa hóf í hverjum máta og menn ættu a.m.k. að geta orðið sammála um það, af því að skólanám er auðvitað vinna eins og annað, sem menn leggja fyrir sig á ýmsum æviskeiðum, að gera álíka kröfur um vinnutíma og afköst til fólks á skólaaldri og gerðar eru til fólks, eftir að það er komið úr skólanum. Ég vissi, að þegar sumir þessara nemenda, sem ég tók dæmi af, luku skóla, fóru þeir að vinna hér á almennum vinnustað. Þar var ekki unnið nema 40 stundir á viku. Ekki var snert við verki á laugardögum og sunnudögum. Það var komið heim yfirleitt kl. 4 og farið litlu fyrr af stað en í skólann. Í þessu er lítið samræmi. Afkastageta nemenda í nefndu dæmi hefur án efa verið misjöfn. En vert er að minna á, að allir, sem í þessum skóla starfa, hafa lokið gagnfræðaprófi eða landsprófi, og það gerist ekki án vinnu og verulegrar áreynslu. Og þessir nemendur, t.d. sem ég þekki persónulega og hef tekið sem dæmi, eru einnig þaulvanir að vinna önnur störf, síldarsöltun, í frystihúsum, landbúnaðarstörf og ýmis önnur líkamleg störf. Þeir eru því bæði vanir skólavinnu og líkamlegri áreynslu í tölvert ríkum mæli. Ég vil aftur minna á það, sem ég sagði áðan í öðru sambandi, að álag á nemendur í skólum verður að miðast við eitthvert meðallag.

Ástæðan til þess, að ég tek það ráð að skýra frá þessum ákveðnu dæmum, er sú, að ég nauðaþekki þau og þau eru beinlínis hvati að þessum tillöguflutningi. En með vísun til þeirra atriða, sem ég drap á úr ræðu hv. 1. þm. Austf. fyrr hér á Alþ., og til viðtala minna við fólk, sem á börn í öðrum skólum og á allt öðrum skólastigum, vil ég taka það skýrt fram, að ég tek ekki þetta dæmi fyrst og fremst vegna þess, að ég álíti, að þarna sé um eitthvert einsdæmi að ræða, heldur læt ég það koma hér fram til þess að skýra myndina. Ég álít, að aðgæzlu sé þörf miklu víðar en þarna, bæði um sjálft vinnuálagið og mismunun þá, sem er á milli kynja, alveg sérstaklega í sambandi við handavinnukennslu á ýmsum skólastigum. Ég veit, að slík mismunun kemur fram miklu víðar. Ég vil líka taka það alveg skýrt fram, að ég er sannfærður um, að þar sem slík mistök hafa átt sér stað eins og ég nú hef verið að lýsa, því að ég kalla þetta mistök, eiga þau sér ekki stað að yfirlögðu ráði eða neitt í þá átt, að kennarar ætli sér að leggja óhóflega mikla vinnu á nemendur sína. Það er ekki tilgangurinn, því fer fjarri. En sannleikurinn er sá, við þekkjum það svo viða, að vaninn er sterkur og erfitt að breyta því, sem orðið er viðtekin venja.

Annar þáttur þessarar till. fjallar um aðstöðu til líkamsræktar. Nú hefur það lengi verið í lögum landsins, að öllum ungmennum skuli séð fyrir nokkurri kennslu í leikfimi og öðrum líkamlegum íþróttum. Þó að þetta hafi lengi verið í lögum, er öllum ljóst, að mjög er áfátt, að þeim lagaákvæðum sé framfylgt. Það skortir víða húsnæði, segja menn, til þess að hægt sé að uppfylla þær kröfur, sem lög gera í þessum efnum, og það er rétt. Sannleikurinn er þó líka sá, að margt er hægt að gera án fullkomins húsnæðis, ef nægur vilji er fyrir hendi, og meira að segja án nokkurs húsnæðis. Við höfum sjálfsagt flestir hv. þm. séð dæmi um, þegar nemendur úr Menntaskólanum við Tjörnina eru á hlaupum hérna í kringum Tjörnina, það sést stundum út um gluggana á nefndarherbergjum í Þórshamri. Mér hefur verið sagt, að þetta sé gert fyrir áeggjan leikfimikennara þeirra, sem grípur til þessa ráðs í húsnæðisvandræðum sínum. Þannig er það ljóst, að margt er hægt að gera, ef viljinn er fyrir hendi, þó að aðstaða sé ekki hin fullkomnasta.

Ég vil leyfa mér að láta í ljós þá skoðun, að við eigum yfirleitt að geta látið í té sæmilega aðstöðu til þess, að unnt sé að stunda líkamsrækt við skóla okkar með eðlilegum hætti, ef nægilegrar hagsýni er gætt í framkvæmd. En mér er það mjög til efs, að í skólamannvirkjagerð okkar — og reyndar í allri húsagerð okkar Íslendinga — hafi verið gætt nægilega mikillar hagsýni. Nú er þetta auðvitað atriði, sem ég á erfitt með að tala um. Ég er ekki neinn sérfræðingur í þessum efnum og hef þar að auki ekki haft svo náin kynni af einstökum atriðum, þó að sitt af hverju sjáist álengdar. Ég skal þó nefna eitt dæmi, sem sýnir, hvað oft er losaralega á málum haldið varðandi hagsýni í sambandi við gerð skólamannvirkja.

Það var fyrir nokkrum árum, að ákveðið var að byggja kennarabústað við skóla úti á landi og beðið um teikningu frá opinberu aðílum. Þetta var bústaður fyrir einn kennara. Teikningin kom. Íbúðin var 182 fermetrar, minnir mig. Stofan í þessum kennarabústað var 14 metra löng. Hún hét ýmsum nöfnum, dagstofa, borðstofa og barnastofa og ég man ekki hvað og hvað, en öll lengdin var 14 metrar. Það var aldrei byggt eftir þessari teikningu, heldur annarri, lítið betri. En það, sem eiginlega gerir þessa mynd enn þá furðulegri, er það, að þessi bygging átti að vera við Húsmæðraskóla. Nú er það ekki svo, að ég unni húsmæðrakennurum ekki rúmgóðs húsnæðis eins og öðrum kennurum. En sannleikurinn er bara sá, að í mjög mörgum tilfellum koma húsmæðrakennarar úr húsmæðrakennaraskóla, starfa einu eða tvo vetur, giftast og eru svo farnir. Það er ekkert notalegt fyrir nýútskrifaðan kennara að koma í 183 fermetra íbúð og setja sig þar niður til eins eða tveggja vetra. En hvað um það, þá fannst mér þetta nánast fáránlegt og ekki bera vott um sérlega hagkvæmni í skólamannvirkjagerð Íslendinga.

Þetta er bara eitt dæmi, en ef þau eru mörg svona, þá er þar kannske nokkur skýring á því, hve erfiðlega hefur gengið að uppfylla kröfurnar um húsnæði til þess að stunda líkamsrækt í skólum, svo sem lög gera þó ráð fyrir. Peningarnir fara í annað.

Í þessu sambandi get ég ekki stillt mig um að vekja athygli á óskaplegum þverstæðum, sem ég hef orðið sjónarvottur að á þessu ári varðandi skólamál annars vegar og hins vegar almennan húsakost fólks í þessu landi. Í vetur sem leið fórum við fjvn.—menn að líta á aðstöðuna í Menntaskóla Reykjavíkur, einni elztu og virðulegustu menntastofnun í þessu landi. Þarna hafa verið gerðir góðir hlutir, og við sáum þarna nýlegar kennslustofur o.s.frv. En við sáum líka önnur fyrirbrigði, sem gengu algerlega fram af mér. Ég man sérstaklega eftir þremur stofum, sem við gengum um. Ein var samansett úr tveimur íbúðarherbergjum í gömlu húsi. Til þess að koma nægilega mörgum fyrir varð svo mikil þröng um miðbik stofunnar, að ef nemendur úr aftari sætaröðum áttu að koma upp að töflu, urðu þeir að fara fram á gang og koma inn um aðrar dyr til þess að fara fram á gang og koma inn um aðrar dyr til þess að komast að töflunni. Í annarri stofu var setið svo þétt, að þegar nemendur voru setztir, komst kennaraborðið ekki fyrir, nema kennarinn sneri andlitinu út í vegg og vanganum í nemendur. Í þriðju stofunni sýndist mér þó vera þrengst, því að þar var ekkert pláss fyrir kennaraborð, alls ekki neitt. Mér er til efs, að það hafi verið nokkurt pláss fyrir kennarastól heldur og hafi þá mátt þakka fyrir, ef skósólar kennarans höfðu pláss frammi við dyrnar.

Ég held, að allir hljóti að sjá, að það er eitthvað bogið við þetta, þegar þess er gætt, að í þessari borg og yfirleitt um allt land býr hinn almenni borgari yfirleitt í mjög góðum húsakynnum. Meira að segja búa nú sumir í svo stóru húsnæði, að það varla djarfar fyrir veggjum, nema lýsing sé því betri. Þetta eru svo miklar þverstæður, að það er ekki hægt annað en vekja athygli á því. Það er ótrúlegt, að þetta þurfi að eiga sér stað eða nokkuð þessu líkt. Nú veit ég ekki, hvað gerzt hefur þarna í vetur, en ég vona, að þessu sé kippt í lag og það lagt niður, að börnum eða ungmennum úr okkar venjulegu, en ágætu íbúðum, Íslendinga, sé stúfað svona eins og þorski í stafla fyrrum meðan menn kunnu þá íþrótt að láta hnakkana snúa upp, því að það er ekki hægt að líkja þessu við neitt annað. Þarna eru auðvitað herfileg mistök á ferðinni, sem e.t.v. eru einsdæmi En mönnum býður samt í grun, að ekki sé allt með felldu, þegar þeir sjá svona dæmi og gera sér grein fyrir þeim þverstæðum, sem þarna er um að ræða.

Líkamsrækt er, eins og ég sagði áðan, búin að vera mjög lengi skyldunámsgrein í öllum skólum á Íslandi. Hún er búin að vera það í áratugi án þess að koma til fullra framkvæmda, og það er vissulega tímabært að taka þetta mál alveg sérstaklega til athugunar. Ég vék líka að því áðan, að í fyrravetur voru 63 þús. manns í skólum á Íslandi. Við skulum minnast þess, að unga fólkið í dap situr í skólunum ekki nokkra mánuði eins og við sem nú erum miðaldra og eldri, gerðum og í örfá ár mörg hver, — heldur situr þetta fólk í skólum meira en hálft árið í 10 ár, ekki minna, og upp í 20 ár. Þarna er um að ræða ungt fólk, sem er í andlegum og líkamlegum vexti og í mótun. Við alla þessa skólasetu bætist svo það, að allt okkar þjóðlíf, Íslendinga, er stöðugt að færast meira og meira í stólana, í skrifstofu- og þjónustustörf, í vélvæddan iðnað, að ógleymdum vélvæddum heimilum. Þetta er það, sem við búum við í dag, og þetta krefst þess alveg sérstaklega, að lögð sé meiri alúð við líkamsrækt í skólum landsins en áður var gert, á meðan setan var miklu styttri en hún er nú, en líkamlegt starf tók miklu meiri tíma. Ég held, að þetta þurfi ekki frekari rökstuðnings við. (Forseti: Það á að ljúka þessum fundi núna kl. 4, og vil ég biðja hv. þm. að fresta því, sem eftir er af ræðunni, til næsta fundar, nema hún sé að verða búin.) Já, hér getur verið amen eftir efninu, herra forseti. Ég hef gert grein fyrir því, hvers vegna ég tel vera þörf á því að taka þessi tvö atriði til alveg sérstakrar meðferðar. Þau eru bæði nokkuð einangruð og svo alvarleg að mínum dómi, að ég tel að það beri að veita þeim þann forgang að skoða þau alveg sérstaklega nú þegar.

Ég legg svo til, herra forseti, að till. verði vísað til hv. allshn.