06.11.1972
Efri deild: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (296)

54. mál, alþjóðasamningur um varnir gegn mengun sjávar

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, er flutt til staðfestingar á samþykkt, sem Ísland hefur gerzt aðili að með nokkrum öðrum þjóðum.

Eins og kunnugt er, var samþ. hér á síðasta þingi frv. varðandi sama efni og það, sem hér er fjallað um, þ.e.a.s. um varnir gegn mengun sjávar vegna losunar úrgangsefna frá skipum og flugvélum. Það frv., sem nú er orðið að lögum, var flutt í beinu framhaldi af samþykktum, sem gerðar voru á vegum Norðurlandaþjóða um það efni. Þær vildu ryðja brautina og settu hjá sér ákveðin lagaákvæði um nokkur grundvallaratriði þessa máls, án þess þó að víðtækt samkomulag hefði þá tekizt þjóða á milli um málið. En síðan hefur málinu þokað þannig áfram, að samkomulag varð með 12 ríkjum, sem öll eiga aðild að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni, um að gera með sér alþjóðasamþykkt varðandi þessi efni og vinna síðan áfram að því að reyna að fá aðild sem flestra þjóða að þessu samkomulagi. Frv., sem hér liggur fyrir, miðar að því, að Íslendingar staðfesti fyrir sitt leyti þessa samþykkt, sem gerð var í Osló á s.l. ári og undirskrifuð þar í byrjun þessa árs, — að við Íslendingar staðfestum hana og gerum ákvæði þessarar samþykktar sem gildandi lög hjá okkur.

Því má síðan bæta við þessar upplýsingar, að nú stendur yfir í London fundur, sem fulltrúar Íslands eru aðilar að, þar sem enn er unnið að því að ná enn víðtækara samkomulagi þjóða á milli varðandi þetta þýðingarmikla mál en enn hefur orðið. Það varð sem sagt samkomulag um það á þessum Oslóarfundi, að öll þau ríki, sem sendu fulltrúa á þennan fund, samþykktu þetta samkomulag, en öll ríkin, sem eiga aðild að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndinni, höfðu þó ekki fulltrúa á þessum fundi. Til þess að þessi samþykkt hafi fullnægjandi gildi, þurfa vissulega ýmsar fleiri þjóðir að verða hér aðilar að, og að því er nú unnið.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að rekja hér efni þessa samkomulags. En í aðalatriðum er það um ákveðnar reglur, sem eiga að gilda um heimildir til þess að losa nánar tiltekin efni, hættuleg efni, í hafið, og hafsvæðið er nánar tilgreint eða skilgreint í samkomulaginu. En það er hið sama hafsvæði og telst sem áhrifasvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar og er auðvitað hið þýðingarmesta fyrir okkur Íslendinga. Í samþykktinni koma svo fram þessar skilgreiningar á því, hvaða efnum er algerlega bannað að kasta í hafið og hvaða önnur efni geti að vísu komið til greina að losa í hafið eftir nánara samkomulagi sérstakrar starfsnefndar, sem gert er ráð fyrir, að sett verði á fót. Síðan er gert ráð fyrir því í þessu samkomulagi, að hver þjóð, sem hér á hlutdeild að, tekur á sig þær skyldur að líta eftir á sínu áhrifasvæði eða sínu almenna yfirráðasvæði, bæði varðandi skipaferðir og ferðir flugvéla, og öll eiga þau að hafa sameiginlega eftirlit með því, eins og tök eru á, að þessum samþykktum verði hlítt.

Það hefur leikið nokkur vafi á því hjá okkur, hvar ætti í rauninni stjórnskipulega að hafa mál sem þetta, eins og önnur þau, sem varða umhverfis- og mengunarmál. En það hefur verið unnið að þessum málum hér á undanförnum árum í sjútvrn., og það eru fyrst og fremst fulltrúar þaðan, sem hafa haft með þessi mál að gera fram til þessa, og því hefur þótt rétt að ákveða í þessu frv., að það verði sjútvrn., sem af hálfu íslenzkra stjóravalda hafi með málið að gera. En það er atriði, sem vissulega þarf að taka nánari ákvörðun um, hvaða skipulag á að hafa á í framtíðinni. Það hefur þótt rétt að gera það, m.a. með sérstöku tilliti til þess, að Hafrannsóknastofnunin, sem málið varðar meira en allar aðrar stofnanir í landi okkar og hefur með lífið í sjónum að gera af okkar hálfu, flokkast undir sjútvrn.

Ég vil svo, herra forseti, óska eftir því, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu.