12.04.1973
Neðri deild: 87. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3422 í B-deild Alþingistíðinda. (2977)

241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég gat því miður ekki verið við 1. umr. um þetta mál, þegar það var tekið fyrir hér á kvöldfundi. En 1. flm. frv. gerði þá grein fyrir málinu, og má vera, að það, sem ég kann að segja hér, sé að nokkru leyti endurtekning á því. Þótt við hefðum í sumum tilfellum nokkuð misjafnar skoðanir á málinu, er þetta frv. í stærstu dráttum sameiginleg niðurstaða allra flm., sem að frv. standa.

Þegar fiskveiðilaganefnd tók til starfa á s.l. hausti, skildi ég það a.m.k. svo, og ég hygg, að allir nm. hafi tekið það svo, að við ættum að gera till. um frv. að l. um nýtingu fiskveiðifandhelgisvæðisins innan 50 mílnanna, eins og þá hafði verið ákveðið, að það skyldi vera, og gengið út frá því, að Íslendingar einir hefðu afnot af þessu hafsvæði í kringum landið út að 50 mílna mörkunum. Ef þannig er litið á málið, þá segir sig sjálft, að í fyrsta lagi geti maður ætlað, að útfærslan, eins og hún hefur verið ákveðin, hefði stuðlað að aflaaukningu hér við land, í öðru lagi hefðu fiskstofnarnir fengið tækifæri til þess að aukast og í þriðja lagi væri komið í veg fyrir þá ofveiði, sem ég held að allir séu sammála um, að eigi sér stað á hafsvæðinu í kringum landið. Þó tel ég, að ein tegund skipa hefði fengið mjög bætta aðstöðu umfram aðrar, ef litið er þannig á, að fiskveiðimörkin séu fyrir Íslendinga eina, en það er togarafloti Íslendinga. Hann er nú og hefur alla tíð verið í mjög harðri samkeppni við erlend veiðiskip, sem ekki hafa einasta skipt tugum, heldur oft og tíðum hundruðum, og hafa stundað veiðar hér við land allt árið og þá að sjálfsögðu hverju sinni á þeim stöðum, þar sem fisks var helzt að vænta. Ég tel því ekki óeðlilegt, þótt með þetta fyrir augum hafi nokkuð verið gert að því að skerða aðstöðu togaranna á grunnmiðum, þar sem bátaflotanum er fyrst og fremst ætlað að veiða og ætlazt til, að hann byggi afkomu sína á þeim veiðum. Enda viðurkenni ég, að með þessu frv. er það nokkuð gert með hliðsjón af því, að aðstaða togaranna í framtíðinni verði mun sterkari en hún hefur verið áður, þar sem þeir einir eiga að nýta hafsvæðið á djúpmiðum allt út að 50 mílna mörkunum.

Þá vakti það fyrir nm. öllum og kom greinilega fram á fundi n., að það væri nauðsynlegt að gera allar reglur um botnvörpuveiðar einfaldari en þær hafa áður verið. Það geta að sjálfsögðu verið um það skiptar skoðanir, hvort þetta hafi tekizt eða hvort nægilega langt sé gengið í þeim efnum. En ég tel þó, að mjög mikil lagfæring til hins betra hafi átt sér stað með því frv., sem hér liggur fyrir, miðað við það, sem við áður þekktum, og miðað við þær reglur, sem áður hefur verið starfað eftir. Flest þeirra hólfa, sem voru sett inn fyrir 12 mílna mörkin á sínum tíma með l. frá 1969, hafa verið numin úr gildi að segja má að öllu leyti nema einu, þar sem um tímabundið hólf er að ræða á Breiðafirði. Þær reglur, sem nú eru, þar sem farið er inn fyrir 12 mílurnar, gilda yfirleitt alls staðar við landið allt árið, og er þetta að mínum dómi mjög til hægðarauka fyrir alla aðila og sérstaklega þá, sem eiga að halda uppi lögum og reglum í sambandi við fiskveiðarnar. Þetta gerir alla framkvæmd l. að mínum dómi mun einfaldari og var vissulega þörf á því, því að eins og samkomulagið var, sem náðist um lögin, þegar þau voru samþ. vorið 1969, voru þau að mörgu leyti mjög flókin, og í mörgum tilfellum var sú skerðing og takmarkanir og svæðaskipting, sem þá var lögleidd, gerð vegna samkomulags, til þess að málið fengist afgreitt hér í þinginu.

Friðunarsjónarmiðið var mjög ítarlega rætt bæði á fundum n. og þó sérstaklega á fundum hennar úti um land. Ég tel að nm. hafi allir verið sammála um það, að íslendingar yrðu að gera allróttækar friðunarráðstafanir. En það, sem kom í veg fyrir, að gerðar væru till. um bein lagaákvæði, hvar skyldi friða ungfisk og hrygningarsvæði, er sú afstaða fiskifræðinga, að þeir telja þetta mjög erfitt í framkvæmd. Þeir telja, að ungfiskur á miðunum fyrir Vestur-, Norður-, Austur- og Suð-austurlandi færi sig til eftir aðstæðum í hafinu og það sé þess vegna mjög erfitt að lögbinda viss svæði. Sömu skoðun hafa þeir í sambandi við hrygningarsvæðin. Ég hef alltaf verið mjög vantrúaður á og er enn, að þessi afstaða fiskifræðinga fái staðizt. Ég tel, að sjómenn, sem veiðar stunda hér við land og hafa margir stundað veiðar bæði á grunnmiðum og dýpri miðum í áratugi, hafi allt aðra reynslu í þessu efni og allt aðra sögu að segja.

Fyrr í vetur gerðum við hv. 10. þm. Reykv. tilraun til þess að fá breytt þeirri reglugerð, sem gefin var út 14. júlí s.l. um friðunarsvæði fyrir Norðausturlandi og hrygningarsvæði út af Selvogsbanka. Brtt. okkar í því samhandi var sú, að reglugerð frá 14. júlí 1972 um friðun við Norðausturland, sem aðeins gerir ráð fyrir friðun í 2 mán. á ári, 1. apríl til 1. júní, yrði breytt á þá leið, að það svæði yrði alfriðað fyrir botnvörpu, flotvörpu og dragnót í þrjú ár til reynslu. Þá gerðum við einnig till. um, breytingar á reglugerðinni, þar sem segir, að hrygningarsvæðið á Selvogsbanka skuli lokað frá 20. marz til 20. apríl aðeins fyrir botnvörpu og dragnótaveiðum, þannig að það yrði alfriðað og þá í nokkuð lengri tíma en reglugerðin gerir ráð fyrir. Ég harma það, að hv. Alþ. tók ekki undir þessar till. okkar og þær náðu ekki fram að ganga í þessari hv. d. En varðandi hrygningarsvæðið fyrir Suðvesturlandi eða á Selvogsbanka gat hæstv. sjútvrh. um það í yfirlýsingu, að hann mundi taka til athugunar, ef um það næðist samkomulag í hinum stærri verstöðvum á Suðvesturlandi, Reykjavík og Vestmannaeyjum, að alfriða þetta svæði. Ég tel það mjög vel farið, að hæstv. ráðh., eftir því sem ég helzt veit, breytti reglugerðinni þannig, að þetta svæði er þá alfriðað fyrir öllum veiðum, bæði netaveiðum og öðrum veiðum, í þennan tiltekna tíma, sem ég a.m.k. tel of stuttan.

Í 5. gr. frv. þess, sem hér liggur fyrir, er að finna mjög víðtæka heimild fyrir ráðh. til að beita friðunaraðgerðum, ef ráðherra og Hafrannsóknastofun telur þörf á slíku. Getur það gilt bæði um veiðar á smáfiski og um hrygningarsvæði. Ég tel, að hæstv. núv. sjútvrh. hafi nokkuð breytt um skoðun, því að ég taldi mig þekkja skoðanir hans áður, þegar við vorum að vinna að undirbúningi lagafrv., sem samþ. var 1969, og þó að hann hafi að mínum dómi verið þá miklu ákveðnari um, að það væri nauðsynlegt að friða tiltekin svæði og þá í lengri tíma en reglugerð hans frá 14. júlí segir til um, þá féllst ég þó á það með tilliti til þeirrar afstöðu, sem fiskifræðingar hafa, að láta nægja ákvæði 5. gr. En þau ákvæði getur ráðh. vissulega notað mjög vel, ef hann er á þeirri skoðun, að nauðsyn sé á friðun. Því lét ég mér nægja þau ákvæði, sem þar eru, í stað þess að flytja sérstaka till. um ákveðin friðunarsvæði, sem yrðu lögbundin.

Ég geri mér því miður litlar vonir um, að núv. hæstv. ráðh. breyti um skoðun enn á ný og gerist róttækur í friðunarmálum. En ég treysti því, að þeir ráðh., sem við taka af núv. hæstv. sjútvrh. og fara með málefni sjávarútvegsins, hafi annan skilning á þessum málum og setji mun róttækari reglur um friðun bæði á ungfiski og hrygningarsvæðum en nú eru í gildi og núv. hæstv. ráðh. hefur staðið að og undirritað með reglugerð frá 14. júlí s.l.

Þá vil ég víkja nokkrum orðum að hinum ýmsu veiðisvæðum, sem tilgreind eru í frv. (Forseti: Ég vil spyrja ræðumann, hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni. Ég hafði gefið fyrirheit um að gera fundarhlé um fjögurleytið). Ég á, að ég held, allmikið eftir. —[Frh.]