12.04.1973
Sameinað þing: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3428 í B-deild Alþingistíðinda. (2984)
Almennar stjórnmálaumræður
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Í vetur strandaði erlent skip við suðurströndina. Samkv. blaðafrásögn skýrði skipstjóri strandið í sjóprófum. Hann hélt sig sigla vestur með suðurströndinni, þegar hann í raun var á austurleið. Þegar hann ætlaði að stýra suður til hafs, sigldi skipið til norðurs og í strand.
Þetta var harmsaga. En því miður fer ekki hjá því, að mönnum komi í hug í ljósi starfsferils ríkisstj., hvort ríkisstj. sé ekki í sporum skipstjórans, hvort ríkisstj. geri sér nokkra grein fyrir, hvar þjóðarfleyið er statt eða hvert það stefnir.
Í málefnasamningnum mikla og loforðalistanum langa er ýmsu heitið, en flest þveröfugt gert. Þar var því heitið að hafa sem nánast samstarf við samtök launafólks og atvinnurekenda um ráðstafanir í efnahagsmálum. Efndirnar eru þær, að forseti A. S. Í. hefur lýst því yfir, að ríkisstj. hafi a.m.k. 8 sinnum breytt eða reynt að breyta gildandi kjarasamningum. Heitið var að stefna að því, að gjöld, sem nú hvíla á framleiðsluatvinnuvegunum, verði lækkuð eða felld niður. Nú þessa dagana er verið að hækka gjöld af iðnaðarframleiðslu, sjávarafurðum og landhúnaðarvörum. Heitið var að efla áætlunargerð, en í framkvæmdaáætlun fyrir árið 1973 gætir engrar heildarstefnu, hvorki í viðmiðun heildarframkvæmda né í forgangi framkvæmda, og skýrsla fjmrh. var sú stytzta og lítilfjörlegasta, sem lögð hefur verið fram síðan farið var að gefa slíkar skýrslur. Heitið var að auka sjálfsforræði byggðarlaga og hafa samráð við Samband ísl. sveitarfélaga og landshlutasamtök þeirra, en efndirnar eru þær, að ný tekjustofnalög, sem þrengja hag sveitarfélaga, eru sett án samráðs við samtök þeirra, verkefni tekin af sveitarfélögum, án þess að þau fái nokkur ný, og ráðh. beita sér gegn löggildingu landshlutasamtakanna. Heitið var að endurskoða allt bankakerfið og vinna að sameiningu banka og sjóða, en þótt mikið álit bankamálanefndar hafi nú legið fyrir í nær 3 mánuði, er ekkert gert nema fjölga sjóðum, eins og iðnrekstrarsjóði, sem auðvitað á að hafa sérstaka stjórn. Heitið var að lækka óhóflegan húsnæðiskostnað almennings, m.a. með lækkun byggingarkostnaðar, en efndirnar eru þær, að byggingarkostnaður mun hækka um 50% á tveggja ára valdatíma stjórnarinnar samkv. byggingarvísitölu eftir áætlun hagstofunnar. Heitið var: Ríkisstj. mun ekki beita gengislækkun gegn þeim vanda, sem við er að glíma í efnahagsmálum, en ríkisstj. hefur samt þrisvar til gengisfellingar gripið. Af fleiru mætti taka.
Það fer ekki á milli mála, að núv. ríkisstj. tók við blómlegu búi í góðæri á miðju ári 1971. Aflabrögð voru góð, útflutningsverð hagstætt og fór enn hækkandi. Almenningur hafði notið góðs af þessu góðæri með verulegum kauphækkunum 1970, jafnframt því sem afkoma atvinnutækja var hagstæð. Aðhaldi hafði verið beitt í fjármálum og peningamálum og ráðstafanir gerðar til þess að koma í veg fyrir, að kauphækkanir, sem samið hafði verið um, leiddu til áframhaldandi víxlhækkana kauplags og verðlags. Mestu máli skipti þó, að áframhald yrði á aðgát og aðhaldi og góðærið nýtt til þess að styrkja grundvöll efnahagslífsins og veita almenningi þá velmegun, sem efni stóðu til. En öllu aðhaldi var varpað fyrir róða og öllum tilraunum til að hafa stjórn á efnahagsþróuninni smám saman hætt með þeim afleiðingum, að fullkominn glundroði og stjórnleysi er ríkjandi og ríkisstj. treystir sér ekki til að móta eða framfylgja neinni stefnu. Ríkisstj. blandaði sér í kjarasamningana 1971 með lagasetningu um styttingu vinnutímans og hafði áhrif bæði í þá átt, að kostnaðarauki af samningunum varð meiri en ella hefði orðið og samningsfrelsi aðila skert þannig, að efni samninganna var jafnvel annað en aðilar hefðu kosið. Fyrirsjáanlegt var, að samningarnir mundu leiða til víxlhækkana kaupgjalds og verðlags. Því bar brýna nauðsyn til að draga sem mest úr peningaveltunni og eftirspurninni innanlands á sem flestum sviðum. Leitazt var við að draga úr útgjöldum ríkissjóðs, en í stað þess hafa þau verið tvöfölduð á tveimur árum, og enn er verið að bæta við þau þessa síðustu daga þingsins með fjárveitingum utan fjárl., án þess að séð sé fyrir nýjum tekjum, með þeim afleiðingum, að aukið er á spennuna og vinnuafl dregið frá framleiðslunni. Þá átti auðvitað áfram að efla verðjöfnunarsjóð sjávarafurða til að draga úr spennunni innanlands sérstaklega, þar sem verðlag erlendis fór enn hækkandi, en þvert á móti var úr honum greitt í uppbótaskyni. Nauðsyn var að draga úr erlendum lántökum, en í stað þess voru þær auknar, einkum á vegum opinberra aðila. Hafa erlendar skuldir vaxið um 61/2 milljarð kr. eða um 50% á tveim árum. Hlaut það enn að auka á vinnuaflsskort atvinnuveganna og auka greiðslubyrði af erlendum lánum í mesta góðæri, sem yfir landið hefur gengið. Þá átti auðvitað fremur að minnka opinberar lántökur innanlands, til þess að atvinnulífið yrði ekki fjárvana, en í stað þess jók ríkisvaldið slíkar lántökur og bauð allt að 20% ársvexti, eins og raun hefur orðið í verðtryggðum lánum, í samkeppni við framleiðsluna og einstaklinga.
Öll þessi þróun hefur aukið víxlhækkanir kauplags og verðlags, þannig að útflutningsatvinnuvegirnir stóðu ekki undir tilkostnaði, svo að grípa varð til gengislækkunar í des. s.l. samkv. ráði valkostanefndar. En valkostanefndin lagði áherzlu á, að hliðarráðstafanir væru nauðsynlegar: annars vegar samdráttur framkvæmda og hins vegar varnir gegn víxlhækkunum, en ríkisstj. hrósaði sér af, að engar slíkar ráðstafanir væru gerðar. Mátti þá sjá fyrir, að sú gengislækkun væri unnin fyrir gýg, enda opnuðust augu sjútvrh. Lúðviks Jósepssonar fyrir þessum sannindum, þegar hann sagði nokkru síðar:
„Ég viðurkenni það, að þeir tímar geta verið, að það sé óhjákvæmilegt að fella gengið og gera tilfærslur í þjóðfélaginu. Ég viðurkenni ekki, að gengisfelling sé almennt neitt lausnarorð og allra sízt á meðan þær stéttir í þjóðfélaginu, sem hafa mikil völd, eru ákveðnar að afnema áhrif tilfærslunnar tiltölulega fljótt á eftir. Slíkar gengislækkanir hafa raunar lítið annað að segja en að færa okkur bara á nýtt útreikningsform“.
Þótt sjútvrh. hafi með þessum orðum verið að vega að forseta A.S.Í, Birni Jónssyni, lýsa þau um leið vanmætti ráðh. sjálfs og ríkisstj. að takast á við vandann og boða raunar fjórðu gengifellinguna í tíð núv. ríkisstj.
Á valdatíma núv. stjórnar hefur verð sjávarafurða, eins og frosins fisks og saltfisks, hækkað um nær 50% í erlendum gjaldeyri og verð loðnuafurða um 100—200%. En þessar hækkanir hafa þó ekki nægt í verðbólguhítina, heldur hefur þurft sífellt að fella gengi ísl. kr., auk desembergengisfellingarinnar tvisvar vegna gengisfellingar dollarans. Ef við hefðum aðeins fylgt falli dollarans að því marki, að útflutningur okkar minnkaði ekki í krónutölu, þá væri gengisfellingin 18% minni en orðið er og verðhækkanir erlendra vara sömuleiðis tilsvarandi lægri. Sannleikurinn er sá, að við hefðum ekki þurft að fylgja dollaranum, ef nokkur stjórn hefði verið á efnahagsmálum, vegna hinnar hagstæðu verðlagsþróunar á erlendum mörkuðum.
Svo er „hrunadans“ kostnaðarverðbólgunnar trylltur, að þrátt fyrir hækkandi útflutningsverð kann að reynast hæpið, að útflutningsatvinnuvegir okkar, einkum iðnaðurinn, standi undir 10% launakostnaðarhækkun 1. júní n.k., og launþegar eru engu bættari. Þeir fá að vísu fleiri, en verðminni krónur. Stefnubreyting verður að eiga sér stað.
1) Skera verður niður útgjöld ríkissj., en þau hafa aukizt í hlutfalli við þjóðarframleiðslu úr tæpum 20% 1970 í nálægt 30% 1973. Aflafé þjóðfél.borgaranna hefur verið skert og um leið valfrelsi þeirra og sjálfsákvörðunarréttur. Sjálfstfl. bauð stjórnarfl. að standa að a.m.k. 500 millj. kr. niðurskurði á fjárl. til að mæta Vestmannaeyjavandanum. En það hæsta, sem ríkisstj. gat hugsað sér, var 160 millj. kr. Vitaskuld verður nauðsynlegur niðurskurður ríkisútgjalda erfiður, en hann er óhjákvæmilegur.
2) Um leið og dregið er úr skattheimtu almennt, ber sérstaklega að hverfa frá beinum sköttum. Hjón með 377 þús. kr. tekjur eru ekki hátekjufólk, en eru þó komin upp í hæsta skattstiga, 56–57%. Örva ber tekjuöflun einstaklinga, ekki sízt þegar skortur er á vinnuafli, því að í því felst verðmætasköpun fyrir þjóðfélagið í heild. Beinir skattar til ríkisins þyngdust að mun í fyrra af völdum skattalagabreytingar núv. ríkisstj., ekki sízt á elli- og örorkulífeyrisþegum. Skattar munu enn hækka hlutfallslega í ár, því að hækkun tekna í krónutölu er hærri en skattvísitalan 128. M.a. er talið, að laun hinna lægst launuðu, eins og hafnarverkamanna, hafi í krónutölu hækkað um 38%. Í stað þess að vera kominn í hæsta skattstiga með 377 þús. kr. tekjur, væri nær, að 400 þús. kr. tekjur hjóna væru ekki tekjuskattskyldar og í hæsta skattstiga væri fyrst komið, eftir að menn hefðu náð raunverulegum hátekjum, t.d. eitthvað á aðra millj. kr. Hætta ber greiðslu fjölskyldubóta með 1. barni, en fella þær að öðru leyti inn í skattkerfið sem persónufrádrætti og greiða þeim, sem hafa lægri tekjur en persónufrádrætti nemur, mismuninn.
3) Virða ber frjálsa kjarasamninga launþega og vinnuveitenda og leggja áherzlu á réttláta hlutdeild launþega í þjóðartekjum. Viðmiðun kaups við kaupgjaldsvísitölu hefur aldrei reynzt launþegum eins illa og í tíð núv. stjórnar, sem hefur fellt niður kaupgjaldsvísitölustig, frestað greiðslu þeirra og hagað niðurgreiðslum og verðhækkunum þannig, að launþegar fengju þær sem síðast uppi bornar í hækkuðu kaupi. Heilbrigðara væri að miða kaupbreytingar við vöxt þjóðartekna eða þjóðarframleiðslu til þess að koma í veg fyrir vítahring víxlhækkana.
4) Jafnvægi verður að nást á viðskiptajöfnuði við útlönd, á afkomu ríkissjóðs og í peningamálum. Gerbreyta verður núverandi verðlagskerfi. Til lengdar hafa verðlagsákvæði, boð og bönn ekki reynzt neytendum vörn gegn verðhækkunum. Þvert á móti draga þau úr samkeppni, koma í veg fyrir hagkvæm innkaup, valda vöruskorti, verri þjónustu og rýra valfrelsi neytenda í gæðamati. Ef jafnvægi er milli framboðs og eftirspurnar, er samkeppni trygging fyrir því, að neytandinn er stjórnandinn á markaðnum og seljendur verða að þóknast honum.
Þótt bæði þjóðartekjur og þjóðarframleiðsla hafi vaxið hér á landi, hefur eyðsla, neyzla og fjármunamyndun aukizt enn meir. Mismuninn tökum við að láni erlendis. Slík lán auka á verðbólguvandann, og það kemur að skuldadögunum.
Verðbólguhugsunarhátturinn nær æ fastari tökum á almenningi og kemur fram í gífurlegum hækkunum á verði fasteigna, kaupum á bifreiðum, heimilistækjum og samvarandi minni sparnaði og aukinni eftirspurn eftir lánsfé. Af hálfu ríkisstj. er hins vegar ekki um neina stefnu að ræða til þess að mæta þessum viðhorfum, heldur er allt látið reka á reiðanum.
Þótt hart hafi verið deilt af hálfu okkar í stjórnarandstöðu í efnahagsmálum, þá hefur verið leitazt við að skapa sem mesta samstöðu í landhelgismálinu. Ríkisstj. sýnist að vísu láta sér í léttu rúmi liggja að efna það loforð í málefnasamningi að hafa samráð við stjórnarandstöðuna og gefa henni kost á að fylgjast með allri framvindu málsins. Langt er milli funda í landhelgisnefnd og viðræðufundir með Bretum og Vestur-Þjóðverjum hafnir og þeim lokið án þess samráðs, sem lofað var.
Landhelgismálið hlýtur að vera okkur öllum Íslendingum tilfinningamál, en þrátt fyrir það eigum við að vera menn til þess á raunsæjan hátt að geta rökrætt okkar á milli, hvaða leiðir eru fljótvirkastar til þess að tryggja okkur yfirráð yfir fiskimiðunum umhverfis landið, ekki eingöngu 50 mílunum, heldur og landgrunninu öllu. Við eigum t.d. að geta borið saman bækur okkar, hvaða ályktanir beri að draga af aflaskýrslum Breta eftir útfærsluna. Þær sýna, að afli Breta á Íslandsmiðum s.l. ár hefur minnkað um 10% frá árinu áður, en síðustu 4 mánuðina eða eftir út færsluna aðeins um 4%, meðan afli okkar skipa minnkaði um 6% sömu 4 mánuði, svo hlutfallslega hafa Bretar bætt hlut sinn frá 1. sept. s.l. til áramóta. Það fer ekki á milli mála, að slíkar tölur eru okkur vonbrigði. Við getum huggað okkur við, að ekki sé um langan tíma að ræða og veiðarnar muni minnka, þegar til lengdar láti. En þó er rétt að hafa kjark til að horfast í augu við staðreyndir, eins og þær eru á hverjum tíma og marka stefnu okkar samkv. því.
Við getum haldið óbreyttri stefnu og reynt að gæta landhelginnar með vörzlu og víraklippingu gæzluskipa okkar, eins og verið hefur. Ekki skal gert lítið úr frammistöðu Landhelgisgæzlunnar, miklu frekar vil ég þakka hana og dást að varðskipsmönnum okkar. Mér er hins vegar kunnugt um, að það kom fram í kvöldfréttum nú, að 18 íslenzkir skipstjórar fiskiskipa hafa sent ríkisstj. bréf og bent á, eins og þeir segja orðrétt, „að brezkir og þýzkir togarar hafa stundað veiðar sínar innan hinna nýju fiskveiðimarka á hverjum tíma, eins og þeim hefur bezt þótt henta hverju sinni, og hagað veiðiskap sínum eins og 50 mílna útfærslan hafi aldrei átt sér stað“. Hvetja skipstjórarnir til, að öllum veiðiþjófum verði með róttækum aðgerðum stuggað út úr hinni nýju fiskveiðilögsögu Íslendinga. Minna má á í þessu sambandi, að frv. sjálfstæðismanna um eflingu landhelgisgæzlunnar, bæði á síðasta þingi og þessu, hafa ekki fengið hljómgrunn hjá stjórnarliðinu. Hætt er við, að Bretar auki sóknarþunga sinn og gæzluskip án tillits til kostnaðar, sem vafalaust hefur vaxið mikið vegna athafna landhelgisgæzlu okkar. Sá kostnaður er ekki greiddur af brezku togaraútgerðinni, heldur brezka ríkinu, en togaraútgerðin nýtur aftur góðs af hækkandi fiskverði. Því miður má því allt eins búast við því, að Bretar geti jafnvel haldið óviðunandi mikilli hlutdeild í fiskafla á Íslandsmiðum miðað við óhreytt ástand og þar á meðal reytt upp ókynþroska smáfiskinn.
Önnur leið er sú, að herða vörzlu fiskveiðilögsögunnar með þeim útbúnaði, sem við nú höfum yfir að ráða, sem vart verður gert með öðrum hætti en þeim, að landhelgisgæzlan reyni töku landhelgisbrjótanna. Ég treysti mér ekki að mæla með þeirri leið. Sem landkrabbi hef ég ekki næga þekkingu til þess. Mannslíf eru í veði, og þau eru það dýrmætasta, sem til er. Þeim vil ég ekki hætta umfram það, sem þegar er gert, og því síður fórna.
Þriðja leiðin er sú að leitazt við að ná samningum við Breta og Vestur-Þjóðverja eins og shlj. samþykkt Alþ. frá 15. febr. 1972 leggur áherzlu á. Atferli brezkra og þýzkra togara í íslenzkri landhelgi er vissulega forkastanleg og til þess fallin að spilla samningum. Afstaða okkar til samninga til stutts tíma hlýtur þó að fara eftir því, hvort við tryggjum okkur meiri raunveruleg yfirráð yfir fiskimiðunum umhverfis landið og stærri hlutdeild í afla af Íslandsmiðum en án slíkra samninga. Ávinningur af samningum er væntanlega sá, að þeir mundu taka nálega til landgrunnsins alls, allra svokallaðra Íslandsmiða, eða 75% stærra hafsvæðis en 50 mílurnar ná yfir.
Tvískinnungur innan ríkisstj. sýnist hafa verið í afstöðu til samningaumleitana, og fer illa á því. Svo virðist þó, að meiri hreyfing hafi komizt á samningaviðræður, eftir að kunngert var, að einn ráðh. væri fylgjandi því, að við sæktum mál okkar og verðum fyrir alþjóðadómstólnum í Haag.
Líklegt er, að með þegjandi samkomulagi gerðu samhliða samningum yrði ákveðið, að aðilar ættu ekki í málarekstri, meðan samningur væri í gildi. Slíkt megum við þó engu verði kaupa í samningum.
Ég er fylgjandi, að við tökum til sóknar og varnar fyrir Haagdómstólnum. Með því höfum við ráð á framvindu mála og getum séð svo um, að efnisdómur gangi ekki fyrr en að lokinni fyrirhugaðri hafréttarráðstefnu, þar sem fullyrt er, að meiri hluti þjóða og jafnvel allt að 2/3 hlutar þeirra aðhyllist reglur um víðáttu fiskveiðilögsögu, sem rýmri séu en þær, sem við höfum enn beitt. Við töpum ekki málinu í Haag, nema við töpum málinu á hafréttarráðstefnunni. Enginn hefur talið það líklegt. Það er því að mínu áliti allt að vinna og engu að tapa að standa fyrir máli sínu.
Ég mun ekki víkja hér að utanríkis- og öryggismálum, með því að skýrslu um utanríkismál verður útbýtt hér á þingi á morgun og umr. fara fram um það á mánudaginn. En ég vil leggja áherzlu á það, að forsrh. og utanrrh. hafa gefið það loforð, að uppsagnarfrestir samkv. varnarsamningnum fari ekki að líða, fyrr en Alþ. hefur fjallað um uppsögn varnarsamningsins. Ég vil ekki efast um, að þessir ráðh. haldi loforð sín, þótt kommúnistar krefjist þess, að þeir gangi á bak orða sinna, eins og gert var í Þjóðviljanum í gær. Vitað er, að þingmeirihluti er ekki fyrir brottför varnarliðsins, eins og nú standa sakir.
Þingi er nú að ljúka. Ríkisstj. vill bersýnilega losna við þm., þ.á.m. sína eigin stuðningsmenn, því að mistekizt hefur að marka stefnu til úrlausnar knýjandi vandamálum. Þjóðarfleyinu er stjórnað af skipstjórnarmönnum, sem vita ekki hvar þeir eru eða hvert þeir ætla. Þeir geta því allt eins siglt í austur, þótt meiri hl. þeirra vilji í vestur. Þeir vilja sjálfsagt stýra í suður frá strandi, en þeir geta allt eins siglt í norður og orðið fastir í sandi. Þjóðin öll er á þessu skipi. Landsmenn verða því að taka í taumana og skipts um skipstjórnarmenn hið fyrsta.
Ég þakka þeim sem hlýddu.