12.04.1973
Sameinað þing: 70. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3467 í B-deild Alþingistíðinda. (2994)
Almennar stjórnmálaumræður
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Fáum getur dulizt, að það, sem framar öðru einkennir þessar stjórnmálaumr., er tómahljóðið í talsmönnum stjórnarandstöðunnar. Það er ekki það, að þeir rembist ekki við að halda uppi einhverri gagnrýni, enda er þeim öllum ljóst, að það er þeirra skylda og þeir verða þó að vinna fyrir kaupi sínu. En viðleitnin er harla máttvana og kvartansönglandinn innantómur og þreytulegur, líkt og í skapvondu barni, sem búið er að vola lengi og man ekki meira, út af hverju það byrjaði. Eða hvað annað er unnt að segja um þennan endalausa síbyljusöng, að allt sé í kaldakoli í efnahagsmálum þjóðarinnar?
Benedikt Gröndal talaði hér áðan um upplausn á sviði efnahags- og fjármála, Geir Hallgrímsson um fullkominn glundroða og stjórnleysi. Við höfum víst heyrt þennan söng áður. Frá því að ríkisstj. tók við fyrir tæpum tveimur árum, hefur látlaust dunið þessi áróður, að allt sé að fara úr böndunum í fjármálum þjóðarinnar, nánast ekkert fram undan nema þverhnípt hengiflugið. Getur verið, að til sé í landinu einhver svo saklaus íhaldsmaður, að hann sé enn tilbúinn að gleypa við endalausum hrakspám stjórnarandstöðunnar? Ef lýsingar stjórnarandstæðinga í fyrravetur um stjórn efnahagsmálanna væru eitthvað nærri staðreyndum málsins, væri nú þegar skollin hin versta kreppa yfir þjóðina. En hver er reyndin? Frá því að ríkisstj. kom til valda, hefur atvinnulíf og framleiðsla einmitt gengið með afbrigðum vel. Atvinnuleysi hefur jafnt og þétt farið minnkandi, þar til nú er svo komið, að mjög víða er sár skortur á vinnuafli. Tekjur manna hafa mjög farið vaxandi, ekki aðeins að krónutölu, heldur einnig verulega að kaupmætti, og framkvæmdir ríkisins hafa aldrei verið stórfelldari á nærfellt öllum sviðum. Hvar er þá þessi kreppa, sem stöðugt er reynt að hræða fólkið með? Er kannske skýringin sú, að þjóðin sé að éta sig út á gaddinn? Er ekki verið að tæma alla sjóði, eins og aftur og aftur hefur verið klifað á? Morgunblaðið er löngu búið að tæma verðjöfnunarsjóð sjávarútvegsins og skella skömminni á Lúðvík Jósepsson. Geir Hallgrímsson endurtók þessa fullyrðingu hér áðan. Þó er það óvefengjanleg staðreynd, að sjóðurinn er nú talsvert meira en tvöfalt stærri en hann var, þegar stjórnin tók við, hefur vaxið úr 479 millj. í 1129 millj., í báðum tilvikum miðað við gamla gengið. Gjaldeyrisvarasjóður þjóðarinnar hefur einnig vaxið jafnt og þétt og er nú um 4800 millj. miðað við gamla gengið. Geir Hallgrímsson býsnaðist yfir því hér áðan, að fjárl. hefðu hækkað mikið, þó að allir viti, að stjórnarandstaðan hefur ýmist verið samþykk þessum hækkunum eða sjálf haft frumkvæði að þeim. Stærsti útgjaldaliður ríkisins eru launagreiðslur, en í framhaldi af samningum opinberra starfsmanna fyrir tveimur árum hafa laun þeirra hækkað um 67%. Hver þarf þá að undrast, að fjárl. hækki líka verulega?
Matthías Bjarnason fullyrti hér áðan, að lánsfé til innlendra skipabygginga hefðu verið lækkuð úr 90% í 75%. Þetta er alrangt og stafar af misskilningi Matthíasar, ég trúi a.m.k. ekki, að hann viti ekki betur. Lánin eru og verða 85-90% eftir aðstæðum.
Gagnrýni stjórnarandstöðunnar er öll með þessu marki brennd. Þetta er innantómur áróður þreyttra manna, sem ekkert nýtt hafa fram að færa. Málefnafátækt stjórnarandstöðunnar hefur tekið á sig hinar kynlegustu myndir síðustu mánuði. Nú er allt í einu farið að hamra á því dag eftir dag, að við eigum að senda málflutningsmann til Alþjóðadómstólsins í Haag. Garðar Sigurðsson var rétt í þessu að gera þessu máli ágæt skil hér á undan mér, og ég þarf ekki að endurtaka það, sem hann sagði, enda er svo augljóst sem verða má, að auðir stólar í Haag segja almenningi í öðrum löndum nákvæmlega það, sem segja þarf af okkar hálfu, að við viljum ekki á nokkurn hátt vera aðilar að þessum málarekstri og við ætlum ekki að lúta niðurstöðum dómsins.
En það er ein spurning, sem mig langar til að varpa hér fram. Ef stjórnarandstöðunni er þetta svo mikið kappsmál, sem hún vill vera láta, hvers vegna hefur hún þá ekki flutt þáltill. um að senda mann til Haag? Í einar 4 vikur hafa blöð stjórnarandstöðunnar básúnað áhuga sinn á því að senda út mann og fullyrt með miklu brauki og bramli, að þingmeirihluti væri fyrir því, en hér á Alþ. hefur nákvæmlega ekkert gerzt, og stjórnarandstaðan hefur ekki sýnt minnstu viðleitni til þess að koma vilja sínum fram. Héðan af kemur till. ekki fram, enda væri það fráleit sýndarmennska að koma með þess háttar till., þegar þingstörfum er nánast lokið. En hver er skýringin á því, að till. hefur ekki komið fram? Þegar allt kemur til alls, vilja forustumenn Sjálfstfl. og Alþfl. ekki, að málflytjandi sé sendur til Haag. Þeir bera einir alla ábyrgð á samningunum frá 1961, sem málareksturinn fyrir Alþjóðadómstólnum byggist á. Þeir óttast nú ekkert meir en að afglöp þeirra frá 1961 verði sérhverjum landsmanni endanlega ljós, ef svo fer, að hinn íhaldssami dómstóll verður okkur óhagstæður. Þess vegna vilja þeir geta borið því við, að málið hafi tapazt, vegna þess að málflytjandi hafi ekki verið sendur. Þeir vita að vísu eins og allir aðrir, að dómstóllinn hefur öll gögn í höndum til þess að dæma málið okkur í hag, ef hann vill, þó að enginn mæti af okkar hálfu, en þeir vilja gjarnan hafa einhverja viðbáru til málamynda, þess vegna segja þeir fátt á Alþ., en hrópa þeim mun hærra í blöðum. Þetta eru heilindi stjórnarandstöðunnar í mesta lífshagsmunamáli þjóðarinnar, að vekja upp hörkudeilur um þetta viðkvæma mál og meina þó í rauninni ekkert með því. En hvers er ekki að vænta af mönnum, sem sögðu það við útvarpsumr. á Alþ. í apríl 1971, að einhliða útfærsla landhelginnar væri siðleysi og það væri ævintýramennska að gera einmitt það í landhelgismálinu, sem gert hefur verið seinasta árið á grundvelli einróma samþykktar Alþingis?
Í áramótagrein, sem Gylfi Þ. Gíslason, formaður Alþfl., ritaði í Alþýðublaðið fyrir síðustu kosningar, komst hann að þeirri niðurstöðu, að stjórnarmyndun að kosningum loknum væri óhugsandi án þátttöku Sjálfstfl., valið stæði aðeins um tvennt, annaðhvort yrði það stjórn Sjálfstfl. með Framsfl. eða Alþfl., víðar náði útsýn hans ekki. En reyndin varð þó önnur. Landsmenn höfðu fengið sig fullsadda af íhaldssömu stjórnarfari, sem leiddi til atvinnuleysis og fólksflótta af landi brott meira en verið hafði um áratuga skeið, og meiri hl. þjóðarinnar valdi nýja forustu. Allt í einu eru snögg umskipti orðin, Sjálfstfl. stendur ekki lengur við stjórnvölin með Gylfa Þ. Gíslason sem hjálparkokk, og það kemst skriður á mörg mál, sem lengi hafa legið óhreyfð. Skyndilega er farið að framkvæma það, sem vanrækt hefur verið um áratugaskeið. Nýr togarafloti er keyptur til landsins, máttur atvinnulífsins er stóraukinn, lífskjör launamanna batna um 20–25% og tryggingagreiðslur til aldraðra og öryrkja, sem verið hafa undir forsjá Alþfl. í 15 ár samfleytt, eru því sem næst tvöfaldaðar, um leið og Alþfl. hverfur úr ríkisstj., en eftir stendur Gylfi Þ. Gíslason með sína menn og hefur misst af strætisvagninum.
Hvað sem líður afstöðu manna til núv. ríkisstj., þá er hitt víst, að ekki eru þeir margir, sem bíða með öndina í hálsinum eftir því, að þrautreyndir verðbólguriddarar eins og Jóhann Hafstein og Gylfi Þ. Gíslason taki höndum saman í nýrri stjórn, svo fljótir eru menn ekki að gleyma.
Við Alþb.-menn erum ekki sammála öllu því, sem núv. ríkisstj. hefur staðið fyrir, en við teljum, að ríkisstj. hafi tvímælalaust áorkað mjög miklu á fjöldamörgum sviðum. Fram undan eru stórfelld verkefni: að tryggja áframhaldandi sókn í landhelgismálinu, að taka endanlegar ákvarðanir um brottför hersins, að ýta á eftir þeim stórfelldu áætlunum um uppbyggingu atvinnulífsins, sem nú eru á döfinni, og að vinna að breytingum og einföldun kerfisins, m.a. sameiningu og niðurskurð í banka- og milliliðakerfinu.
Alþfl. flytur nú í gríð og erg till. um að athuga ýmislegt, sem miður hefur farið í 15 ára stjórnartíð flokksins, m.a. að athuga olíuverzlunina í landinu, eins og Pétur Pétursson nefndi hér rétt áðan. En í þessum till. er engin stefna mörkuð, og það er að sjálfsögðu ástæðan til þess, að á þeim tekur enginn mark. Það þarf að móta stefnu, sem raunverulega miðar að því að draga úr yfirbyggingu þjóðfélagsins. Það er verið að gera það, bæði hvað snertir bankana, tryggingafélögin, olíuverzlunina og lyfjaverzlunina. Þetta vanrækti hins vegar Alþfl., þegar hann var í stjórn, og hreyfði ekki litla fingur í þá átt að hreinsa til í kerfinu. Þess vegna tekur nú enginn mark á till. flokksins um rannsókn og athugun, án þess að nokkur stefna sé mörkuð. Við Alþb. menn vitum, að þessi örlagaríku mál, sem nú er unnið að, eiga víðtækum stuðningi að fagna meðal landsmanna, en jafnframt erum við reiðubúnir hvenær sem er, þegar þess gerist þörf, að leggja stefnu okkar og störf undir dóm þjóðarinnar.
Ég þakka áheyrnina.