06.11.1972
Neðri deild: 10. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 538 í B-deild Alþingistíðinda. (300)
36. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Flm. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Ég hef leyft mér ásamt 4 öðrum þm. Sjálfstfl. að flytja frv. til l. um breyt. á l. nr. 101 frá 1966, um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o.fl. Frv. þetta er á þskj. 38.
Ég vil geta þess, áður en lengra er haldið, að hæstv. fjmrh. óskaði eftir því í síðustu viku, að umr. yrði frestað, meðan honum gæfist tóm til þess að kynna sér þetta mál betur, og varð ég að sjálfsögðu við þeirri beiðni. Nú er það upplýst í upphafi fundarins, að hæstv. ráðh. er fjarstaddur, og vil ég því beina því til forseta. hæstv. forseta, að hann taki það til athugunar að fresta umr. að loknum umr. hér í dag, þannig að hæstv. ráðh. gefist þá kostur til þess að tjá sig um málið við þessa umr., ef hann hefur haft hug á því.
Mál þetta fjallar um breytingar á framleiðsluráðslögunum og felur það í sér að rýmka að nokkru leyti um dreifingu og sölu á mjólkurvörum. Að efni til var sams konar frv. flutt hér á síðasta þingi af sömu hv. þm. að undanskildum hv. þm. Sverri Hermannssyni, sem nú hefur bætzt í hópinn, en það frv. fékk ekki afgreiðslu á síðasta þingi, og er því að efni til endurflutt nú. Ég þarf því ekki að fara mörgum orðum um tilgang þessa frv. eða útskýra einstaka þætti þess. Það var gert hér við umr. í hv. Alþ. á síðasta vetri, og þessari hv. d. er kunnugt um röksemdir þær, sem liggja að baki þessu frv.
Það frv., sem hér var flutt á síðasta þingi, mætti nokkurri andstöðu, og komu fram viss sjónarmið, sem hnigu aðallega í þá átt, að vera kynni, að með samþykkt þess frv. mundu framleiðendur eða bændur bera skarðari hlut frá borði en nú er samkv. gildandi lögum um dreifingu og sölu mjólkurvara. Til þess að koma til móts við þau sjónarmið, sem þá voru sett fram, hefur frv. verið breytt, og vil ég gera grein fyrir þessum breytingum í aðalatriðum.
Það er gert ráð fyrir því, að á eftir 26. gr. I. komi ný gr., er verði 27. gr., þar sem segir, með leyfi forseta:
„Nú er starfandi viðurkennd samsala eða mjólkurbú, og er þá öðrum óheimilt án sérstaks leyfis að selja mjólk eða rjóma í þeim kaupstöðum eða kauptúnum, sem eru innan sama mjólkursölusvæðis.“ Og síðan kemur áfram: „Nú sækir matsöluverzlun um leyfi til sölu og dreifingar á neyzlumjólk, rjóma og skyri, og skal þá sérstök n. fjalla um umsókn þessa. N. þessi skal skipuð 7 mönnum, þannig að viðkomandi sveitarstjórn tilnefni 2 menn, félag matvörukaupmanna á staðnum eða, ef það er ekki til staðar, Kaupmannasamtök Íslands tilnefna einn mann, samsölustjórn eða viðkomandi mjólkursamlag tilnefnir einn mann, einn maður skal tilnefndur af framleiðsluráði landbúnaðarins, einn maður af Neytendasamtökum Íslands og einn maður af heilbrigðisnefnd, og skal hann vera formaður nefndarinnar.“
Þessi nefndarskipan er önnur af tveim aðalbreytingum, sem gerðar hafa verið á þessu frv., og felur það sem sagt í sér, að sé sótt um leyfi til sölu og dreifingar á mjólkurvörum, þá skuli skipuð þessi sérstaka nefnd. Það hefur verið mat okkar, sem flytjum þetta frv., að n. skuli svo skipuð, að þar skuli allir eiga sæti, sem hagsmuna eiga að gæta og eiga að vera kunnugir málum og aðstæðum, og hún skyldi jafnframt vera skipuð þannig, að ekki sé of rík eða sterk ítök af hálfu eins aðila í n. Er þá bæði haft í huga að gefa þeim kost á að sitja í n., sem fyrir fram ættu að vera hlynntir rýmkun á þessum l., og eins hinum, sem vilja fara varlega, og er þá gert ráð fyrir því sem sagt, að annars vegar hafi kaupmannasamtök á viðkomandi stöðum fulltrúa í n. og hins vegar mjólkursamlag eða samsölustjórn, sem mundi gæta bagsmuna mjólkurframleiðenda. Enn fremur er gert ráð fyrir því, að sveitarstjórn tilnefni tvo menn, og er þar haft í huga, að ef um pólitískt samstarf í viðkomandi sveitarstjórn er að ræða, eða eins og almennt er, þar séu fleiri en einn og fleiri en tveir flokkar, sem sæti eiga í sveitarstjórnum, þá sé mögulegt að tilnefna tvo menn í n. frá þeim flokkum eða þeim hópum innan sveitarstjórnarinnar, sem greinir á í þessu máli. Þá er gert ráð fyrir því, að framleiðsluráð landbúnaðarins tilnefni einn mann, sem er þá fulltrúi framleiðendanna, og svo fulltrúa neytenda, vegna þess að að sjálfsögðu hafa neytendur mjög mikilla hagsmuna að gæta, og er sjálfsagt og eðlilegt, að þeir hafi einn mann í n. Að lokum er gert ráð fyrir því, að heilbrigðisyfirvöld, heilbrigðisnefnd, eigi einn fulltrúa í n., og skal hann vera formaður n.
Það má sjálfsagt um það deila, hvernig slík n. skuli skipuð, en það, sem vakir fyrir okkur flm., er sem sagt þetta, að það sé eins mikið jafnræði og mögulegt er hjá þeim hópum, sem skiptast á skoðunum um þetta mál.
Síðan segir í frv., þegar búið er að geta um þessa n., með leyfi forseta:
„Nú sækir aðili um söluleyfi, sem ekki hefur haft það áður, og skal þá n. kynna sér fjárfestingar- og dreifingarkostnað mjólkursamsölu eða mjólkursamlags á viðkomandi verzlunarsvæði með það í huga, að mjólkurframleiðendur verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni við veitingu nýs mjólkurleyfis.“
Ein af röksemdum og jafnvel sú stærsta gegn því að breyta til í þessu efni og samþykkja þetta frv. er, að dreifingarkostnaður mjólkurframleiðenda muni hækka vegna fleiri útsölustaða og það muni valda aftur hækkun á þessari vöru og mundi þá koma minna í hlut mjólkurframleiðenda. Enn fremur er bent á, að mjólkurframleiðendur hafi lagt í meiri eða minni fjárfestingarkostnað víðs vegar, sérstaklega þó hér í þéttbýlinu, með uppbyggingu á mjólkurbúðum, mjólkurverzlunum, og það geti kannske valdið erfiðleikum að selja þessar fasteignir eða þessar fjárfestingar aftur, ef mjólkurframleiðendur neyðast til þess að leggja niður viðkomandi verzlunarstaði. Er þessum sjónarmiðum mætt með því að setja þetta ákvæði inn, því að við flm. þessa frv. höfum vissulega ekki í huga, að mjólkurframleiðendur verði fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa frv., og við erum þvert á móti sannfærð um, að með breytingunni muni hlutur mjólkurframleiðenda verða meiri, kostnaður muni ekki vaxa, en ef hann vaxi, þá muni hagnaður vegna aukinnar sölu koma þar verulega og algerlega á móti. En til þess að undirstrika það sjónarmið okkar, að mjólkurframleiðendur eigi ekki að verða fyrir fjárhagslegu tjóni við veitingu nýrra mjólkursöluleyfa, höfum við sett inn í frv. þetta ákvæði um, að n. skuli kynna sér fjárfestingar- og dreifingarkostnað mjólkursamsölu eða mjólkursamlags og hafa það í huga, þegar hún tekur ákvörðun um, hvort nýtt mjólkursöluleyfi skuli veitt eða ekki.
Að lokum er það ákvæði, sem óbreytt er frá fyrra frv., þar sem segir í frv., með leyfi forseta:
„Skylt er samsölustjórn að veita umbeðið leyfi, ef n. mælir með því, enda sé þeim almennu skilyrðum fullnægt, sem mjólkurframleiðendur ákveða um aðbúnað, greiðslufyrirkomulag og meðferð mjólkurvöru í viðkomandi verzlun. Þau skilyrði skulu ákveðin með reglugerð, sem staðfest skal af landbrn. Samþykkt hlutaðeigandi heilbrigðisyfirvalda skal liggja fyrir.“
Þarna er enn þá áréttað, að mjólkurframleiðendur skuli hafa það mjög í sínum höndum, hvernig þessum málum skuli þagað. Þeim er gert og heimilað samkv. frv. að ákveða reglur um aðbúnað, um greiðslufyrirkomulag og meðferð mjólkurvörunnar, þannig að það á að koma að fullu til móts við þau sjónarmið, sem mjólkurframleiðendur hafa og eiga vissulega að hafa um meðferð á svo viðkvæmri vöru og þegar um slíka breytingu er að ræða eins og þessa. Með þessum ákvæðum, þ.e.a.s. nefndarskipuninni, með þeirri skyldu n. að kynna sér fjárfestingar- og dreifingarkostnað, sem fyrir er, og í þriðja lagi því ákvæði, að mjólkurframleiðendur sjálfir ákveði um reglur þær, sem gilda um þetta mál, þá teljum við, að mjög sé komið til móts við sjónarmið mjólkurframleiðenda, svo mikið, að þeir þurfi ekki að kvíða þessari breytingu.
Ég þarf ekki að fara mörgum orðum um röksemdir þær, sem liggja að baki þessu frv. í grundvallaratriðum. Þær hef ég rakið hér áður í hv. þd. Þar koma til sjónarmið neytenda um aukna þjónustu. Þar koma til þau rök, að með fleiri útsölustöðum ættu mjólk og mjólkurvörur að seljast meir, og í þriðja lagi það, sem kannske skiptir mestu máli, að með þessu frv. ætti að einhverju leyti að vera gengið í þá átt að eyða þeirri tortryggni og þeim árekstrum, sem sífellt hafa átt sér stað um mjólkursölu hér á landi. Og þeim ásökunum ætti jafnframt að vera eytt, sem eru í því fólgnar, að hér sé á ferðinni viss tegund einokunar, hér eigi sér stað mismunun mjög víða um landið, þegar um er að ræða mjólkursölu.
Ég mun ekki fara fleiri orðum um þessi sjónarmið, nema tilefni gefist til. Ég vil segja aðeins að lokum, að það að þetta frv. fjalli um mjólkursölu, er það að sjálfsögðu miklu víðtækara, hefur miklu meiri þýðingu. Þar er spurning um það, hvort við viðurkennum eðlilegt frjálsræði í viðskiptaháttum, sem yfirleitt þykja sjálfsagðir í okkar landi og reyndar víðar, — viðskiptaháttum, sem fela það í sér, að þær verzlanir og þeir aðilar, sem hafa tök á, geti fengið að selja þessa vöru, landbúnaðarvöru, eins og aðrar landbúnaðarvörur og eins og aðrar neyzluvörur, sem hér eru á boðstólum og seldar í þeim matvöruverzlunum, sem fullnægja eðlilegum skilyrðum. Ég held því fram, að hér sé á ferðinni réttlætismál, það sé sanngjörn og eðlileg krafa, að lögunum sé breytt í þessa átt, sem frv. gerir ráð fyrir. Stjórnmálaflokkarnir hafa allir lýst sig reiðubúna til að styðja að jafnréttis- og réttlætismálum, auknu jafnræði, og ég er þeirrar skoðunar, að þetta mál sé víss þáttur í slíkri baráttu, og ef stjórnmálaflokkarnir og stjórnmálamennirnir vilja vera sjálfum sér samkvæmir, þá á ég ekki von á öðru en þeir styðji þetta frv. Ég er líka þeirrar skoðunar, að það eigi ekki að þrífast hér í skjóli hagsmuna og forréttinda mismunun, sem sé til vansa fyrir siðmentað þjóðfélag. Ef hér er ekki um mismun að ræða, þá kemur það í ljós, en því er haldið fram, og vissulega eiga þau sjónarmíð og þær röksemdir við vissar staðreyndir að styðjast. Ég held líka, að það sé misskilningur, að breytingar á þessum lögum gangi gegn hagsmunum bænda. Það er rétt, sem sagt er, að hagsmunir bænda og neytenda fara saman í þessu máli og fleiri málum, og ég held, að það sé beggja hagur, að þetta mál nái fram að ganga.
Ég legg svo til. herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði máli þessu vísað til hv. landbn.