13.04.1973
Efri deild: 93. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3499 í B-deild Alþingistíðinda. (3029)
238. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Frsm. 2. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson):
Herra forseti. Það hefur nú komið fram í tveimur ræðum, sem hér hafa verið haldnar á undan mér, varðandi afgreiðslu þessa frv., að ekki varð samstaða í landbn. við afgreiðslu málsins, og hafa fram. skýrt viðhorf hvor frá sínum bæjardyrum. Meiri hl. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. 1. minni hl. vill þó ljá því lið, þótt hann hafi ýmislegt við málið að athuga, að tryggja nokkra tekjuöflun strax til hjálpar, eins og frv. gerir ráð fyrir, a.m.k. í megindráttum. Ég hef ekki gert nákvæman samanburð á því, því að þskj. koma svo ört inn á borðin núna, að manni endist raunverulega ekki tími til að lesa þau, og því síður að gera samanburð á þeim né nákvæma talnaathugun. Ég segi hins vegar í nál. mínu, sem er á þskj. 706, að réttast væri að vísa málinu enn til nánari athugunar, og mun ég nú færa nokkur orð að því, hvers vegna ég legg það til.
Það segir í aths. við frv., á bls. 6, með leyfi forseta: „Með bréfi, dags. 29. sept. 1972, skipaði landbrh. nefnd 9 manna til að endurskoða lög nr. 45 frá 16. apríl 1971, um stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, og önnur skyld lagaákvæði, eftir því sem n. teldi við þurfa.“ Í þetta voru valdir 9 menn, sjálfsagt ágætismenn að öllu leyti, en þeir hafa hvergi nærri lokið störfum, það er augljóst mál. Hér er um mjög viðamikið verk að ræða, og við sjáum hér ákveðinn áfanga liggja fyrir okkur, sem er kannske ágætur út af fyrir sig. En þetta er svo stórt mál, að við hinir förum fram á, að málið sé lagt fyrir í heild, ef þess er nokkur kostur, eða að við fáum a.m.k. betri grg. um hvað vakir fyrir mönnum í þessu efni við þessa endurskoðun.
Ég held, að við séum allir á því, að það sé sjálfsagt og eðlilegt að taka mál landbúnaðarins við og við til endurskoðunar, alveg eins og málefni annarra atvinnugreina eru tekin til rækilegrar endurskoðunar. Það út af fyrir sig er ekkert óeðlilegt. En jafnframt væri eðlilegt, að þá væri þingflokkum gefinn kostur á að tilnefna menn í slíka endurskoðun, þannig að við þyrftum ekki, þegar málið væri til meðferðar á Alþ., að tefja framgang málsins með sífelldum fyrirspurnum um upplýsingar og þar fram eftir götunum. Það kastar alveg tólfunum, þegar svona mikil mál eru svo lögð fram alveg síðustu daga þingsins og á engan hátt er hægt að fara vel í gegnum þau, þó að form. n. vilji á allan hátt hjálpa okkur til þess, að fá heildaryfirsýn yfir málin. Það er ekki nokkur leið, fyrst svona hefur tekizt til. Ég veit ekki hvað veldur. Ég reikna ekki með, að hæstv. landbrh. sé ánægður með þetta, en e.t.v. hefur vafizt fyrir n. að skila svona viðamiklum frv. eins og nú hafa komið hér fram, sérstaklega frv. um stofalánadeild landbúnaðarins og byggingar í sveitum og frv. til jarðalaga. Þetta eru geysimikil mál, og skiptir mjög miklu máli eins og hér hefur verið drepið á, að vel sé til vandað og ekki eigi sér stað hroðvirknisleg mistök, sem þarf að byrja að leiðrétta strax á komandi þingi. Ég tel því enga goðgá að leggja til, að málið sé athugað nánar og fulltrúum þingflokka gefinn kostur á að kynna sér það í sumar, svo að ég tali nú ekki um að leita umsagnar einhverra aðila um málið, sem við höfum enga möguleika á í n. að gera. Þrátt fyrir það að form. n. skipaði virðulegan sess innan bændasamtakanna og við fengjum ákveðna fulltrúa á fund okkar, eru svona mál auðvitað svo stór, að 2–3 klst. fundi verða þau engan veginn krufin til mergjar. Það er alveg óhugsandi.
Auðvitað þarf sjóður landbúnaðarins á vissri tekjuöflun að halda eins og aðrir sjóðir, sem lána út í atvinnulífið. Og hér er gert ráð fyrir því að auka tekjustofna deildarinnar, m.a. með hækkuðu álagi á landbúnaðarvörur, sem neytendum er ætlað að greiða. Mætti segja, að þar væri nokkuð djarflega stefnt, eins og stemmning er varðandi verðlag á landbúnaðarvörum á þéttbýlissvæðunum í dag. Nú það er mál hæstv. ríkisstj., hvort hún blæs á þau mótmæli, sem húsmæður hafa haft uppi varðandi verðlagsþróun landbúnaðarafurða. Ekki get ég lagt henni neinar lífsreglur í því efni. En vel hefði mátt hlusta á þau í rólegheitum.
Um einstakar gr. frv. ætla ég ekki að fjalla. Ég vil þó vekja athygli á því, að það er nýtt, sem er tekið upp í 2. gr. frv., en þar á bankaráðið að fara að fjalla með sérstökum hætti um lánamálin og vera úthlutunaraðili. Á þeim fundum, þegar bankaráðið fjallar um þessi mál, segir, að fulltrúi frá Stéttarsambandi bænda og fulltrúi frá Búnaðarfélagi Íslands skuli taka sæti í bankaráði Búnaðarbanka Íslands sem fullgildir bankaráðsmenn. Fulltrúar þessir og varamenn þeirra skulu tilnefndir til fjögurra ára í senn. Í fyrsta sinn gildir sú tilnefning til 31. des. 1976. Hér er alveg nýtt hlutverk á ferðinni, og það þarf að breyta bankalögunum í þessu sambandi. Ég er ekki viss um, að hér sé stefnt inn á rétta hraut. Ég held, að bankaráðsmenn séu ekki kjörnir þannig og hafi ekki það starfssvið heldur, að þeir eigi að fjalla um þessi mál eins og þessi gr. gerir ráð fyrir. A.m.k. hef ég ekki fengið viðhlítandi skýringu á því, og það kom ekki heldur fram í n. nein viðhlítandi skýring á því, af hverju þetta er gert, og stefnt inn á þessa braut. Þetta er alveg nýtt og frá mínu sjónarmiði mjög hæpið. Ég tel, að stofnlánadeildin eigi að vera óháð, jafnvel þó að það segi í einni gr. hér, 20. gr. frv.: „Stofnunin ber heitið byggðastofnun landbúnaðarins og starfar á vegum Búnaðarbanka Íslands.“ Það má deila um það, hvort hún eigi að vera beint á vegum bankans. Hún hefur víst verið það, en hún á þá a.m.k. að vera alveg óháð og sjálfstæð deild hjá bankanum og með sína eðlilegu stjórn. Það er mín skoðun í þessu efni. Og í 19. gr. segir, að það eigi að úthluta styrk á íbúðarhús. Það má gera með ýmsu móti. Það á að leita umsagnar viðkomandi byggðarlags, áður en þetta er gert, og síðan eiga bankaráðsmenn að fara að úthluta 100, 150, 200, 250 styrkjum á ári, og verður þá þeirra hlutverk orðið skömmtunarstjóralegt mjög. Ég tel þetta óeðlilegt, ég get ekki að því gert.
Hitt er enn ekki ljóst, hvernig á að breyta til með Landnám ríkisins. En sjálfsagt skýrist það síðar meir, þegar önnur frv. koma fram og það liggur fyrir í heild, hvað ætlazt er fyrir. Ég hef lítillega hlaupið í gegnum frv. til jarðalaga. Ef ég skil það rétt, stendur til að stofna þar nýjar n. úti um allt land og láta þær hafa aukið starfssvið með aðild að skrifsofu. Þetta tel ég einnig geta verið varhugavert. En það er annað frv., sem fjallar um það, og skal ég ekki fara út í það á þessu stigi.
En sem sagt, vegna þess að hér er um mjög veigamikið og þýðingarmikið mál að ræða og landbúnaðurinn er mál allrar þjóðarinnar, er eðlilegt, að þingflokkarnir, sem eiga að fjalla um málið, fái meira svigrúm en 2–3 klst. til þess að athuga málið í n. og næstum engan möguleika til þess að lesa frv. og bera þau saman við gildandi lög á síðustu klst. þingsins, þegar frv. berast svo ört inn sem raun ber vitni og atvik liggja fyrir í dag. Þess vegna hef ég leyft mér á þskj. 706, herra forseti, að leggja til, að málinu í heild sé vísað til ríkisstj. aftur í trausti þess, að það fái gaumgæfilega athugun og fulltrúum allra þingflokkanna sé gefinn kostur á að kynna sér nánar þessi viðamiklu mál, sem endurskipulagning landbúnaðarins er, til hagsældar og hagsbóta fyrir þá, er af landbúnaði lifa, og einnig fyrir neytendur.