14.04.1973
Sameinað þing: 72. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3523 í B-deild Alþingistíðinda. (3058)
102. mál, greiðsla ríkisframlaga samkvæmt jarðræktarlögum
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. atvmn. fyrir, að þessi till. skyldi vera afgreidd úr n., enda þótt ég hefði kosið, að afgreiðslan væri með öðrum hætti. Vitaskuld hefði ég kosið fremur, að till. hefði verið afgreidd, þó að með breytingu væri, þannig að þar kæmi fram ákveðin áætlun um, hvernig því marki yrði náð, sem stefnt er að með flutningi þessarar till., að greiðsla jarðræktarframlaga geti með tímanum öll náð því marki að fara fram á framkvæmdaári.
Hv. frsm. n. sagði hér áðan, og svo segir einnig í nál. á þskj. 578, að þessi greiðsla ríkisframlaganna til jarðræktarframkvæmda sé hafin með þessum hætti og það hafi verið greiddar út 5 millj. kr. á síðasta ári, sem sé nokkru hærri fjárhæð, sagði frsm., en Landnám ríkisins hafði greitt út til jarðræktarframkvæmda 1971. Því miður er ég nú ekki með þær tölur hjá mér, hvað Landnámið hefur greitt út á því ári, en samkv. fjárl. fyrir árið 1972 var að því stefnt, að Landnámið gæti greitt út til jarðræktarframkvæmda á því ári 22,8 millj. kr. Það er því langt bil á milli þess, sem orðið hefur í framkvæmd á síðasta fjárlagaári og þess, er til stóð að yrði, ef þessi framlög hefðu verið sem fyrr í höndum Landnáms ríkisins. Samt ber að fagna því, að nokkurt spor er þarna stigið, en það spor er ekki stærra en svo, að um verulega afturför er að ræða. Bændur landsins og ræktunarsamböndin hafa orðið að taka á sig sjálf meiri hl. af þessum kostnaði en verið hefði, ef ekki hefði orðið sú skipulagsbreyting á síðasta Alþ., sem færði ríkisframlögin til jarðræktar frá Landnámi ríkisins til Búnaðarfélags Íslands.
Ég vil einnig minna á það hér, að þegar viðreisnarstjórnin svokallaða lét af völdum, var í rauninni sérstakt tækifæri til þess að hefja þessar greiðslur út á jarðræktarframkvæmdir á framkvæmdaári, vegna þess, að á síðasta fjárlagaári viðreisnarstjórnarinnar voru afgangs af fjárlagafé til þessa framkvændaþáttar 24,9 millj. kr. Þar er enn eitt dæmið um það, að núv. hæstv. ríkisstj. tók við blómlegu búi úr höndum þeirrar er frá fór. Þetta tækifæri var ekki notað þá, og ég lít svo á, að enda þótt með þessu sé nokkurt spor stigið í þá átt að hefja þessar greiðslur á sama ári og verk er unnið, þá sé það í rauninni miklu skemmra en öll efni hafa staðið til.