14.04.1973
Efri deild: 94. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3535 í B-deild Alþingistíðinda. (3090)

130. mál, skólakostnaður

Auður Auðuns; Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. og hv. frsm. menntmn. gat um, hef ég skrifað undir nál. með fyrirvara. Ég hafði þá fengið vitneskju um, að Samband íslenzkra sveitarfélaga eða stjórn þess hefði sent menntmn. hv. Nd. umsögn varðandi þetta frv., en hún hefði borizt menntmn. Nd. það seint, að hún hafði þá þegar afgreitt frá sér málið og það reyndar líklega verið afgreitt til fulls úr d., þegar það bréf kom fram. Ég fór því fram á það við framkvæmdastjóra sveitarstjórnasambandsins, að ég eða menntmn. Ed. fengi þetta plagg í hendur. Það var ekki komið, þegar við héldum fund í menntmn. Ég vildi ekki tefja málið með því að biðja um frest eingöngu út af þessu og undirritaði því nál. með fyrirvara.

Nú hafa hv. þdm. heyrt, hver umsögn stjórnar Sambands íslenzkra sveitarfélaga um frv. var, en stjórnin leggst gegn samþykkt þess. Hún víkur að því, sem er vitað, að í raun hafi það verið svo undanfarin ár, einnig í tíð fyrrv. ríkisstj., að ekki hefur verið talið unnt að fara eftir 3 ára ákvæði skólakostnaðarlaga og framlög verið greidd á 4 árum. Ég get út af fyrir sig fallizt á þá röksemd sveitarstjórnasambandsins, að þó að það hafi verið talið nauðsyn undanfarin ár að lengja tímann í 4 ár, sé ekki ástæða til að breyta lögum þar að lútandi. Sveitarstjórnarsambandið víkur að því m.a. máli sínu til stuðnings, að sveitarfélög, sem hafi þurft að taka lán til skólabyggingarframkvæmda, vegna þess meðfram að ríkisframlög hafi komið seinna en lögin sjálf gera ráð fyrir, hafi orðið að bera vaxtabyrðar af slíkum lántökum og ekki fengið það fé endurgreitt frá ríkinu.

Ég mun nú eftir að hafa gert grein fyrir því, að ég sá ekki þessa umsögn fyrr en við höfðum afgr. þetta frv. frá okkur í menntmn., að sjálfsögðu ekki greiða atkv. á móti þessu frv., en mun sitja hjá við atkvgr.