14.04.1973
Efri deild: 94. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3537 í B-deild Alþingistíðinda. (3093)
220. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Magnús Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Það er rétt, sem hv. frsm. gat hér um áðan, að kjarni þessa máls er að opna möguleika fyrir því, að fleiri aðilar geti öðlast samningsrétt af hálfu opinberra starfsmanna gagnvart ríkinu eða fjmrh. en gilt hefur til þessa. Um þetta hefur verið löng barátta, eins og hann sagði réttilega.
Ég vil láta það koma hér fram, að þegar síðustu samningar voru gerðir, var þessum málum þannig háttað samkv. kjarasamningal., að það var aðeins Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, sem hafði þennan rétt, en hins vegar var það framkvæmt svo af fjmrn., með fullum velvilja BSRB, að Bandalag háskólamanna var í raun látið vera aðili að þeim samningum. Það var gert á þann hátt, að þau atriði, sem snertu háskólamenn voru borin undir þá, og þeim gefinn kostur á að koma að öllum sínum sjónarmiðum varðandi það efni. Það þótti hins vegar ekki rétt að breyta kjarasamningal., áður en þeir samningar voru gerðir, enda var mikils virði, að það væri einn aðili að formi til, sem þar stæði að.
Eins og mönnum er kunnugt, var þá gerð gerbylting á kjarasamningunum að því leyti, að þeir byggðust á svokölluðu starfsmati, sem hafði verið undirbúið um nokkurra ára bil, í samráði við rn. og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Að loknum þeim samningum var skipuð n. til þess að reyna að finna úrræði til að samrýma sjónarmið BSRB og Bandalags háskólamanna með það í huga að ná fram þeirri niðurstöðu, að Bandalag háskólamanna gæti orðið viðurkenndur samningsaðili með fullum velvilja Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Þessi n. hefur af einhverjum ástæðum ekki verið látin skila áliti, heldur hefur núv. hæstv. fjmrh. skipað nýja n., og er þetta frv. árangur starfsins innan þeirrar n. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, þótt svo hafi verið gert, en taldi aðeins rétt, að það kæmi fram, að málið var áður á döfinni. Það er eindregin skoðun mín, að það spor, sem lagt er til að stíga, þótt ekki sé það nákvæmlega orðað, við hvað er átt í frv., sé rétt, ef með því er átt við þessi tvö samtök. Ég legg hins vegar á það höfuðáherzlu, að ekki verði viðurkennd fleiri samtök. Það hefur verið gert í sumum löndum, t.d. Svíþjóð, að láta fleiri aðila af hálfu opinberra starfsmanna fara með samningsréttinn, og þar er að skapast algert öngþveitisástand. Það er nokkurn veginn augljóst mál, að ef fleiri aðilar kæmu til, mundi þetta gerast með sama hætti hér og ekki vera hægt að leysa það á neinn annan viðunandi hátt en að málið færi alltaf í kjaradóm, sem hlyti að lokum að leiða til þess, að kerfið í heild mundi brotna niður. Ef það er ætlun hæstv. fjmrh. að breyta l. með þeim hætti, sem ég tel að felist í rauninni í frv. og frsm. n. hefur raunar lýst að sé skoðun n., að þessi samtök verði aðeins tvö: Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og Bandalag háskólamanna, tel ég það vera rétta stefnu, en legg áherzlu á, að ekki verði lengra gengið.
Læknamálin eru vandamál út af fyrir sig, ég skal játa það. En ég tel ákaflega hæpið að vera að veita einum aðila þá sérstöðu, sem þarna er um að ræða. Auk þess tel ég vafasamt, að þess verði þörf, vegna þess að læknar eru í rauninni ekki opinberir starfsmenn, nema þeir, sem falla undir kjarasamningalögin. Héraðslæknar eru það, en meginþorri sjúkrahúslækna er alls ekki opinberir starfsmenn, heldur er við þá samið með öðrum hætti, og ég efast um, að það hafi verið nauðsynlegt að taka þetta ákvæði inn í frv. Ég skal ekki fara að setja mig á móti því, úr því að það tókst að finna eitthvert form fyrir því, sem menn telja að girði fyrir það, að fleiri aðilar komi á eftir og reyni að kljúfa sig út úr sínum samtökum. Ég legg aðeins á það áherzlu, að málið verði framkvæmt með þeim hætti, sem mér skilst, að sé skoðun hv. n. sameiginlega, að þetta feli í rauninni aðeins það í sér, að samningsaðilar um aðalkjarasamninga verði þessir tveir, sem ég nefndi.