14.04.1973
Efri deild: 96. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3559 í B-deild Alþingistíðinda. (3139)
169. mál, heilbrigðisþjónusta
Auður Auðuns:
Herra forseti. Brtt. á þskj. 710, sem við hv. 1. landsk. þm. fluttum við 2. umr. málsins, var tekin aftur til 3. umr., og vegna nokkurs misskilnings hafði ég gert ráð fyrir því, að hún yrði tekin fyrir í heilbr,- og trn. á milli umr. Ég hef hins vegar út af fyrir sig ekkert við það að athuga, þótt svo hafi ekki getað orðið, en við flm. till. á þskj. 710 óskum þess, að hún komi nú til atkv.