14.04.1973
Neðri deild: 89. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3563 í B-deild Alþingistíðinda. (3158)
222. mál, atvinnuleysistryggingar
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Við höfum nú heyrt, að till. mín mætir töluverðri andstöðu frá fulltrúum verkalýðsins, enda eru þeir þrír, að ég veit bezt, allir í stjórn A.S.Í. Þetta er dálítil tryggingasamstaða hjá þeim að eiga bágt með að skilja það, að eðlilegt væri, að svo stórt og voldugt samband sem Farmanna- og fiskimannasamband Íslands er fái aðild að þessum sjóði. Hér er ekki verið að taka fulltrúa af neinum aðila, sem um þetta samdi, heldur er verið að ganga, ef svo mætti segja, á hlut Alþ., þ.e.a.s. verið er að fækka fulltrúum Alþ. um tvo og fá inn ný, voldug samtök sjómanna annars vegar og svo Vinnumálasamband samvinnufélaganna.
Ég veit ekki, hvaða gífurlegur ótti það er, að ekki megi hagga við nokkrum hlut. Þetta er nú 17 ára gamalt samkomulag, ef ég man rétt, sem menn voru að vitna í hér. Fyrr má nú rota en dauðrota, að það megi ekki hagga þessum hlutum hið minnsta eftir allan þennan tíma.
Mér sem sagt virðist svo, að þarna sé einhver fastur hópur fyrir, sem vilji hafa þetta óbreytt, en það breytir ekki minni skoðun, og ég tel rétt, að þessi till. komi fram, og látum skeika að sköpuðu, eins og segir á einum stað.