14.04.1973
Neðri deild: 90. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 3571 í B-deild Alþingistíðinda. (3184)

241. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það væri nú kannske ástæða til að leiðrétta það, sem hv. 8. landsk. þm. sagði, þar sem hann endurtekur hér á Alþ. hvað eftir annað atriði, sem hann hlýtur að vita, að er vísvitandi ósanningi. Hann heldur því hér fram, að ég hafi neitað að flytja það frv., sem hér var flutt af fiskveiðilaganefnd. Hv. þm. veit vel, að þetta eru alveg rakalaus ósannindi. Ég sagði hins vegar við fiskveiðilaganefnd, sem hafði samið þetta frv., að hún mætti hafa þann hátt á, hvort heldur hún vildi, þar sem hún hefði samið frv., að hún legði frv. fram og þeir menn væru flm. að frv., sem sömdu það, eða ég legði það fram, og n. kaus að hafa þennan hátt á. Þessi hv. þm. leyfir sér að skrökva að allri þjóðinni í útvarpsumr. og endurtaka svo hér, að ég hafi neitað að flytja frv. En hann ætti að vera maður að meiri og játa, að hann. hafi skrökvað þessu upp.

Þessi hv. þm. hefur líka nokkrum sinnum talað um það hér, að ég hafi brugðizt hlutverki mínu í því að hafa ekki verið búinn að marka fiskveiðistefnu Íslendinga og leggja fram till. um hana, áður en við færðum landhelgismörkin út í 50 mílur. Svona geta auðvitað þeir einir talað að mínum dómi, sem vantar í rauninni allt vit í kollinn, varðandi a.m.k. þetta mál. Af hverju var ekki sjútvrh. Alþfl., sem var í starfinu á undan mér, búinn að móta þessa stefnu? Það var þó áður en landhelgismörkin voru færð út. Alþ. gerði hér beinlínis samþykkt um, að hafa þann hátt á, sem hafður hefur verið varðandi þetta mál. Alþ. ákvað sjálft, að sérstök þm-nefnd skyldi semja till. um þessi mál í beinu framhaldi af því, sem áður hafði verið, og það var haft fullt samráð við alla flokka um þessi vinnubrögð. Hitt er vitanlega alveg út í bláinn að tala um, að það hafi verið sér stök skylda mín að leggja hér fram till. um nýja fiskveiðistefnu, áður en við færðum út okkar landhelgismörk.

Hv. 8. landsk. þm. talar um það, að hann heiti á alþm. að samþ. þetta frv., og það var helzt á hans orðum að skilja, að hann væri að heita á alþm. að láta nú ekki ráðh. beygja sig í þessu máli. Enginn mundi fagna því meira en ég, ef það tækist samstaða um það á Alþ. að afgreiða málið. Ég stend með þessu frv., það veit hv. þm. En það er auðvitað ekkert annað en að neita staðreyndum, þegar það kemur hér fram við afgreiðslu málsins, að hver þm. á fætur öðrum lýsir því yfir, að þeir óski eftir því, að málinu verði frestað, og mér bar auðvitað skylda til að taka afstöðu til þess, þegar mjög margir þm. fara fram á nokkurn frest í málinu. Ég tel það ekki hyggilegt að reyna að keyra í gegnum þingið mál af þessu tagi, og tel miklu farsælla, að menn fái að athuga tiltölulega nýframlagt frv., sem þeir hafa ekki haft aðstöðu til þess að kynna sér fyrr en nú síðustu dagana, ef þannig mætti skapast sterkari samstaða um að setja lög varðandi þetta efni. Hitt liggur mér svo í léttu rúmi, þó að þessi hv. þm. reyni að slá sig til riddara á því, að hann sé einhver forustumaður í landhelgismálinu og gangi hér fram fyrir aðra, þótt hann tali á þann hátt, sem hann gerði hér áðan.

En það ætla ég að segja, að lítið lið hefur verið að þessum hv. þm. í því að flytja okkar málstað í landhelgismálinu á erlendri grund, ef hann hefur túlkað það á þá lund, sem hann gerir hér, að við Íslendingar séum gráðugir fiskimenn, sem séum að eyða fiskstofnunum hér við landið. Hann hefði hins vegar mátt segja útlendingum, hvað við gerum miklu meira en allar aðrar þjóðir til þess að friða fiskstofna okkar, þannig að útlendingar eiga erfitt með að trúa því, hvað við höfum þegar í gangi strangar reglur varðandi okkar veiðar. Ég hef bent á það áður í umr., að við höfum bannað með öllu ýmis veiðarfæri, sem eru heimiluð annars staðar. Við höfum sett mjög strangar hömlur á önnur veiðarfæri, sem almennt eru notuð annars staðar. Við veitum ekki heimildir til þess að veiða nema mjög stuttan tíma á árinu ýmsar fisktegundir, sem veiddar eru allt árið í nálægum löndum. Og við höfum sett mjög miklar hömlur á togveiðar hér við land.

Ég skal ekki fara að eyða tíma þingsins í að rekja þetta og fræða hv. þm. um þessi atriði. En það er algerlega rangt að halda því fram, að við Íslendingar stöndum eitthvað höllum fæti í landhelgismálinu, vegna þess að við stundum hér sérstaka rányrkju á okkar miðum. Það er auðvitað alltaf svo við fiskveiðar, að það er hægt að nefna einstök dæmi um, að það hafi verið stundaðar veiðar, sem ekki hefði átt að stunda. En ef við berum okkur í þessum efnum saman við það, sem er í nágrannalöndum okkar, þá er þar mikill munur á.

En aðalatriðið í þessu efni er að halda þannig á afgreiðslu þessa máls, að það geti tekizt víðtæk samstaða um það. Hér er um mjög viðkvæmt mál að ræða. Það hefur farið þannig áður hjá okkur Íslendingum, að þegar reglur hafa verið settar um veiðiheimildir, þá hafa þær ekki staðizt í framkvæmd og við höfum orðið að játa það hér á Alþ., að þær hafi verið brotnar af öllum og menn ekkert farið eftir þeim, og brotin hafa satt að segja hrannast upp. Það var fyrst þegar við fórum þá leið að reyna að vinna að því í ró að ná viðtæku samkomulagi hér á Alþ. um fastar reglur varðandi veiðiréttindi innan fiskveiðilandhelginnar, að við náðum verulegum árangri í þessum efnum. Ég fyrir mitt leyti met það því mjög mikils, ef hægt er að ná sterkri samstöðu hér á Alþ. um framkvæmd í málinu. Hitt má vera alveg ljóst, að ef tök eru á því að fá málið afgr. á þessu þingi með sæmilegri samstöðu þm., þá stendur ekki á mér að samþ. það. En ég hef tekið undir það að geta fallizt á að fresta málinu um 6 mánaða tímabil, vegna þess að ég hef sannfærzt um, að mikill meiri hl. alþm. óskar eftir því, að sá háttur verði hafður á, og þar fer ég auðvitað eftir því, hverjir hafa komið til mín og rætt við mig um að hafa þennan hátt á framkvæmd málsins.

Það er auðvitað mesti misskilningur, að það sé verið að létta einhverri byrði af mér, eins og hv. 8. landsk. þm. sagði, — að það væri verið að létta einhverri byrði af mér í sambandi við þetta mál. Það er enginn vafi á því, að það að fresta þessu máli mun stórkostlega auka byrðarnar á mér, á meðan ég gegni því starfi, sem ég gegni, vegna mjög mismunandi skoðana um það, hvernig eigi raunverulega að ganga frá þessum málum. En ég vil gjarnan taka á mig aukinn vanda, ef lausnin, sem fæst, verður haldbetri í staðinn. Það er það, sem skiptir öllu máll.